Dagblaðið - 12.07.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 12.07.1977, Blaðsíða 1
;{. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1977 — 147. TBL. RITSTJÓRN JSÍÐUMtJLA 12. AUGLVSINGAR ÞVERHOLTI 11, AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — AÐALSlMI 27022 RÍKISSTJÓRNIN LEYFIR VERÐHÆKKANIR í DAG - en gætir þess jafnframt, að áhrifin sjáist ekki í næsta vísitöluútreikningi Ríkisstjórnin mun levfa verð- ii.ekkun á útseldri vinnu á fundi sínum í dag. Verður á fundi stjórnarinnar sennilega fjallað um þær verðhækkanir sein verðlagsnefnd hefur f.vrir sitt levti fallizt á. Auk útseldrar vinnu verða liklega levfðar h.ekkanir á gjaldskrám efna- lauga og þvottahúsa: Langsamlega þýðingarmest þessara h.ekkana er útseld vinna. Tekur hún til allrar verkst.eðísvinnu auk ýmissa annarra liða, svo s'em í bvgging- ariðnaði og fleiri greinum. Hefur því h.ekkun á útseldri vinnu gífurlega þýðingu. Vist má telja, að sú hækkun verði ekki leyfð f.vrr en eftir 1. ágúst til þess að hún komi ekki inn í vísitöluútrreikning um n.estu mánaðamót. Gizkað er á 10 h.ekkun á útseldri vinnu. Þó kunna að f.vlgja einhver skilvrði, sem hafa áhrif á heildarlaunahækk- un i krónum talið. Nokkurra daga frestun á gildistöku leyfðra hækkana í prosentum er þannig ætlað að hamla á móti áhrifum þeirra strax, með tilliti til viðmiðunar kaupgjalds og verðlags sam- kvæmt nýgerðum kjara- sarnningum. -BS. Vaxtahækkun tilkynnt næstu daga — bankastarfsmenn álíka margirog fastráðnir fiskiskipasjómenn Seðlabankinn tiikynnir nokkra vaxtahækkun einhvern næstu daga. Samkvæmt venju og af eðlilegum ástæðum er ekki gerð grein fyrir vaxta- breytingum ög gengisbreyting- um með neinum fyrirvara. Þess vegna er ekki heldur unnt að fá upplýsingar fyrirfram um það hversu mikil vaxtahækkunin verður að þessu sinni. Vaxtabreytingar hafa að sjálfsögðu ævinlega áhrif í efnahagsmálum. Getgátur eru uppi manna á meðal um að vaxtahækkun sú sem tilkynnt verður nú hafi einkum þann tilgang að mæta launahækkun- um bankastarfsfólks með aukn- um vaxtatekjum bankanna. Ólíklegra þykir að vaxta- hækkuninni sé ætlað að hafa stórfelld áhrif á efnahags- stefnu stjórnvalda, þótt það hafi þó heyrzt. Láta mun nærri að banka- starfsmenn á íslandi séu nálægt þvi jafnmargir og fast- ráðnir sjómenn á fiskiskipa- flota landsmanna. Þá eru ekki taldir með lausráðnir menn á einstakar vertíðir. Kjarabætur til þessa fólks þarf einhvers staðar að fá. Hafa menn getið sér þess til að þær muni nú teknar með nokkurri hækkun útlánsvaxta. -BS. Paul Graubmer, læknirinn frá Wiesbaden, var leiður yfir öllu umstanginu sem hann hafði valdið. (DB-mynd Bjarnleifur). Svaf á Hótel Garði er leit að honum var undirbúin Tekiðaðgrennslast eftir Þjóðverja íóbyggðum meðan hann skoðaði sig um víða á landinu ,,Það virðist hafa orðið ein- hver misskilningur sem mér þykir afar leitt að hafa valdið,“ sagði Paul Graubmer, þýzki læknirinn frá Wiesbaden sem óttazt var að týnzt hefði i Dyngjufjöllum. „Ég ætlaði ekki að binda það fastmælum að ég kæmi aftur í skálann í Herðubreiðarlindum en þegar ég kom ekki þangað virðist hafa verið farið að óttast um mig.“ Paul breytti um áætlun, fór úr Herðubreiðarlindum í Dyngjufjöll og hafði upphaf- lega ætlað að koma aftur í Herðubreiðarlindir þann 8. júli. En í stað þess að koma aftur að Herðubreiðarlindum afréð hann að fara með skozkum hjónum er hann hitti í Dyngjufjöllum að Mývatni. Þaðan hélt hann síðan um Norðurland til Húsavíkur og í Vaglaskóg og suður til Reykja- víkur með viðkomu i Hvalfirði. Kom hann í bæinn um eittleyt- ið i nótt og svaf svefni hinna réttlátu á Hötel Garði án þess að hafa hugboð um að verið væri að undirbúa að honum leit. En einmitt þar sem það var ekki fastmælum bundið að hann léti sjá sig í skálanum í Herðubreiðarlindum var ekki enn hafin leit að Paul Graubm- er, heldur látið nægja að auglýsa eftir honum i út- varpinu, þó var leit í undir- búningi. í dag mun Paul Graubmer halda ferð sinni um Island á- fram ótrauður og er ætlunin hjá honum að fara til Vest- mannaeyja í kvöld. Síðan mun hann halda héðan af landi brott eftir að hafa dvalið hér allt frá 12. júni.eftir viðburðar- ríka dvöl. •BH. 30 manna samtök kyn- villtra karla starfa á íslandi — sjábls.9 Laxinngengur grimmtog meiri veiði víða en ífyrra — sjá bls. 9 Mikill samdráttur í íslenzkum hljóm- plötuiðnaði — sjábls.8 Spáðerveiði- banni á þorsk um verzlunar- mannahelgina — sjá baksíðu Krafla: Lífsanda blásið íholu 11 á nýjan leik — sjá baksíðu

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.