Dagblaðið - 14.09.1977, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 14.09.1977, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1977. 7 Erlendar fréttir Noregur: Borgaraflokkamir reyna myndun nýrrar stjómar — þeir fara f ram á stuðning Frjálslynda f lokksins sem fékk tvö þingsæti Strípaðir ferðamenn Fjórir ferðamenn, sem voru að baða sig naktir í sjónum fyrir utan eyjuna Krít, voru teknir fastir af lögreglunni á staðnum og stungið í fangelsi. Dómurinn yfir fólkinu var 40 daga fangelsi en þau skutu málinu til gríska forsetans og hann náðaði fjór- menningana. Leiðtogar hægri- og miðflokk- anna í Noregi byrja viðræður í dag um myndun nýrrar ríkis- stjórnar. Þessir þrír borgara- flokkar munu fara fram á stuðn- ing Frjálslynda flokksins sem hefur tvö sæti á þingi. Vegna úrslita kosninganna, sem voru jafnmörg þingsæti fyrir borgara- flokkana og Verkamannaflokk- inn, er Frjálslyndi flokkurinn í valdaaðstöðu, með sín tvö þing- sæti. Verkamannaflokkurinn sem hefur verið í stjórn i næstum 40 ár samtals vann mörg þingsæti. Hann hafði 42 sæti á þingi en nú hefur hann 76. Sá flokkur sem hefur verið með Verkamanna- flokknum i stjórn þurrkaðist næstum út en það voru vinstri sósíalistar. Þeir höfðu 16 þingsæti af þeim 155 sem eru á Stórþing- inu en misstu öll nema eitt. Forsætisráðherra Odvar Nordli sagði í nótt að hann myndi segja af sér ef borgaraflokkarnir gætu myndað meirihlutastjórn með stuðningi Frjálslyndaflokksins. Formaður frjálslyndra, Hammond Rossbach, sagði 1 nótt að flokkur hans vildi breytingu á stjórn en þrátt fyrir það myndi flokkurinn ekki vera í stjórnar- samstarfi með borgaraflokkunum eða styðja þá. Formaðurinn sagði að afstaða flokks hans til nýrrar stjórnar færi eftir því hvaða málefnum hún beitti sér fyrir en væru þau í anda flokks hans myndi hann styðja hana. Sköli Emils Kennslugreinar: Munnharpa, harmónika, melodika, píanó,—orgel,—gítar. Emil Adólfsson Nýlendugötu 41, sími 16239. Skjöl vegna réttar- halda Sacco og Vanzetti gerð opinber Lögreglan í Massachusetts í Bandaríkjunum hefur nú gert opinber skjöl vegna réttarhald- anna yfir Sacco og Vanzetti sem voru dæmdir til dauða í Banda- ríkjunum fyrir 50 árum. Menn- irnir voru innflytjendur frá ttaliu og álitnir stjórnleysingjar. Sagnfræðingar byrja nú að grúska í skjölunum til að reyna að fá fram í dagsljósið hvort menn- irnir hafi verið dæmdir saklausir eins og þeir héldu fram allan tímann. Mennirnir tveir voru dæmdir fyrir morð á gjaldkera og verði í skóverksmiðju árið 1920. Þeir áttu að hafa rænt 15 þúsund dölum en mennirnir neituðu statt og stöðugt að hafa framið verknaðinn. Nú reyna sögumenn að finna út hvort þeir hafi verið beittir órétti vegna þess að þeir voru útlendingar og vegna stjórn- málaskoðana sinna. A sínum tima tjáðu margir frægir vísindamenn sig fullvissa um að Sacco og Vanzetti hefðu verið dæmdir saklausir. Bernard Shaw, Albert Einstein, Marde Curie og H.C. Wells voru I hópi þeirra sem töldu þá saklausa. RAFMAGNSVEJTUR RÍKISINS AUSTURLANDSVEITA SELÁSI 8 EGILSSTÖÐUM SÍMI 97- 1300, 1301 Tilkynningtil rafverktaka á Austurlandi Rafveitur á Austurlandi. Rafmagnsveitur ríkisins og Rafveita Reyðarfjarðar tilkynna, frá og með 1. marz 1978 taka gildi reglur um rafverktakaieyfi. Starfandi rafverk- tökum á Austurlandi er bent á að kynna sér „skilyrði og skilmála til að öðlast rafverktakaleyfi" við framan- greindar rafveitur á Austurlandi. Upplýsingar varðandi rafverktakaleyfi eru veittar hjá, Rafmagnsveitum ríkisins Egilsstöðum c.o, Pétur Elísson, Rafveitu Reyðar- fjarðar c.o. Guðjón Þórarinsson. Rafverktökum sem ekki eru með rafverktakafyrirtæki sín skráð á Austurlandi eftir 1. mars 1978 er óheimilt að taka að sér raflagna- vinnu á framanskráðu orkuveitusvæði, nema samkvæmt rgfverktakaleyfi. Leiðtogar blökku- manna funda um málefni Ródesíu Leiðtogar blökkumanna í Ródesíu, Muzorewa biskup og Sithole prestur, áttu fund með forseta Malawi, Kumuzu Banda, í Blantyre þar sem þeir ræddu um hvernig fara ætti að því að beita Suður-Afríkustjórn meiri pressu og koma á fót meirihlutastjórn blökkumanna þar i landi. Fundur blökkumannaleiðtog- anna fylgdi í kjölfar fundar Ian Smith og Vorsters, forseta Suður-Afríku. Leiðtogarnir flugu til Malawi en ferð þeirra þangað var haldið leyndri vegna þess að Malawistjórn hefur ekki viljað blanda sér í átök milli blökku- manna og hvítra. Ferð blökku- mannaleiðtoganna hefur samt fallið í skugga fundar leiðtoga hvítu minnihlutastjórnanna í Suður-Afríku og Ródesíu. Það hefur komið fram hjá viðskiptaráðherra Suður- Afríku að svo geti farið að olíuinnflutningsbann verði sett á Suður-Afríku ef staðið verði á móti tillögum Breta og Banda- ríkjamanna sem þeir komu með til lausnar Ródesíudeilunni. Suður-Afriku.stjórn er talin hafa mikið að segja um það hvort Smith muni taka við til- logunum frá Brctum og Banda- rikjamönnum eða hvort hann muni hafa sinn hált á lausn málsins. Sithole prestur, einn af leiðtogum blökkumanna í Ródesíu. Læríð að fljúga Flug er heillandi tómstundagaman og eftirsóknarvert starf. Ef þú hefiir áhuga á flugi þá ert þú velkominn til okkar í reynsluflug — það kostar þig ekkert. gamla flugturntnum £■///s~> TjII/ ///- Reykjavikurflugvelli rlí/Cr//f/X /7f- Simi 28122. JŒZBQLL©CCQkÓLi BÚrU Jazzballett Kennslahefst Œj 19.sept.n.k. Síöustu innritunardagar Sími83730 njpg |io>i8Q30TiDgzzor J\

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.