Dagblaðið - 11.08.1977, Síða 14
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. AGUST 1977.
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIMIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIHI
Oreiða á gögnum
stjórnmálaflokkanna
Eitt af þeim málum sem
Zetulið Alþingis þandi sig sem
mest útaf á undanförnum þing-
um, var hvort setja ætti lög um
framtalsskyldu stjórnmála-
flokka og láta þá greina frá
fjárreiðum sínum. Um þetta
var þvargað alllengi og ef ég
man rétt komst málið ekki í
höfn frekar en frumvarp um
prestskosningar. Þetta mál var
þannig tilkomið að Mogginn
ætlaði að sanna uppá
Alþýðubandalagið viðtöku
Rússagulls og klekkja þannig á
Þjóðviljanum. En Þjóðviljinn
sneri vörn í sókn og fór að rifja
upp ýmis skuggaleg sambönd
íhaldsins og Moggans við
erlend auðfélög og CIA. Bent
var óspart á það að sjálfur for-
sætisráðherra væri einn af
aðalriddurunum við hringborð
Mútu-Bernharðs af Lockheed.
Málið féll út af vinsældalista
þingzeta þegar þjóðþrifamál
eins og Zetan komust á dagskrá
og enginn fór illa út úr um-
ræðunum nema Alþýðu-
flokkurinn en á hann þótti
sannað að hann hefði þegið fé
frá dönskum krötum.
Þetta var eitt af þeim málum,
sem þingzetar notuðu til að
skvetta úr klaufunum og losa af
sér flokksklafann svona til til-
breytingar. Eins og gefur að
skilja er út í hött að ætla sér að
sanna upp á stjórnmálamenn
eða flokka viðtöku fjármagns
frá erlendum auðfurstum því
slíkar greiðslur eru alltaf fald-
ar í formi umboðslauna eða
álíka fyrirbæra sem ég kann
ekki einu sinni að nefna, nema
þá og því aðeins að viðkomandi
stjórnmálamaður sé því
heimskari. Lög um þetta yrðu
því í besta falli dauður
bókstafur en í versta falli að
athlægi og skrípaieik. Þau
myndu alla vega ekki koma að
neinu gagni.
Það væri mun mikilvægara'
að skylda íslenska stjórnmála-
flokka til að afhenda
Þjóðskjalasafni öll gögn sín og
fundargerðabækur á nokkurra
ára fresti og jafnvei skylda þá
til að halda skýrslur um starf-
semi sína. Það væri svo á valdi
viðkomandi stjórnmálaflokks
hvort öll gögnin yrðu gerð
opinber strax að lokinni af-
hendingu og skráningu, eða
hvort einhver viðkvæmnismál
yrðu innsigluð nokkurn tima
eftir afhendingu.
Skjalaverðir Þjóðskjala-
safnsins sögðu mér, að til
skamms tíma hefðu aðeins ver-
ið til á safninu tvær fundar-
gerðabækur íslensks stjórn-
málaflokks og voru þær frá
Sjálfstæðisflokknum gamla. Nú
hefur bæst við myndarlegur
bunki af skjölum og fundar-
gerðabókum frá Fylkingunni.
Þetta eru samt sem áður einu
heimildirnar sem til eru
aðgengilegar fyrir almenning
um innra starf stjórnmála-
flokka á Islandi, ef frá eru talin
blöð og tímarit og svo þau opin-
beru gögn sem flokkarnir gefa
út, en þau eru oft verri en ekki
neitt sem heimildir. Svo virðist
sem allar heimildir um innra
starf þeirra stjórnmálaflokka
sem nú er búið að leggja niður
séu týndar og tröllum gefnar,
hvar eru t.d. fundargerða-
bækur thaldsflokksins,
Kommúnistaflokksins, og
Þjóðvarnarflokksins svo nokkr-
ir hópar séu nefndir.
Það er alvarlegt mál ef stór
þáttur úr stjórnmálasögu 20.
aldar á að týnast vegna van
hirðu á heimildum, skilnings-
leysis á gildi þeirra eða beinna
skemmdarverka. Það er
áreiðanlega til í dæminu að
stjórnmálamenn láti fundar-
gerðir hverfa af ótta við að í
þeim sé eitthvað sem kæmi illa
út í minningar- og afmælis-
greinum, eða breytti þeirri
mynd sem þeir eru búnir að
byggja upp af sjálfum sér.
Sagnfræðingar framtíðarinnar
sætu þá uppi með sárt ennið og
Kjallarinn
Guðmundur J.
Guðmundsson
heldur takmarkaðar heimildir
um stjórnmálasögu 20. aldar.
Það eina sem þeir hefðu á að
byggja væru hinar þrautleiðin-
legu og átakanlega lágkúrulegu
ævisögur íslenskra stjórnmála-
manna, sem flestar eru
markaðar hinum hræðilega at-
vinnusjúkdómi sem herjar á
þennan hóp, minnisleysinu. Það
hafa þeir nefnilega allir sam-
eiginlegt að muna aldrei neitt
sem máli skiptir. Það er
verðugt verkefni fyrir heil-
brigðiseftirlitið að grafast fyrir
um orsakir þessa sjúkdóms og
uppræta hann.
Hér hefur fyrst og fremst
verið fjallað um óreiðu á fund-
argerðum og gögnum stjórn-
málaflokka, en menn gætu
spurt sem svo: „Til hvers að
vera að afhenda gögn til
varðveislu ef ástandið á söfnun-
um er þannig að nær ógerlegt
er að komast að þeim eða þau
liggja undir skemmdum vegna
lélegra aðstæðna?" Síðan
hreyta menn einhverjum
skömmum í skjalaverði og for-
stöðumenn safnanna. Það er
sjálfsagt rétt að víða er pottur
brotinn í stjórnun skjalasafna á
íslandi, en höfuðsökin liggur
ekki í söfnunum sjálfum,
heldur hjá framverði íslenska
auðvaldsins, ríkisstjórninni og
fjárveitingarvaldinu.
Sú var tiðin, í byrjun þessar-
ar aldar, að íslenska borgara-
stéttin sem rétt var búin að
slíta barnsskónum reis upp,
barði sér á brjóst og tilkynnti
heiminum um tilveru sína, hún
væri fulltrúi sjálfstæðrar
þjóðar með gamla og merka
menningararfleifð. Undir
forustu glæstra leiðtoga og eld-
huga úr hópi ungra mennta-
manna hófst þessi unga og
óreynda stétt handa við fram-
kvæmdir þótt hún stæði uppi
með tvær hendur tómar, og við
Hverfisgötu reis glæsilegt
safnahús á tveim árum. Síðan
hefur mikið vatn runnið tií
sjávar, stéttin er orðin forrík
og komin vel á elliheimilis-
aldurinn, eldmóðurinn í
menningarmálum er löngu
horfinn en i staðinn er kominn
eldmóður í peningamálum.
Framvörður stéttarinnar, ríkis-
stjórn og alþingismenn, sem
áður var skipaður stéttarinnar
mestu andans mönnum er nú
skipaður liði sem vafi leikur á
að sé læs og kann varla að
skrifa nema upp á vafasamar
ávísanir og víxla. Alla vega
ríkir þar fullkomin menningar-
leg deyfð og áhugaleysi. For-
sætisráðh. mundi ekki eftir
neinni annarri bókmennta-
tilvitnun í áramótaávarpi
sinu en einni setningu úr
Gullna hliðinu, (honum var
nefnilega boðið á frum-
sýningu) og einn af forustu-
mönnum iðnrekenda afhjúpaði
algjöra fáfræði sína í sjónvarps-
sal er hann rausaði í langan
tíma um „ítalska leikritaskáld-
ið Gógóló.“ Menn nákomnir
þessum hóp heyrast jafnvel
tala um það opinberlega að
leggja beri niður kennslu við
Háskólann í óarðbærum grein-
um eins og bókmenntum,
félagsfræði og sagnfræði en
leggja aðaláherzluna á greinar
sem „tengjast atvinnuvegunum
og þjóna þeim.“
Þannig er nú komið fyrir
söguþjóðinni, heimildir um
sögu hennar á síðustu öld liggja
undir skemmdum vegna hirðu-
leysis ráðamanna og sumir
þeirra tala um að hætta rann-
sóknum á sögu hennar og bók-
menntum vegna þess að þær
gefa ekkert í aðra hönd? Skyldi
ekkert minna en sósíalísk
bylting duga til að snúa þessari
þróun við?
Guðm. J. Guðmundsson.
sagnfræðinemi.
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIMIIIMI
í Verzlun < Verzlun Verzlun j
UJJmobelec
auto electrics,
Fullkomnasta electroniska kveikjan á markaðinum.
Motor magazine kaus MOBELEC númer 1 yfir allar aðrar
kveikjur prófaðar. VOLVO valdi MOBELEC eftir miklar
prófanir og selja öllum sinum viðskiptavinum.
MOBELEC framleiðir sérstaka gerð af kveikju fyrir
kappakstursbila og kvartmílubila og öll TRYLLItæki.
MOBELEC er frægt fyrir „LIFE-TIME" GUARANTEE.
LÍFSTÍÐARABYRGÐ.
KINKAUMBOÐ A ÍSLANDI, STORMUR IIF.
Dugguvogi 19 Reykjavik, sími 31260,
pósthólf 381.
Bilað loftnet = léleg mynd
Sjónvarpsviðgerðir
Gerum við flestar gerðir sjónvarps-
ta'kja, m.a. Nordmende, Radio-
nette, Fergusson og margar fleiri
gerðir. Kmniim heim ef óskað er.
Fljót og góð þjónusla.
Loftnetsviðgerðir
Léleg mynd = bilað tœki.
SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN S/F
Þórsgötu 15 — Sími 12880.
MKISTARA-
MERKI
w
SATA sandblásturssettið er serhannaö tyrir bila-
iönaöinn, en hentar einstaklega vel í mörgum
öörum iðngreinum. Ryðhreinsun af t.d. bílrenn-
um „body“samskeytum, felgum o.þ.h. verður
leikur einn með SATA. Þeir sem hafa hug á að
tryggja sér tæki eru vinsamlegast beönir að hafa
samband sem fyrst.
SATA sprautukönnur eru einnig væntanlegar.
Sandblásturssett - áætlað verð kr: 29.000.-.
Sprautugrímur áætlað verð kr: 6.000.-.
Remaco hf.
Skcljabrckku 4. Kópavogi, sími 44200.
c I 2
LIQUIMOLY
Olíubæti-
efnið aftur
Höfum tekið að okkur einkaumboð fvrir LIQUI MOLY
GMBH í Þýzkalandi. '
Utsölustaðir: SHELL og ESSO bensínafgreiðslur. einnig
allar helztu smurstöðvarnar.
LIQUI MOLY var staðfest sem bezta oliuba'tiefnið á
markaðnum af öllum olíubætiefnum sem þýzku bileig-
endasamtökin létu rannsaka sérstaklega. en það voru 7
helztu merkin á markaðnum, ba'ði í Evrópu og Banda-
ríkjunum.
ST0RMUR HF einkaumboð á íslandi.
Dugguvogi 19 Revkjavik. sími 31260. pósthólf 381.
LICENTIA-VEGGHÚSGÖGN
UQE
STRANDGÖTU 4 SÍMI 51818 — HAFNARFIRÐI