Dagblaðið - 13.09.1977, Qupperneq 4
4
r
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1977.
............. ' '
VERÐTRYGGÐUR LÍFEYRISSJÓÐUR
VAR10-11% HLUNNINDIUM 1960
EN GILDIÞEIRRA FER ÞVERRANDI
— rætt við Höskuld Jónsson ráðuneytisst jóra um samningamál ríkisstarfsmanna
Njóta ríkisstarfsmenn meiri
hlunninda en annað launafólk?
Vmsir hafa álitið svo og af því
tilefni ræddi DB við Höskuld
Jónsson, formann samninga-
nefndar ríkisins í kjaradeil-
unni við ríkisstarfsmenn. Um
hvort ríkisstarfsmenn nytu
hagstæðari lífeyrissjóðsrétt-
inda en aðrir, sagði Höskuldur
Jónsson, að könnun á því máli
hefði einu sinni farið fram. Var
það í kjaradeilu verkfræðinga
rétt upp úr 1960.
Niðurstaðan varð sú, að ríkið
greiddi 10-11% meira vegna
lífeyrisréttinda sinna starfs-
manna en aðrir launagreið-
endur.
Síðan hefur þetta nokkuð
breytzt. Nýir lífeyrissjóðir hafa
verið stofnaðir með lögum og í
kjarasamningum. Utborganir
úr þeim flestum vegna lífeyris
eru verðtryggðar í reynd, þó
svo að samkomulag þar um
gildi aðeins til skamms tíma
hverju sinni.
Höskuldur Jónsson benti á,
að í fyrri kjarasamningum við
ríkisstarfsmenn hefðu
samningamenn ríkisins bent á
betri kjör opinberra starfs-
manna hvað varðar lífeyrissjóði
og mætti kannski segja, að þeir
hafi sætt sig við nokkru verri
launakjör þess vegna.
Einnig taldi Höskuldur að
verðtryggð lífeyrisréttindi
færu að hafa þverrandi gildi í
samanburði um kjaramál vegna
þess að almennt er stefnt að
verðtryggðum lífeyrisgreiðsl-
um til allra landsmanna.
Um lánskjör úr lífeyris-
sjóðum opinberra starfsmanna
sagði Höskuldur að tæplega
væru þau hagstæðari en úr
mörgum lífeyrissjóðum á
hinum frjálsa launamarkaði.
Sagði hann að lánsupphæðir
hefðu mjög oft verið lægri úr
lífeyrissjóði ríkisins. I sumum
tilfellum væri að vísu lengri
lánstími hjá ríkinu.
Lánskjör væru orðin sam-
bærileg hjá ríkinu að því leyti
að annúítetslánum væri hætt
fyrir nokkrum árum. Aftur á
móti væri sá háttur hafður á
hjá lífeyrissjóði rfkisins, að
afborganir væru engar fyrstu
tvö árin. Þyrftu lántakendur
því aðeins að greiða vextina þá.
Höskuldur Jónsson benti á,
að enginn gæti orðið félagi f
lífeyrissjóði opinberra starfs-
manna fyrr en við 20 ára aldur.
Til að öðlast lánsréttindi þyrfti
að vera fimm ár f sjóðnum...
Ymsir sjóðir aðrir byðu aftur á
móti upp á lán eftir þrjú ár.
ÖG
V
Læriö
að
fljúga
Flug ur hoillandi tómstundagaman og
oftirsóknarvort starf. Ff þú hofur
áhuga á flugi þá ort þú volkominn til
okkar í roynsluflug — það kostar þig
ekkert.
Æií/omz/f
uamla flugturnlnum
Keykjav ikuri'lugvolli
Siini 2S122.
Handgref ígóðmálma
Bikara, peninga, barnaramma - skeiðar
-mól, klukkur og margt fleira.
HELGI SN0RRAS0N
11 rt IU.R \l \H1
\l'STl 'KS'I K I 1 1 6. 2. II l ll MMI 293X0
Óskum aðráda
sendla í bíla
v/dreifingu blaösins á tímabilinu
ca. 12-14 eða 13-15 eh.
Upplýsingará afgreiöslu DB sími 27022
mmiAÐin
Einkaritaraskólinn
slarfsþjálfun skrifslofufólks.
KJAKNI V: Knska. Ensk bréfritun. Verzlunarenska.
Pilmanspróf.
K.I AKNI B: Almenn skrifstofustörf. Skrifstofutækni.
SEK.NÁMSKEH): C. Bókfærsla— I). Vélritun — E.
Notkun skrifstofuvéla — F. Kennsla á reiknivélar — G.
Meóferð tollskjala — H. íslen/.ka, stafselning
, , Brautarholt 4 — sím: 11109
Mllllir (kl. 1-7 e.h.)
Skrýtið ökutæki tekið úr umferð
Klukkan 18.35 á laugardaginn
tók lögreglan í Árbæ „ökutæki"
nokkurt úr umferð. Varla var
hægt að sjá hvað þetta var en
lögreglan taldi þó að upphaflega
mundi þetta hafa verið Skodi. Það
vantaði þó ýmislegt á Skodageyið,
t.d. smáatriði eins og bretti og
hús. Á þessu höfðu þó tveir piltar
þeyst á allt að 80 kflómetra hraða
á klukkustund og skemmtu sér
vel. Þeir voru ekki ölvaðir, bara
haldnir ólæknandi bfladellu.
-DS.
Stóra myndin er af bílnum góða
eftir að lögreglan tók hann f sína
vörzlu. En litla myndin sýnir
piltana á þeysispretti.
DB-myndir Sv. Þorm.
Mynd
frá
liðnu
sumri
Það er gott að fá alpahúfuna
hennar mömmu sinnar lánaða til
þess að sólin brenni ekki litla
kollinn loksins þegar hún skfn.
Gott er að leika sér úti á stétt f
góða veðrinu.
DB-mynd Ragnar Th.
-A.BJ.