Dagblaðið - 11.08.1977, Side 6
()
DACíBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. ÁGUST 1977.
Iðnskólinn í Reykjavík
Ný námsbraut, sem gefur meðal ann-
ars undirstöðuþekkingu í sníðagerð,
teiknun, tískuteiknun, fatahönnun,
verkskipulagningu og verkstjórn,
tekur til starfa við skólann í haust.
Fataiðndeildin veitir tveggja ára
grunnmenntun í kven- og karlmanna-
fatagerð og lýkur náminu með starfs-
menntun í atvinnulífinu.
Ákveðið hefur verið að bæta við
nokkrum nemendum.
Frekari upplýsingar eru gefnar í
skrifstofu skólans.
Skólastjóri.
Lærið
að
fljúga
Flug er heillandi tómstundagaman og
eftirsóknarvert starf. Ef þú hefur
áhuga á flugi þá ert þú velkominn til
okkar í reynsluflug — það kostar þig
ekkert.
MÍ/GrMW
amla flugturninum
Reykjavikurfiugvelli.
Sínii 28122.
Islandsaften i Nordens hus
Torsdag den 11. august kl. 20:30: Pianisten Halldór
Haraidsson spiiier islandsk klavermusik.
Kl. 22:00: Filmen: „Jörð úr ÆGI“. Cafeteriet er ábent kl.
20:00—23:00.
Velkommen
NORRÆNA
HÚSIÐ
2
'sO
c
2
■#
Skipasmíði
Tilboð óskast í framkvæmdir við
breytingar á m/s Baldri fyrir Haf-
rannsúknastofnun.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri, Borgartúni 7, Reykjavík, gegn
kr. 10.000 skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað kl.
11.00 f.h. þriðjudaginn 20. september
1977.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Suður-Afríka eignast
kjamorkuvopn
— en aðeins f friðsamlegum
tilgangi segir Vorster
Sovétríkin hafa ásakað
Suður-Afríku um að brátt
muni yfirvöld þar hefja til-
raunir með kjarnorku. Þessu
svöruðu yfirvöid í landinu með
því að tilraunir þeirra með
kjarnorkuvopn væru í friðsam-
legum tilgangi.
Varnarmálaráðherrann
Pieter Botha vísaði til ummæla
forsætisráðherrans John
Vorster um kjarnorkumál.
Hann sagði að bæði forsætisráð-
herrann og utanríkisráðherr-
ann hefðu ávallt lagt mikla
áherzlu á það að kjarnorka
yrði notuð í friðsamlegum til-
gangi. Aftur á móti hafa yfir-
völd í Suður-Afríku aldrei látið
hafa það eftir sér að þau myndu
ekki framleiða kjarnorkuvopn.
Tilefni Botha varnarmálaráð-
herra var það að fréttastofan
sovézka Tass, hefur sagt að
brátt myndu Suður-
Afrikumenn hefja tilraunir
með kjarnorku. Tilraunir
Suður-Afríku með kjarnorku
hafa ávallt farið mjög leynt og
vilja yfirvöld ekki gefa upp
hvort þau hafa fengið vopn eða
ekki.
Kjarnorkutilraunir Suður-
Afríkumanna fara fram á tveim
stöðum suður af Pretoríu.
Amin vill hafa
sendirað í Höfn
Idi Amin Ugandaforseti vill
hafa sendiráð fyrir land sitt í
Kaupmannahöfn. Þetta kom fram
í útvarpinu í Uganda og í frétt-
inni sagði einnig að sendiráðið í
Kaupmannahöfn ætti að vera
fyrir Norðurlöndin.
Lise Östergaard ráðherra sagði
að þau lönd sem færu fram á það
að fá að opna sendiráð í Dan-
mörku væru alltaf boðin velkom-
in. Ráðherrann sagði að ekki
hefði verið um beint samband
danskra stjórnmálamanna og
starfsbræðra þeirra í Uganda að
ræða undanfarið en í febrúar á
þessu ári hafi stjórnvöld sent boð
til Kaupmannahafnar þess efnis
að sambandi yrði komið á milli
landanna.
Amin hefur þegar útnefnt
sendiherra sem á að hafa aðsetur
í Kaupmannahöfn. Hann heitir
James Baga. Starf hans á að vera f
því fólgið að halda á lofti nafni
ríkisins og stuðla að því að heiðri
Úganda verði haldið á lofti á
Norðurlöndunum.
Nú innan skamms kemur sendi-
nefnd frá Uganda til Danmerkur
en eftir þeim upplýsingum sem
utanríkisráðuneytið I Danmörku
hefur fengið frá Uganda er ekki
hægt að segja hverjir það eru sem
eru í sendinefndinni en væntan-
lega eru það mestmegnis menn
sem eru í viðskiptaerindum.
Idi Amin forseti Uganda hefur þegar valið sendiherra sinn sem á að hafa aðsetur f Kaupmannahöfn.
Hér er hann í hópi góðra vina.
SIGMA linsur
passa á flestar reflex myndavélar
SIGMA linsur eru japanskar og í hæsta gæðaflokki.
SIGMA zoom og aðdráttarlinsur eru með
Macro stillingu, (taka aljt að 1/2).
SIGMA linsurnar mæla allar á fullu Ijósopi.
SIGMA linsur eru Multihúðaðar.
SIGMA linsur eru til í eftirtöldum stærðum:
nim. f2,8 -18 mm. f3,2 - 24 mm. f2,8 - 28 mm. f2,8 - 35 mm. f2,8
135 mm. f2,8 - 200 mm. f3, f4 - 300 mm. f4 - 500 mm. mirror f8 -
Zoom linsur: 39-80 mm. f3,5 - 80-200 mm. f3,5 -120-300 mm. f5,6
SIGMA linsur fást hjá: Reykjavík: GEVAFOTO, Austurstræti 6.
Hafnarfjörður: LJÓSMYNDA & GJAFAVÖRUR, Reykjavíkurvegi 64.
Vestmannaeyjar: KJARNI s.f.