Dagblaðið - 11.08.1977, Síða 24

Dagblaðið - 11.08.1977, Síða 24
TCina leiðin tii að mynda Karl Bretaprins var úr lofti. Þaðan sýndist hann svo sem ekki mikiu stærri en eitt rykkorn úr ruslafötu Drottins. Uppi á bakkanum stendur jeppabifreið og þar fyrir ofan sátu lögreglumenn í bil sínum. DB-mynd Ragnar Th. Drottningar gæta 30 þúsund manns — sonar hennar gætt af þrem komið við íHofsá þar sem Karl Bretaprins unir sér hið bezta og mokveiðir lax Á meðan Elísabet Breta- drottning vísiterar Norður- Irland með þrjátíu þúsund manna liði öryggisvarða og lög- reglumanna, stendur sonur hennar úti í Hofsá í Vopnafirði og veiðir lax-Varðlið hans er öllu fámennara en móður hans, — tveir íslenzkir lögreglumenn og einn brezkur lífvörður. Blaðamenn Dagblaðsins brugðu sér til Vopnafjarðar og hugðust nálgast prinsinn en það reyndist með öllu ókleift. „Ríkisarfinn er hér á landi til að hvíla sig,“ sagði Brian Booth, gestgjafi prinsins. „Hann er í fréttunum á hverj- um degi allan ársins hring svo hann verður einnig að hvíla sig frá ykkur.“ Booth var þá að því spurður hvort hann vildi taka að sér að mynda prinsinn við veiðarnar. Hann hló við og svaraði: „Við hötum nú aldrei íhugað þann möguleika. Ég skal spyrja hann að því.“ — Það svar varð neikvætt. Brian Booth er fyrrverandi major í brezka hernum. Hann hefur tekið Hofsáí Vopnafirði á leigu mörg undanfarin ár. Síðustu þrjú sumur hefur Karl ríkisarfi heimsótt hann. Fyrsta sumarið var hann aðeins þrjá daga á landinu. í fyrra stóð hann við tveimur til þremur dögum lengur. Nú verður hann við veiðar i Hofsá í fjórtán daga. -AT- Kindakjötsfall er það næsta í landbúnaðarmálunum — og nú neyðast þeir sem aðhyilast nautakjöt og hrossakjöt að leggja slíkt át á hilluna um sinn. Neyzla á kindakjöti hefur minnkaö um 10 prósenf: Nú er það kjötfjall Lengi vei var talað um smjörfjall en nú hleðst upp "kjöt- fjall af óseldu kindakjöti. Neyzlan á kindakjöti hefur minnkað um ein tíu prósent, að sögn Agnars Guðnasonar, blaðafulltrúa bændasamtakanna. Líkur eru til að um 1200 tonn verði enn óseld af dilkakjöti, þeg- ar að slátrun kemur að sögn Agnars. Fólk hefur borðað meira af nautakjöti en nú er það búið. Framleiðendur nautakjöts kvarta um tiltölulega lágt verð sem þeir fái fyrir sinn snúð. Reiknað er með að skortur verði á nautakjöti einnig á næsta ári. Hrossakjötið er einnig búið. Þvi vænta bændur þess að fólk fari aftur að borða meira kindakjöt. Verðið hækkar á nýja kjötinu en það gamla yrði ódýrara. Með þessum ráðum á að eyða kjötfallinu og svo er hægt að flytja eitthvað út. 3459 tonn af kindaköti voru óseld 1. júlí. Af því voru 2956 tonn dilkajöt, 74 tonn af vetur- gömlum og sauðum og 429 tonn ærkjöt. Ekkert verður flutt út í þessum mánuði. -HH. Banaslys íReyðarfirði: Missti valdá mótor- hjóli sfnu Tuttugu og sjö ára gamall maður frá Brú á Jökuldal, Hr^fh Halldórsson, beið bana í umferðarslysi við Njörvadalsbrú í Reyðarfirði um hádegisbilið i gær. Hrafn var á leið á mótor- hjóli, sem hann tók próf á í gærmorgun, upp á Egilsstaði frá Eskifirði. Brúin er í krappri beygju og virðist sem Hrafn hafi ekki náð beygjunni og farið áfram út í ána. Læknar á Egilsstöðum sem skoðuðu lík hans, töldu hann haf.a hálsbrotnað og látizt samstundis. Feðgar frá Reyðarfirði komu að brúnni nokkru eftir að slysið varð. Sáu þeir hjólið í ánni og vildu gæta að því. Fundu þeir þá Hrafn heitinn og höfðu þegar sam- band við lækni og lögreglu. ökukennarinn ók á eftir Hrafni heitnum upp á Egils- staði, en fór fram hjá Njörvadalsbrú'án þess að sjá nokkuð athugavert, enda háttar þannig til að niður f ána sést aðeins úr hægra framsæti bifreiðar, skv. upp- lýsingum lögreglunnar á Eskifirði. -<)V. frfálst, úháð dagblað FIMMTUDAGUR 11. AGtJST 1977 Svíarefstirá EM-bridge — ítalirgeta enn ógnað þeim Italir þurfa að vinna Svía stórt til þess að eiga möguleika á fyrsta sætinu i Evrópumótinu í bridge sem nú er á lokasprettinum I Helsingör I Danmörku. Svlþjóð hefur nú 294 stig en' ítalir 275 stig. Övæntur sigur Ungverja yfir ítölsku sveitinni i gær dró verulega úr sigurmögu- leikum Itala. Ungverjar unnu 13- 7. Urslitin í leiknum milli Itala og Svía sem hófst í morgun eru lik- leg til þess að skipa þessum þjóðum í endanleg sæti i þessari keppni. I 18. umferðinni unnu Islend- ingar Pólverja með 15-5. Sveit Islands er nú í 17. sæti með 133 stig eftir tap ofan á tap í undan- förnum lejkjum. Næstir á undan Islendingum eru Austurríkis- menn með 136,5 stig. Næstir á eftir þeim eru Grikkir með 114 stig. Israel, Danmörk og Noregur keppa um 3. og 4. sætið.Staðan eftir 18 umferðir hjá þessum þjóðum er: Israel: 251 stig, Dan- mörk: 235 stig og Noregur: 227 stig. f kvennaflokki ieiðir ítalska sveitin með 199 stig en næst er sú brezka með 197 stig. - BS Skák á Lækjartorgi: Stórskotaliðið mætirallt Meðal þeirra sem nú hafa til- kynnt sig til skákmóts Mjölnis á Lækjartorgi á morgun má nefna stórmeistarana Friðrik Ölafsson og Guðmund Sigurjónsson. Þá má nefna Helga Ölafsson sem nú er hálfur alþjóðlegur meistari, Guð- laugu Þorsteinsdóttur, Norður- landameistara kvenna og Jón L. Árnason, Islandsmeistara og Norðurlandameistara unglinga.' Aðrir verða flestir landsliðsmenn og má nefna Björn Þorsteinsson, Margeir Pétursson, Ingvar Asmundsson o.fl. Verður þetta eitthvert sterkasta mót sem haldið hefur verið hér til þessa. - G.S. Látinn maðurréð honumað kaupa miða fékkfimm milljón króna vinning Fimm milijonir króna fékk Keflvíkingur einn I Happdrætti Háskólans í síðasta mánuði. Miðann hafði hann keypt eftir að hann dreymdi nýlátinn vin sinn, sem virtist ráða honum eindregið til að auka við miðaeign sina. Maðurinn keypti trompmiða og nú var hann sem sé heppinn. Með sjálfum sér hafði hann heitið því að ekkja vinar hans skyldi fá tiunda hlut vinninga sem á_.mi_ðana kæmu. I gær fékk hann féð í sínar hendur hjá umboðs- manninum í Keflavík og. ekkjan fékk óvænt hálfa milljón í sínar hendur. -emm/JBP.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.