Dagblaðið - 14.09.1977, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1977.
$
BRAGI
SIGURÐSSON
sæti listand þar. Sennilega
verður Þórarinn Þórarinsson
ritstjóri þar áfram og vaknar þá
spurningin um það hvort þær
' ........
Framboð framsóknarmanna íSuðurlandskjördæmi:
Skoraö á Einar
aðstæður kunni að skapast að.
Kristján Benediktsson færi í
framboð til Alþingis í Reykja-
vfk. - BS
Framsóknarmenn í Suður-
landskjördæmi leggja enn fast
að Einari Ágústssyni, utanríkis-
, ráðherra, að gefa kost á sér í
framboð við Alþingiskosn-
ingarnar næsta ár. Eins og DB
hefur skýrt frá áður var Einar
Agústsson á fundi að Hvoli
hinn 16. ágúst sl. Þar var ein-
dregið skorað á hann að gefa
kost á sér i framboð með undan-
geriginni skoðanakönnun eða
án hennar. Lýsti Einar því yfir
á þessum fundi að hann myndi
íhuga rækilega þessar
áskoranir.
Nú hafa framsóknarmenn í
Vestmannaeyjum lagzt á sveif
með Rangæingum og raunar
fjölda annarra flokksmanna
um að leggja fast að Einari um
framboð til Alþingis fyrir
Suðurlandskjördæmi.
Stjórn kjördæmissambands
framsóknarmanna hefur nú
svarað bréflega tilmælum
Framsóknarfélaganna í
Rangárvallasýslu þess efnis, að
efnt verði til skoðanakönnunar
eða prófkjörs um skipun i sæti
á framboðslista til Alþingis,
meðal annars um Einar Ágústs-
son. Hefur stjórn Kjördæmis-
sambandsins varpað boltanum
yfir til kjördæmisþings, sem
boðað hefur verið laugardaginn
22. október næstkomandi.
Hefur kjördæmisþinginu með
þessari boðun verið flýtt um
þrjár vikur vegna vaxandi
þunga áskorana um framboð
Einars Ágústssonar.
Rangæingum og Vestmanna-
eyingum þykir ekki annað
búðum er í stjórn Kaupfélags
Skaftfellinga. Jón og Erlendur
Einarsson forstjóri SÍS eru
mágar. Loks er Ólafur ólafsson
kaupfélagsstjóri.
Forystumenn f'ramsóknar-
manna eru eðlilega í nánum
tengslum við samvinnufélögin.
Það er eðlilegt, annað ekki.
Þeir eru því oftast frammá-
menn kaupfélaganna hver á
sínum stað, þótt ekki sé það
einhlítt. Það bagar þó til dæmis
ekki Halldór Ásgrímsson í
framboði, að hann skuli starfa
við Háskólann en ekki Kaup-
félag Austur-Skaftfellinga, eins
og Asgrímur faðir hans gerði.
Það myndi ekki spilla fyrir
Einari Agústssyni, að hann er
ekki ráðinn starfsmaður KRON
eða SÍS. Enginn efast um
tryggð Einars við samvinnu-
hugsjónir og hagsmuni þeirra.
Þegar nefndir eru forystu-
menn Framsóknar á Súður-
landi aðrir en fyrrverandi og
núverandi þingmenn verður
ekki gengið fram hjá Rangæ-
ingum eins og ölvi Karlssyni I
Þjórsártúni og Jóni R.
Hjálmarssyni, sem nú er orðinn
fræðslustjóri og fluttur til Sel-
foss. Þeir eru meðal þeirra sem
eru þess mest hvetjandi að
Einar verði fenginn í efsta sæti
listans.
Líklega hefur enginn einn
maður unnið upp fylgi Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík
eins og Einar Agústsson.
Honum hefði ef til vill verið
nokkur vandi á höndum, ef
hann hefði þurft að taka efsta
sæmandi en að Einar verði í
efsta sæti listans og telja það
raunar sterkasta framboðið.
Nokkurrar tregðu hefur gætt
um lok framboðsmála meðal
annars vegna þessa.
Þórarinn Sigurjónsson
bústjóri í Laugardælum, er nú
fyrsti þingmaður framsóknar-
manna í Suðurlandi, Jón Helga-
son í Seglbúðum annar. Af
forystumönnum heima í héraði
má nefna Ólaf Ólafsson, kaup-
félagsstjóra á Hvolsvelli, sem
hugsanlegan frambjóðanda. Þá
er orðið sterkt SlS-svipmót á
listanum, jafnvel þótt sr.
Sváfnir Sveinbjarnarson sé
nefndur um leið.
Þórarinn Sigurjónsson er
formaður stjórnar kaupfélags
Árnesinga og á sæti í stjórn
SÍS. Sem slíkur er hann i stjórn
Meitilsins hf. í Þorlákshöfn.
Minnir það á að skoðanir hafa
verið mjög skiptar um ráðstaf-
anir Meitilsins vegna rekstrar-
örðugleika. Starfsfólki var sagt
upp og togarinn Jón Vídalín
gerður út fyrir markað í Fær-
eyjum. Jón Helgason I Segl-
Jón Sigurðsson
Sigurðsson, viki sæti af sömu
ástæðum og þeim sem tilgreindar
eru í stefnunni. Hafnaði dómur-
inn þeirri kröfu og lauk störfum
með Jóni sem einum dómenda.
- BS
Iðnkynning:
Heimsöknir í
iðnfyrirtæki
Iðnkynning í Reykjavík
gefur almenningi kost á að
heimsækja iðnfyrirtæki undir
leiðsögn sérfróðra manna. Gef-
inn er kostur á þremur mis-
munandi ferðum og inniheldur
hver ferð heimsókn í þrjú
fyrirtæki. öllum eru opnar
þessar ferðir, en aðeins 20
manna hópar fara í hverja ferð.
Þeir sem áhuga hafa eru beðnir
að hafa samband við Iðn-,
kynningu í Reykjavík í síma
24473. Farið verður frá happ-
drættishúsi iðnkynningar I
Lækjargötu kl. 13 nokkra
sýningardaga og verður ein-
stakra ferða I fyrirtækin gerð
nánari skil í dagbók Dag-
blaðsins þá daga. -JH
Stvrkir til háskólanáms í Sviss
Svissíiesk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram í
löndum sem aðild eiga að Evrópuráðinu fimm styrki til
háskólanáms i Sviss háskólaárið 1978—79. — Ekki er
vitað fyrirfram hvort einhver þessara styrkja muni koma
í hlut islendinga. — Styrkir þessir eru eingöngu ætlaðir
til framhaldsnáms við háskóla og eru veittir til tíu
mánaða námsdvalar. Styrkfjárhæðin er 950 svissneskir
frankar á mánuði og auk þess fá styrkþegar allt að 500
franka styrk til bókakaupa. — Þar sem kennsla í sviss-
neskum háskólum fer fram annaðhvort á frönsku eða
þýsku er nauðsynlegt að umsækjendur hafi nægilega
þekkingu á öðru hvoru þessara tungumála. Þurfa þeir að
vera undir það búnir, að á það verði reynt með prófi. —
Umsækjendur skulu eigi vera eldri en 35 ára og skulu
hafa lokið háskólaprófi áður en styrktímabil hefst.
Umsóknir um styrki þessa skulu sendar menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 1. desember-
nk. á tilskildum eyðublöðum sem þar fást.
Menntamálaráðuneytið,
12. september 1977.
er álit Bandalags háskólamanna
Bandalag háskólamanna hefur
stefnt fjármálaráðherra, Matt-
híasi Á. Mathiesen, fyrir hönd
ríkissjóðs, til þess að þola ógild-
ingu á dómi Kjaradóms hinn 13.
maí sl. Mál þetta var þingfest á
bæjarþingi Reykjavíkur hinn 6.
sept. sl. Kjaradómurinn sem
stefnt er um fjallaði um kjör með-
lima BHM.
Stefnukrafan er byggð á
meintu vanhæfi eins dómenda í
Kjaradómi, Jóns Sigurðssonar,
forstjóra Þjóðhagsstofnunar. Er
hún grundvölluð á reglum um
ógildingu gerðardóma, meðal ann-
ars vegna vanhæfis dómara.
Jón Sigurðsson er, sem fyrr
segir, forstjóri Þjóðhagsstofn-
unar. I þvi starfi sínu hefur hann
að mati BHM tekið þátt í stefnu-
mótun fjármálastjórnar landsins,
haft afskipti af samningamálum
og yfirlýsingu varðandi kjaramál.
Telur BHM þessi afskipti Jóns
valda vanhæfi hans sem dómanda
í Kjaradómi, sem fyrr segir.
I kröfu BHM er ennfremur
byggt á því, að galli hafi verið á
málsmeðferð og því að niðurstaða
meirihluta dómsins hafi verið
byggð á röngum forsendum. Loks
er krafizt málskostnaðar úr hendi
ríkissjóðs í þessu stefnumáli.
Við meðferð máls þess, er
dómur Kjaradóms gekk í hinn 13.
maí sl., hafði BHM krafizt þess að
forstjóri Þjóðhagsstofnunar, Jón
Konungleg heimsókn á mánudaginn:
Belgísku konungshjónin
stoppa stutt á Bessastöðum
Baldvin Belgíukonungur og
drottning hans, Fabíóla, munu
heimsækja Island stuttlega á
mánudaginn kemur. Verða þau á
leið um frá Belgíu, en ferðinni er
heitið til Kanada.
Ráðgert er að einkaflugvél
þeirra lendi á Keflavíkurflugvelli
laust fyrir hádegið. Konungshjón-
in inuiiu heimsækja l'orseta Is-
lands og forsetafrúna á Bessastöð-
um. Ilaldið verður af stað kl.
13.30 til Kanada.
«C
Fabiola og Baldvin konungur.
Þau leggja sig fram um að blanda
geði viö þegna sína svo mikið sem
ha-gt er.
Þátttaka þjóðhagsst jóra í stefnumótun f jármálast jómar landsins:
GERIR HANN ÓHÆFAN TIL AÐ
VERA DÓMARI í KJARADÓMI