Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 13.09.1977, Qupperneq 13

Dagblaðið - 13.09.1977, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGWU3. IÁHUGA KRIFA laríkjamanninn túdentum í vetur Hann er með háskólapróf i trúar- bragðasögu og sálarfræði hann Dirk Dunbar. Langar mest ti! að skrifa og er að hugsa um að stunda nám við Háskóla íslands í vetur.Astæðan fyrir því að hann kom hingað til ísiands er sú að hann ætlar að leika með körfu- knattleiksliði stúdenta í vetur. in skilji ð eftir” ngar um nýja iþjálfarann Síðasta keppnistímabil lék hann með áhugamannaliði í Michican í Banda- ríkjunum og annaðist þjálfun „high- school“liðs. „Þegar við réðum Andrew Piazza til okkar höfðum við í körfuknattleiknum hjá KR það helzt í huga að einhver árangur yrði til frambúðar af starfi hans hér á landi,“ sagði Kolbeinn Pálsson í viðtali við DB í gær. „Við vorum þess vegna ekki endilega að leita að stórum miðherja, sem styrkti meistaraflokkslið okkar sem mest,“ sagði hann ennfremur. Við spurðum Kolbein um fjárhags- legan kostnað við að fá erlendan þjálfara allan veturinn. Sagði hann að heildarkostnaðurinn færi ekki fram úr þeirra upphæð sem þjálfun allra flokka KR í körfuknatt- leik mundi kosta ef ráðnir væru inn- lendir þjálfarar. „Enda fást þeir heldur ekki núorðið fyrir þær greiðslur, sem við treystum okkur til að bjóða,“ sagði Kolbeinn. „Þessir menn eru eltir af skattayfir- völdum og þær kröfur sem gerðar eru núna til launa ráðum við ekki við.“ Andrew Piazza, hinn nýi þjálfari KR- inga, er kvæntur en þar sem eiginkona hans, sem einnig er kennari, hafði ráðið sig til starfa í vetur áður en íslandsferðin var ákveðin gat hún ekki komið með honum. Sjálfur hefur Andrew áhuga á að stunda nám við Háskóla Islands í vetur. íþróttir Umsjón: Ólafur Geirsson SEPTEMBER 1977. ' ___ 13 Sextánfaldir deildarmeistar- ar — nífaldir bikarmeistarar — Glentoran, írskir andstæðingar Vals, koma á morgun —forsala aðgöngumiða hafin Sextánfaldir Irlandsmeistarar og nífaldír bikarmeistarar er norður-írska liðið sem er and- stæðingur Vals í Evrópukeppni ■meistaraliða. Glentoran er eitt írægasta lið á Norður-lrlandi. .Spurningin er; tekst Vals- mönnum að sigra þá á fimmtu- daginn. Leikurinn hefst klukkan 6 á Laugardalsvellinum. Svo skemmtilega vill til að 1967, þegar Glentoran lék gegn Benfica frá Portúgal í heimaborg sinni Belfast varð aðsóknarmet þar. 43,000 manns komu á leikinn. Sama gerðist hér í Laugar- dalnum þegar Valsmenn léku gegn Benfica sællar minningar. Metaðsókn varð, rétt rúmlega 18.000 manns komu. Met sem lík- lega verður seint slegið. Norður-írarnir koma á morgun. Forsala á aógöngumiðum er hafin og heldur hún áfram við Útvegs- bankann í Austurstræti í dag. Einar Þórisson, kylfingurinn ungi úr Golfklúbbi Reykjavíkur, sem sló öllum eldri meisturum við í Isalkeppninni í Grafarholti um helgina. Einar lagði þá alla Einar Þórisson, ungur kylf- ingur úr Golfklúbbi Reykja- víkur, vann óvæntan sigur í Isal- keppninni sem fór fram i Grafar- holti um helgina. Sigraði hann kappa eins og Sigurð Pétursson og Sigurð Thorarensen. Einar lék 36 holurnar á 152 höggum, Sigurður Pétursson á 154 höggum og nafni hans Thoraren- sen á 160 höggum. 1. flokkinn vann Ölafur Gunnarsson Golfklúbbi Reykja- víkur, lék hann á 167 höggum. I kvennaflokki sigraði Jakobína Guðlaugsdóttir Golf- klúbbi Vestmannaeyja, lék hún á 177 höggum. Samkvæmt útreikningi blaða- fulltrúa Golfklúbbs Reykjavíkur léku hinir 79 þátttakendur í keppninni um helgina, samtals í 725 stundir. Taldist honum til að verðmæti þess tíma væri rúmlega 500 þúsund samkvæmt Dags- brúnartaxta. Hvað er eftir í 2. deild? Fimm leikir eru óleiknir ; deildinni. Eru það: Þróttur Neskaupstað — Reynir Sand- gerði, Þróttur Reykjavik — KA, Isfirðingar — Þróttur Neskaupstað, Selfoss — Viilsung- arm og Reynir Arskógsströnd gegn Armanni. Þarna sækir Ingi Björn Albertsson stíft að Arna Stefánssyni markverði Fram í bikarúrslitaleiknum á dögunum. Hvernig skyldi honum ganga í sókninni gegn vörn norður-írsku meistaranna Glentoran í Evrópuleiknum í Laugardalnum á fimmtudagskvöldið? ÓVÍST HV0RT JÓHANNES FÆR LEYFIGEGN N0RÐUR-ÍRUM — ekki berst svar við ítrekuðum fyrirspurnum Allt er enn í óvissu hvort Jóhannes Eðvaldsson fær leyfi stjórnenda Celtic, skozka liðsins sem hann leikur með, til að leika með landsliðinu gegn Norður-írum 21. þessa mánaðar. Knattspyrnusambandið ísl- enzka sendi skeyti út til Skot- lands fyrir helgi, nánar tiltekið á. föstudaginn, þar sem beiðni um keppnisleyfi fyrir Jóhannes var ítrekuð. Ekkert svar hafði borizt í gær- kvöldi. Óformlegt samþykki hafði borizt snemma í sumar frá þeim Celtic mönnum en á það er ekki að treysta. Dæmin eru of mörg um að stjórnendum erlendra at- vinnuliða hafi snúizt hugur í þessu efni. Sannarlega væri skarð fyrir skildi ef Jóhannes Eðv'aldsson yrði ekki með gegn Norður-Irum. Maðurinn, sem allir hafa verið sammála um að vantaði í lands- liðið gegn Hollendingum og Belgum: Til að tengja saman vörnina. Síðustu fregnir af honum benda til að hann sé í miklum ham. Bezta sönnun þess er stjörnuleikur hans gegn Glasgow Rangers, þar sem hann skoraði tvö mörk, þó ekki dygði það til sigurs fyrir Celtic á laugardaginn var. Enska knattspyman Blackburn Rovers-Blackpool 1-2 Bolton-Oldham 1-0 Brighton-Hull 2-1 Bristol-Luton 1-2 Charlton-Orient 2-1 Crystal Palace-Sunderland 2-2 Mansfield-Millwall 0-0 Notts County-Cardiff 0-0 Southampton-Burnley 3-0 Stoke City-Sheffield 4-0 Tottenham-Fulham 1-0 Man. City 5 4 1 0 12-2 Liverpool 5 4 1 0 9-2 Notth. For. 5 4 0 1 10-6 WBA 5 3 1 1 10-6 Man. Utd. 5 3 1 1 8-5 Leeds 5 2 2 1 9-8 Wolves 5 2 2 1 9-8 Ipswich 5 2 2 1 3-3 Norwich 5 2 2 1 6-7 Everton 5 2 1 2 8-6 Arsenal 5 2 1 2 5-3 Coventry 5 2 1 2 8-8 Aston Villa 5 2 1 2 6-8 QPR 5 1 2 2 7-6 Middlesb. 5 1 2 2 6-6 Leicester 5 1 2 2 2-8 West Ham 5 1 1 3 6-9 Chelsea 5 1 1 3 4-7 Bristol C. 5 0 2 3 2-6 Derby 5 0 2 3 2-8 Birmingham 5 1 0 4 3-9 Newcastle 5 1 0 4 5-12 2. deilóin Bolton 5 4 1 0 6-2 Tottenham 5 3 2 0 7-3 Stoke 5 3 1 1 8-3 Blackpool 5 3 1 1 1-7 Southampt 5 3 1 1 8-4 Brighton 4 3 1 0 5-3 Luton 4 3 0 1 10-3 C. Palace 5 2 2 1 9-5 Blackburn 5 1 3 1 5-3 Hull 5 2 1 2 5-4 Oldham 5 2 1 2 7-7 Sunderland 5 1 3 1 7-7 Charlton 4 2 1 1 7-10 Notts. C. 5 0 3 1 7-9 Orient 5 1 1 3 8-11 Fulham 5 0 3 2 1-4 Mansfield 5 1 1 3 4-7 Cardiff 4 0 3 1 2-5 Bristol R. 5 0 3 2 5-9 Sheff. Utd. 5 1 1 3 6-11 Millwall 5 0 2 3 3-8 Burnley 5 0 1 4 4-10 MOLASPORT Hólagarði — Breiðholti — Sími 75020 Áður Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar Allt fyrir skólafólkið í skólann Bækur, blöð, möppur og öll ritföng Leikf imibolir á stráka og stelpur — Leikfimibuxur, leikfimiskór Einnig íþróttafatnaður, íþróttaskór, boltar og aðrar íþróttavörur HÓLASP0RT Hólagarði — Breiðholti — Sími 75020

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.