Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 11.08.1977, Qupperneq 13

Dagblaðið - 11.08.1977, Qupperneq 13
13 l)A('.BI.Al)H). KIMMTUDACUK 11. ACÚST 1977. Iþróttir róttir róttir I i bjargar á línu. DB-mynd Bjarnleifur. mdrun í igu Vals áfjórumárum 4-0 Valsmenn náðu úr einni skyndi- sókn sinni að bæta við fjórða markinu — Ingi Björn lék laglega á þrjá varnarmenn IBV — brunaði að marki, frá honum fór knötturinn til Alexanders Jóhannessonar sem sendi áfram til Ottós Sveinssonar er skoraði af stuttu færi, 4-0. Mörkin hefðu sannarlega getað orðið fleiri — þannig komst Hörður Hiimarsson tví- vegis inn fyrir vörn ÍBV en mistókst i bæði skiptin. — Það skipti ekki máli — sigurinn var í höfn og Valsmenn hljóta að teljast ákaflega sigurstrang- legir í úrslitunum gegn Fram — en minnugir þess að leikir þessara Reykjavíkurfélaga hafa i gegnum árin ávallt verið ákaflega jafnir og skemmtilegir er bezt að láta alla spá- dóma lönd og leið. Valur er því rétt eins og Fram í fimmta sinn í úrslitum — og fjórum sinnum hafa Valsmenn sigrað. Lið Vals var í gærkvöld ákaflega .jafnt — byggt upp af sterkum, vel leikandi einstakiingum. Það var hins vegar ekki dagur IBV í gær — liðið náði sér aldrei á strik. Það sást aldrei hið létta og skemmti- lega spil. Þess í stað langar sendingar er varnarmenn Vals áttu aldrei í vandræðum með. Þeir báru af í liði ÍBV landsliðsmaðurinn Ölafur Sigur- vinsson og Sigurlás Þorleifsson er tók oft skemmtilega spretti — en dagurinn var i heild einfaldlega ekki dagur ÍBV. h halls. íþróttir Dalglish frá Celtic til Evrópumeistara Liverpool Evrópumeistarar Liverpool keyptu í gærkvöld skozka lands- iiðsmanninn Kenny Dalglish fyrir rúmlega 400 þúsund sterlingspund — eða sem svarar um 140 milljónum króna. Þessi kaup Liverpool eru nýtt met fyrir leikmenn á Bretlandseyjum — og Kenny Dalglish á greinilega að koma í stað Kevin Keegan sem seldur var til Hamburger. Kenny Dalglish leikur sinn fyrsta leik fyrir sitt nýja félag á laugardag — þá á Wembley gegn bikarmeisturum Manchester United. „Það er vissulega gaman að vera kominn til félags eins og Liverpool. Vissulega lét Liverpool miklar fjárfúlgur fyrir mig en ég óttast það ekki — ég mun ávallt gefa allt mitt — alltaf eins og þegar ég hef leikið fyrir Celtic,“ sagði Dalglish í samtali við BBC í gærkvöld. Já, það er greinilegt að Evrópu- meistarar Liverpool ætla sér stóra hluti á komandi keppnistímabili — en hið síðasta var hið glæsileg- asta í glæstri sögu Liverpool — Englandsmeistarar, Evrópumeist- arar meistaraliða og í úrslitum FA-bikarsins á Englandi, en Liverpool tapaði fyrir Mancester United í úrslitum þrátt fyrir að hafa verið mun betra liðið á vellinum. Tony Brook, framkvæmdastjóri Manch. City, er nýlega keypti enska landsliðsmanninn Mike Channon, sagði eftir þau kaup að hann vonaði að Channon væri sá herzlumunur er City vantaði á síðasta leiktímabili og að hann væri viss um að framundan væru velgengnisár hjá City — sér í lagi vegna þess að nú hefði City Channon og Liverpool misst Kevin Keegan. En Liverpool hefur nú svarað — með kaupum á Kenny Dalglish. Fróðlegt verður að sjá viðureign þessara risa enskrar knattspyrnu i vetur. Skotar hafa nú valið landsliðs- hóp gegn A-Þjóðverjum. En þar er Kenny Dalglish að sjálfsögðu meðal leikmanna. Landsliðshópur Skota gegn A-Þjóðverjum er þannig: Markverðir: Routh, Partick, Stewart Leeds. Aárir leikmenn — Buchan, Man. Utd., Dalglish Liverpool, Donachie Man. City, Forsyth Rangers, Gemmill Derby, Graham, Leeds en hann keypti Leeds nýlega frá Aberdeen, Hartford, Man. City, Jardine Rangers, Johnston WBA, Jordan Leeds, McGrain Celtic, McQueen Leeds, Macari Man. Utd., Masson QPR, Rioch Everton, Wark Ipswich. Útilíf &íflURr Þolir 200 kg. Kr. 19.580.- SANDKASSAR W. Ný gerð af hjóla- skautum Kr. 7.770.-

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.