Dagblaðið - 12.07.1977, Síða 8
DACBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDACUR 12. JULl 1977.
— hættuleg þróun fyrir unga idngrein, segir
framkvæmdastjóri Hljóðrita hf.
Utlit er fyrir alll að 35% satn-
drátt í jslenzkum hljómplötu-
iónaði í ár. aö áliti Simtr.jóns
Sighvatssonaf. frainkv emda-
st.jóra hl.jóöversins Uljóörita i
Uafnarfiröi.
I Ul.jóörita voru i l'vrra
teknar upp langflestar þeirra
n erri fit) hljómplatna (LP) sem
út konu á landinu. Sigurjón
ui/kar á aö í ár komi ekki út
nema um f.jörutíu hl.jómplötur.
Þar se n af er árinu hafa koiniö
út niu íslenzkar hreiöpliitur. \
sa na timá í fyrra hiiföu koiniö
ut hel.nini’i fleiri plötur.
.. Xuövitaö getur þetta haft
n.jiiu 'I e.n áhril' fvrir okkur i
Uljóörita oy iónaöinn í heild."
sayöi Siaurjón i samtali vió
fréttamann l)B. „Islenzku-
hljóinplötuiðnaóur er uniíiir oi>
afar viökviemur. Samdrátt-
tirinn má í rauninni ekki veröa
neiri. |)vi til aö standa undir
þeirri f járfestingii sein viö
höföum lagt í hér veröum vió aö
taka upp 25-30 pliitur á ári.
l-’vrstu sex mánuöi þessa árs
i>ekk þetta mjiig vel. en
veturinn lítur ekki eHesilei>a
út. þaö veröur ;ió segjast eins oi>
er.“
Meö tilkomu fullkomins
hljöövers (stúdiós) hérlendis
fvrir n erri tveimur árum. tók
i sle nz.k hl.jó m pl öt u út i>áf a
nikinn fjörkipp. eins og inarka
ná af því aó á síöasta ári komu
fit n.erri sextiu stórar plötur.
35% samdráttur
í hl jómplötuiðnaði
Viö sl jórnhoróió i lll jóórila. Jönas R. Jónssmi, upptiikumaóur.
Töluvert margár þeirra stóöu
ekki undir kostnaöi og má ef til
vill rekja samdráttinn i ár til
þess, þ.e. aö fjársterkari út-
gáfurnar halda velli en hinir
minni. sem oft hafa verið með
athyglisverðustu framleiðsl-
una, verði að leggja upp
laupana. -ÓV.
Átta cylindra kaffiskúr
„Þetta er átta cylindra kaffiskúr og spilavíti á hjólum að sögn strákanna á þessum Ford kaffiskúr.
Strákarnir voru að gæða sér á hádegismatnuin er við rákumst á þá í Siðumúlanum i gær. Strákarnir heita
Hákon Erlendsson. Steinn Hilmar Ragnarsson og Unnar Sigursteinsson og eru að sögn í gangstéttar-
baráttunni, þ.e. þeir leggja gangstéttir á vegum verktaka. „Bílinn verðum við að hafa með svo hægt sé að
éta einhvers staðar og slá svo i spil á eftir.“
JH/DB-mvnd Jim Smart.
Píparar, múrarar og
veggfóðrarar fengu
sama og aðrir
Pípulagningamenn, múrarar,
og veggfóðraðar og dúklagning-
araenn sömdu um helgina.
Samningar eru nákvæmlega
eins í grundvallaratriðum og
aðalsamningarnir frá 22. júni
sl., samkvæmt upplýsingum
Cunnars S. Björnssonar, for-
manns Meistarasambands
byggingamanna.
„Félög þessara iðnaðar-
manna voru ekki með í aðal-
samningunum og hafa ekki
verið í síðustu þrjú skiptin,"
sagði Gunnar. „Þvi fór svo, að
varla var byrjað að tala við þá
fyrr en að þeim samnmgum
loknum. Tíminn siðan hefur
verið vel notaður og raunar
taka samningaviðræður alltaf
nokkurn tíma, menn verða að
átta sig á stöðunni og melta
hlutina,“ sagði Gunnar S.
Björnsson að lokum. -ÓG.
Lögberg-Heimskringla:
Tólf þúsund
áskriftir
ekki þegnar
í Dagblaðinu 8. júlí sl. var
greint frá áskriftasöfnun og
sölu endurprentana Helga Vig-
fússonar til styrktar Lögbergi-
Heimskringlu. Þar kom fram
óánægja aðstandenda blaðsins
með framkvæmd söfnunar-
innar og eins að greiðslur f.vrir
eftirprentanir höfðu ekki
borizt til blaðsins. I Dagblaðinu
11. júlí birtist síðan yfirlýsing
Helga Vigfússonar, þar sem
hann greinir frá því að hann
hafi notað andvirði seldra eftir-
prentana til greiðslu á
uppihaldi og ferðakostnaði við
söfnun áskriftanna og síðan
lagt afganginn. að vísu ekki
verulegan. inn á sparisjóðsbók.
Helgi ætlar sér ekki að afhenda
Lögbergi-Heimskringlu upp-
hæðina á meðan á-
skriftasöfnun hans er
hundsuð.
Eins og fram kom í greininni
segist Helgi hafa safnað 12000
áskrifendutn að Lögbergi-
Heimskringlu.
Dagblaðið hafði því samband
við Fríðu Björnsdóttur. setn var
ritstjóri Lögbergs-
Heimskringlu á undan Jóni Ás-
geirssyni og grennsiaðist fyrir
um af hverju svo mikill fjöldi
áskrifta var ekki þeginn af
Lögbergi-Heimskringlu eða
hundsaður eins og Helgi nefnir
það. Fríða sagði að reynt hefði
verið að senda mörgu af því
fólki blaðið, en lítið hefði borizt
af áskriftargjöldum. Það virtist
sem tnargt af þessu fólki vildi
alls ekki fá blaðið. Birna
Magnúsdóttir afgreiðslustjóri
Lögbergs-Heitnskringlu sagði
DB að reynt hefði verið að
senda 200-300 manns blaðið en
lítið hefði 'skilað sér. Þær Birna
og Fríða bentu báðar á Heimi
Hannesson, trúnaðarmann Lög-
bergs-Heimskringlu. Hann sem
trúnaðarmaður viti ástæður
þess að áskriftunutn var ekki
sinnt. Heimir er erlendis 1 sum-
arfrii og mun Dagblaðið greina
frá skýringum hans þegar hann
kemur úr fríinu. Hins vegar
könnuðust þær Birna og Fríða
ekki við 12000 undirskriftir, en
gizkuðu á 1000-1500 nöfn.
-JH.
Kaþólskur prest-
ur íBreiðholt
Kaþólskur prestur. séra
Robert Bradshaw frá
Tipparerv . mun flvtja fyrstu
kaþólsku messuna í Breiðholti í
kvöld kl. 20 i Fellahelli.
Mun hann framvegis þjóna
kaþólikkum þar og hefja reglu-
legar messur í október. Auk
þess inun hann þá bvrja með
sunnudagaskóla og annað
safnaðarstarf. Annað kvöld á
sama tímá og stað verða svo
kvnningarumræður um
kaþólsku kirkjuna þar sem
hann mun veita allar upp-
lýsingar.
Allir eru velkotnnir í mess-
una. hvar í trúflokki sem þeir
eru.
-G.S.