Dagblaðið - 12.07.1977, Blaðsíða 12
DAGBLAÐIÐ. ÞKID.IUDAGUR 12. .IULÍ 1977.
Loks sigur Fram — eftir
810 mímítur án sigurs!
— Fram þokaði sér af mesta hættusvæði 1. deildar með sigri gegn Víking, 1-0
Fram þokacU sér af mesta
hættusvæði er liðið vann dýrmæt-
an sigur á Víking —og setti þar
með verulegt strik í meistara-
titilsvonir Víkings. Reykjavíkur-
félögin mættust í Laugardal í
gærkvöid — og Fram sigraði 1-0
— í ákaflega jöfnum ieik, sem gat
farið á hvorn veginn sem var.
Raunar átti hvorugt liðið ósigur
skilið — en að því er ekki spurt.
Kristinn Jörundsson skoraði eina
inark leiksins í síðari hálfleik —
Víkingar náðu ekki að nýta
tækifæri sín og þvi bæði stigin til
Frain. Stig, sem færir liðið að hlið
FII — og gerir stöðu KR og Þórs
enn erfiðari á botni 1. deildar.
Já, sigur Frain var liðinu inikil-
v.egur — hinn fyrsti i níu leikj-
um. Hann var því leikmönnum
kærkominn — og leikmenn Fram
fögnuðu innilega. Víkingar voru
hins vegar niðurlútir — annar
ósigur Víkings á 1. deild Islands-
mótsins i sumar var staðreynd.
Víkingar náðu því ekki aó þoka
sér að hlið Skagamanna — hafa
tapað tveimur stigum meir en
Skagamenn, þremur meir en
Islandsmeistarar Vals.
Það var mikil undiralda í leik
Re.vkjavíkurrisanna i gærkvöld
— ekki mörg tækif.eri og ljóst að
það lið er yrði fyrra til að skora
færi með bæði stigin. Leikmenn
Fram börðust vel — Asgeir Elíás-
son mjög góður á miðjunni, svo og
barðist Gunnar Guðmundsson vel
að vanda. Vörnin var þétt —
Kristinn Atlason og Sigurbergur
Sigsteinsson traustir, og góðir
bakverðir voru Rafn Rafnsson og
Agúst Guðmundsson. Traust
vörn, svo og miðjan voru aðall
Fram í gærkvöld.
Víking skorti þann neista er
hefur einkennt liðið í sumar,
baráttuneista. Vörnin var ekki
eins traust og áður— þar munaði
mestu að þeir Helgi Helgason og
Ragnar Gíslason gerðu óvenju-
margar skyssur, Ragnar hreinlega
ekki með á köflum og Helgi átti
inargar sendingar á andstæðing-
inn. Hins vegar unnu þeir Róbert
Agnarsson og Magnús Þorvalds-
son það upp með ágætum leik —
og miðjan var traust með Gunnar
Örn traustan. Hins vegar var
sóknin höfuðverkur liðsins —
þeir Hannes Lárusson og Theódór
Magnússon náðu sér aldrei á strik
gegn sterkum varnarmönnum
Fram. Þar háði Víkingi að þeir
Viðar Elíasson og Óskar Tómas-
son hafa enn ekki getað hafið leik
að nýju vegna meiðsla.
Já, undiralda var þung —
leikmenn Fram byrjuðu leikinn
af meiri krafti en Víkingar komu
smám saman inn i myndina og
náðu betri tökurn á leiknum, náðu
að pressa meir. Hins vegar voru
tækifæri fá á báða bóga —
Eiríkur Þorsteinsson átti fasta
sendingu fyrir, sem Arni Stefáns-
son hélt ekki. Knötturinn hrökk
fyrir fætur Theódórs Magnús-
sonar er kom á fullri ferð — Arni
kastaði sér fyrir fætur hans en
Theódór hitti ekki knöttinn nógu
vel, fór fyrir hann. Þar fór bezta
tækifæri Víkings i hálfleiknum.
Þá átti Eiríkur Þorsteinsson fast
bogaskot að marki Fram af 20
metra færi — en Arni var á rétt-
um stað.
Fram fékk og sín tækifæri —
Diðrik Ólafsson bjargaði
meistaralega skalla frá Gunnari
Guðmundssyni af stuttu færi.
Víkingar sóttu meir í byrjun
síðari hálfleiks — og rétt eins og í
fyrri hálfleik var þung undiralda.
Kári Kaaber fekk ágætt tækifæri
á 10. mínútu — en hann skallaði
yfir af stuttu færi með aðeins
Arna Stefánsson fyrir framan sig.
En Fram náði forustu á 18.
mínútu. — Víkingur hafði sótt
mun meir — Fram fékk dæmda
hornspyrnu frá vinstri. Pétur
Ormslev sendi knöttinn að stöng-
inni nær — þar gnæfði Kristinn
Jörundsson yfir alla og skallaði í
netið af stuttu færi. Laglega gert
hjá Kristni en vörn Víkings var
þarna illa á verði.
Víkingar sóttu stíft það sem
eftir var leiksins — Fram átti
hættulegar skyndisóknir. Kári
Kaaber fékk tvívegis nokkuð góð
tækifæri — í bæði skiptin reis
hann upp úr vörn Fram og
skallaði að marki en hitti í
hvorugt skiptið. Þá átti Jóhannes
Bárðarson fast skot að marki á
síðustu mínútu — en knötturinn
fór naumlega framhjá.
En.leikurinn var Fram — stigin
voru Fram, dýrmæt stig í fali-
baráttu 1. deildar. Leikmenn
Fram náðu upp betri báráttu en
oft áður í leikjum sínum í sumar,
baráttu er í gærkvöld færði liðinu
bæði stigin.
Flautuglaður dómari leiksins
var Magnús Pétursson — og
línuverðir voru þeir Einar Hjart-
arson og Þorvarður Björnsson.
-h. halls.
Staðan í 1. deild ísiandsmótsins
er nu: Akranes 13 9 1 3 23-10 19
Víkingur 13 6 5 2 16-11 17
Valur 11 7 2 2 19-9 16
Keflavík 13 6 4 3 18-16 16
ÍBV 12 6 2 4 16-10 14
Breiðablik 12 5 2 5 16-16 12
FH 13 4 2 7 17-24 10
Fram 13 3 4 6 14-21 10
KR 13 2 2 9 17-24 6
Þór 13 2 2 9 14-29 6
Frábær tími hjá
Walker
— Nýsjálendingurinn og
ólympíumethafinn í 1500 metra
hlaupi, John Walker, náði beztum
tima í míluhlaupi í ár er hann
sigraði í Dyflini í gærkvöld -
hljóp á 3:52.0 — sem jafnframt er
fjórði bezti tími í mílunni frá
upphafi.
— Ég náði mér vel á strik og
hefði getað slegið heimsmetið í
1500 metrunum, sagði Walker
eftir hlaupið. Og hann hélt áfram
— Heimsmetið mun falla innan
mánaðar, já, ég mun setja
heimsmet í 1500 metrunum innan
mánaðar. Og hann bætti einnig
íDyflini
við að hann gæti einnig bætt eigið
heimsmet í mílunni, en það er
3:49.4 sem hann setti í Svíþjóð.
John Walker sýndi engin merki
þeirra meiðsla er hafa háð honum
undanfarið — hann hefur átt við
meiðsli að stríða í vöðvum. V-
Þjóðverjinn Hans Reibold hafði
forustu framan af og gaf tóninn
en þeir Eamon Coghlan og Wilson
Waigwa ásamt Walker fylgdu fast
á eftir. Þegar um þrjú hundruð
metrar voru í mark tók Walker
forustu og sigraði örugglega á
3:52.0. trinn Coghlan varð annar
á 3:53.4 og Kenyabúinn Wilson
Waigwa varð þriðji á 3:54.5.
3. DEILD - 3. DEILD - 3. DEILD - 3. DEILD - 3. DEILD - 3. DEILD - 3. DEILD
Hrafnkell kemur áfram á ó-
vart — tap KS á Siglufirði
Það voru ekki margir leikir á
dagskrá í 3. deild íslandsmótsins
i knattspyrnu um iielgina. Þá
fóru fram fimm leikir á Aust-
fjörðum — og á Siglufirði kom
ósigur heimamanna mjög á óvart.
Töpuðu gegn liði Arroðans úr
Eyjafirði.
Þar með beið Siglufjörður
sinn annan ósigur í E-riðli. Sigl-
firðingar sóttu mun meir en Ar-
roðinn á Siglufirði — og þegar á
10. mínútu fengu Siglfirðingar
víti. En Jón Steingríinsson varði
spyrnuna og á 40. mínútu náði
Árroðinn forustu — Garðar
Hallgrímsson skoraði.
Siglfirðingar héldu uppteknum
hætti — sóttu stíft en illa gekk að
skapa marktækifæri. Stefán
Hallgrímsson gerði siðan út um
leikinn um miðjan síðari hálfleik
er hann skoraði annað mark Ar-
roðans —óvæntur sigur i höfn.
-St.A.
F-riðill
Hrafnkell — Freysgoði heldur
áfram að koma á óvart á Aust-
fjörðum — vann enn einn góðan
sigur, nú á Austra frá Eskifirði,
1- 0 á Breiðdalsvík. Þrátt fyrir
sigur heimainanna sóttu leik-
menn Austra mun meir í leiknum
en vörn Hrafnkels var traust fyrir
— og leikmenn Hrafnkels treystu
á skyndisóknir. Or einni slíkri
skoraði Hrafnkell — Sigurður
Elísson skoraði eina mark leiks-
ins.
Huginn mætti Sindra á Seyðis-
firði — Og sigraði Huginn
2- 1. Ölafur Sigurðsson og Pétur
Böðvarsson skoruðu mörk heima-
manna en Albert Guðmundsson
svaraði fyrir Sindra. Sindri hélt
síðan til Egilsstaða og lék við
Hött, sem vann sinn f.vrsta sigur í
sumar, 2-1. I jöfnum leik skoraði
Jóhann Gisli Jóhannsson bæði
mörk heimamanna — en Einar
Ingólfsson svaraði fyrir Hött.
Höttur hafði áður mætt Leikni
frá Fáskrúðsfirði i Búðakauptúni.
Leiknir sigraði 7-1 — 2-0 í
leikhléi. Yfirburðir heimainanna
voru miklir — og t."kifæri fjöl-
mörg. Guðmundur Gunnþórsson
og Eiríkur Stefánsson skoruðu 2
mörk, Stefán Garðarsson, Örn
Aðalsteinsson og Jens B. Jensson
skoruðu eitt mark hver en fyrir
Hött svaraði Bergsteinn Metúsal-
emsson.
Einherji fékk Huginn i
heimsókn á sunnudagskvöldið og
sigraði Einherji stórt — 4-0. En
Hrafnkell heldur góðri forustu í
riðlinum — og hefur kortiið mjög
á óvart fyrir austan.
-S.G.
A-riðill:
Leiknir úr Breiðholti heldur
sínu striki — sigraði V-
Skaftfellinga örugglega 4-1 fvrir
austan. Staðan i leikhléi var 4-1
og skoruðu leikmenn Leiknis
fjögur fyrstu mörk leiksins. Þor-
steinn Ögmundsson kom Leikni
yfir, Asmundur Friðriksson
skoraði síðan 2 mörk og
Brynjólfur Gíslason tryggði
öruggan sigur Leiknis er hefur
örugga forustu í a-riðli.
-HVH
C-riðill:
Einn leikur fór fram í riðlinum '
— Bolvíkingar töpuðu sinum
fyrsta leik, gegn Létti úr Reykja-. ■
vík. Léttir misnotaði víti í fyrri
hálfleik en í leikhléi var 0-0.
Jörundur Þórðarsor. og Sigurður
Jónsson skoruðmnörk Léttis.
-St. H
0-riðill:
Eins og við skýrðum frá i gær
hefur Tindastóll örugga forustu í
D-riðli eftir sigur gegn Stranda-
mönnum. Tindastóll hefur 9 stig
úr 5 leikjum — Víkingar frá
Ólafsvík hafa hlotið 5 stig úr 3
leikjum.
fl
Þegar fjölskyld
fargjöld, þá borgai
aðeins hálft.
&
Þannig eru fjö]
allt árið til allra N
Fullt fargjald :
hálft fyrir