Dagblaðið - 13.09.1977, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1977.
5
Það er leikur að læra —
einkanlega með spilamennsku
—Litið inn hjá kennurum sem kynna sérnýstárlega aöferð við kennslu
Að því er að minnsta kosti
stefnt þessa dagana. Haldið er
svokallað verkstæði þar sem
kennurum er kennt að búa til alls
konar spil og annað þess háttar
sem síðar má nota við kennslu.
Segja má að þá sdu skilin milli
náms og leikja orðin næsta lítil.
í Miðbæjarskólanum í Reykja-
vik er framhaldsnámskeið í slík-
um spilatilbúningi. Byrjað var í
Æfinga- og tilraunaskóla
Kennaraskólans en hann varð að
rýma fyrir kennslu og þá farið
niður í Miðbæjarskóla. Þegar við
komum þar voru nokkrir kennar-
ar að læra þessa flóknu list. Þeir
sátu sjálfir og spiluðu, því bezt
mun að kynnast öllu af eigin
raun. Þóra Kristinsdóttir kennari
leiðbeindi okkur nokkuð með spil-
in, en ef vel hefði átt að vera
hefðum við þurft að vera allan
daginn til þess að æfa okkur.
Þau spil sem við sáum voru
mest þannig, að fyrir að lesa rétt,
Þóra sýnir okkur kapal sem felst i því að mynda fjögurra stafa orð úr
stöfunum sem upp koma.
»y@s
Sýnishorn af hinum nýju kennslutækjum. DB-mynd Hörður.
Kennararnir léku sér sjálfir til þess að læra spilin betur.
starfa rétt eða reikna rétt eða
hvað það nú var sem spilið snerist
um, fengu börnin viss verðlaun.
Fyrir að gera það sama rangt
misstu þau af verðlaununum en
fengu oftast nokkrar sárabætur.
Við spurðum Þóru hvort ekki
væri mun auðveldara að læra
lestur, reikning, tungumál og
fleira með þessu lagi. Ekki sagðist
hún vita það svo gjörla en hitt
vissi hún að mun auðveldara og
skemmtilegra væri að kenna
börnunum með þessum hætti. Það
er ekki bara námið sem verður að
leik barnanna heldur verður
kennslan hreinn leikur fyrir
kennarana.
- DS
MMBIAÐIÐ
trjúlat.áhid dagblua
Smáauglýsingar
BIABSINS
ÞverholtiH sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld