Dagblaðið - 09.06.1977, Page 23
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 9. JUNI 1977.
23
ð
Utvarp
Sjónvarp
9
Útvarp íkvöld kl. 20.30: Útvarpsleikritið Byrðin eilífa
Líf konu sem strýkur að heiman
Hvað hafa húsmæóur að lifa
fyrir þegar börnin eru farin að
heiman og hjónabandið orðið
innantómt? Það er sú spurning
sem reynt verður að svara í út-
varpsleikritinu í kvöld. Leikritið
nefnist Byrðin eilífa og er eftir
Lesk Fischer.
Sagt er frá konu nokkurri sem
strýkur að heiman því henni
finnst hún ekki hafa neitt að lifa
fyrir því maðurinn og börnin, sem
alla tíð hafa verið það sem lífið
snerist um, eru nú ekki lengur
miðpunktar þess. Konan kemur á
lítinn veitingastað og þar rifjast
upp fyrir henni ævin og það
verður til þess að hún tekur
örlagaríka ákvörðun. Ekki er rétt
að rekja efni leiksins frekar til
þess að eyðileggja ekki ánægjuna
fyrir hlustendum.
Þýðandi leikritsins er Þor-
steinn Ö.Stephensen en leikstjóri
Haraldur Björnsson. Leikarar eru
Regína Þórðardóttir, Valur Gísla-
son, Guðbjörg Þorbjarnardóttir,
Róbert Arnfinnsson, Herdís Þor-
valdsdóttir, Bessi Bjarnason og
fleiri.
Leikritinu var áður útvarpað
árið 1956. Það tekur 40 mínútur í
flutningi.
-DS.
Margar húsmæður hafa það á til-
finningunni að þær séu lokaðar
inni í pínulitlum kassa sem þær
geta alls ekki komizt út úr. En
hvað gerist þegar börnin eru
farin að heiman og eigin-
maðurinn orðinn ósköp iitið
spennandi?
Höfundur leikritsins íkvöld:
Leck Fischer
SAMDIYFIR
60 LEIKRIT
Höfundur útvarpsleikritsins
í kvöld er Leck Fischer. Hann
fæddist í Kaupmannahöfn árið
1904 og lézt árið 1956. Hann
skrifaði bæði skáldsögur og'
leikrit og gerði handrit að 20
kvikmyndum. Hann fékk
fyrstu verðlaun fyrir leikritið
Magtens bröd í norrænni leik-
ritasamkeppni árið 1955. Hann
samdi alls 60 leikrit, bæði fyrir
svið og til flutnings í útvarpi.
Byrðin eilifa var frumflutt í
danska útvarpinu árið 1951.
Þekktustu leikrit Fischers auk
þess, að minnsta kosti hér á
landi, eru Rauóa þyrnigerðið.
Lífið er fagurt, Móðurhjartað,
Karlinn í tunglinu og Vafur-
logar. Þau leiKrit hefur ríkisút-
varpið öll tekið til flutnings en
ekkert af verkum Fischers
hefur verið sett á svið hér á
landi svo okkur sé kunnugt. DS.
Útvarp
Fimmtudagur
9. |um
12.25 VedurfreKnir on fréttir. Tilkvnn-
in«ar. Á frívaktinni. Margrét (iuð-
mundsdóttir kynnir óskalög sjó-
manna.
14.20 Miðdogissagan: ,,Nana" eftir Emilo
Zolo. Karl ísfeld þýddi. Kristín
Magnús (iurtbjartsdóttir les (22).
15.00 Miödegistónleikar. Maria Littauer
og Sinfóniuhljómsveitin i Hamborg
leika Konsertstiick fyrir pianó og
hljómsveit i f-moll op. 79 eftir Weber;
Siegfried Köhler stj. Hljómsveit
Alþýrtuóperunnar i Vin leikur Sin-
fóniu nr. 2 i D-dúr. „Pólsku hljómkvirt-
una“ eftir Tsjaíkovský.
16.00 Fréttir. Tilk.vnningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.30 Lagiö mitt. Helga Stephensen
kynnir óskalög barna innan tólf ára
aldurs.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fróttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J. Halldórsson
flytur þáttinn.
19.40 Fjöllin okkar. Jón Á Gissurarson fv.
skólastj. talarum Eyjafjallajökul.
20.05 Samleikur ó fiðlu og píano. Hlíf
Sigurjónsdóttir og Bary Belanger
leika Sónötu i G-dúr eftir Mozart.
20.30 Leikrit: „Byröin oilífa" eftir Leck
Fischer. Áður útvarpað 1956. Þýðandi:
Þorsteinn ö. Stephensen. Leikstjóri:
Haraldur Björnsson. Persópur og leik-
endur:
Maria ...........Regina Þórðardóttir
Meta Gurtbjörg Þorbjarnard.
Faðirinn..............Valur Gíslason
Sonurinn ........Róbert Arnfinnsson
Dóttirin.......Herdis Þorvaldsdóttir
Drengurinn .........Bessi Bjarnason
Varðstjórinn.......Klemenz Jónsson
'Aðrir leikendur: Haraldur Björnsson.
Ævar Kvaran, Rúrik Haraldsson og
Guðrún Asmundsdóttir.
21.10 Tónleikar. a. Adrian Ruis leikur á
píanó tvö lög eftir Christian Sinding,
Prelúdíu í As-dúr op. 54 nr. 1 og
..Dögun" í f-moll op. 34 nr. 4_þ. Kirsten
Flagstad syngur lagaflokkinn ..Haug-
tussu" eftir Edvard Grieg: Edwin
McArthur leikur á píanó.
21.50 Aö austan. Birgir Stefánsson kenn-
ari les eigin Ijóð.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldaagan: „Vor í
verum" eftir Jón Rafnsson. Stefán
Ögmundsson les (21).
22.40 Hljómplöturabb Þorsteins Hannes-
sonar.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
„Hef ekki ennþá fengið glímu-
skjálftann sem ég bjöst við”
— segir Róbert Trausti Árnason, nýr útvarpsþulur
„Þetta var eiginlega tilviljun
að ég byrjaði hérna,“ segir
Róbert Trausti Árnason sem
nýlega hóf störf sem þulur hjá
útvarpinu. „Ég var að fara í
munnlegt próf og einn kennari
minn hafði heyrt að það vantaði
þul í útvarpið svo ég brá mér
niður eftir og sótti um og fékk
stöðuna. Eg er þó aðeins ráðinn
til afleysinga í stuttan tíma,
nánar tiltekið aðeins í sumar.
Hvað þá verður er óvíst.“
Róvert hefur í vetur og fyrra-
vetur stundað nám í félags-
vísindadeild Háskóla Islands og
er að læra stjórnmálafræði.
Hann er fæddur árið 1951 og er
því 26 ára gamall. Foreldrar
hans eru Árni Guðmundsson
múrarameistari og Anna
Guðmundsdóttir. Róbert tók
stúdentspróf frá MR árið 1973
og hefur síðan stundað háskóla-
nám og kennslu.
— Og hvernig er svo til-
finningin sem fylgir því að vera
þulur frammi fyrir alþjóð?
„Þetta er þægilegt starf og ég
hef ekki ennþá fengið þann
glimuskjálfta sem ég bjóst við
að fá. Annars er ekkert að
marka það ennþá, því ég hef
aðeins verið í nokkra daga,“
sagði Róbert að lokum. Við
óskum Róberti velfarnaðar í
nýja starfinu og vonumst til að
heyra í honum sem lcngst.
DS.
Róbert Trausti Arnason
DB-mynd Hörður.
TT*