Dagblaðið - 14.09.1977, Blaðsíða 6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBFR 1977.
Bílaval
Laugavegi 90—92, simar
19168—19092.
Sýnum og seljum í
dag og á morgun
Peugeot 504
árg. ’75, fallegan bíl.
Volvo 144
árg. ’71.
Chevrolet Vega
árg. 73
Citroén Amy 8
árg. ’73.
Fiat 127
árg. ’72.
Fiat 132
árg. ’73.
Okkur vantar bíla ó
söluskró strax.
Örugg þjónusta
framar öllu.
Bflaval
Laugavegi 90—92, vid
hliðina á Stjörnubiói, símar
19168 og 19092.
Bhutto
laus úr
fangelsi
Zulfikar Ali Bhutto fyrr-
verandi forsætisráðherra í
Pakistan, sem setið hefur í
fangelsi m.a. sakaður um
morð, var iátinn laus gegn
tryggingu í gær. Hann hafði
setið tíu daga i fangelsi og
hefur verið yfirheyrður
stöðugt. Gefin var út sú yfir-
lýsing að verið gæti að
Bhutto yrði handtekinn
aftur, fljótlega.
Þegar fyrrverandi for-
sætisráðherrann var laus
úr prisundinni sagði hann
að þeir sem færu með völd
nú í landinu væru sér ekki
hliðhollir.
Dómari í Lahore, höfuð-
borg Pakistan, sagði að
engin formleg kæra hefði
borizt á hendur Bhutto en
málið væri í athugun.
Bhutto hefur statt og
stöðugt neitað að vera
nokkuð viðriðinn morðið á
pólitískum andstæðingi sín-
um.
ENSKAN
fimmludag 23. sept.
Kennslan í hinum vinsælu ensku-
námskeiðum f.vrir fullorðna hefst
Bvrjendaflokkur — Framhaldsflokkar — Samtalsf lokkar
hjá Englendingum — Ferðalög — Smásögur — Bygging
málsins— Verzlunarenska M ' I L ' r
Síðdegistímar — kvöldtímar. iWalaSkOlinn
Símar 10004 og MIMIR
11109 (kl. 1-7) Brautarholti 4.
Skákfélagið Mjölnir
Vetrarmót
Vetrarmót félagsins hefst mánu-
daginn 19. sept. Síðasta umferð
verður tefld 21. nóv. Teflt í Fellahelli.
Biðskákir á fimmtudögum
Skrifstofa félagsins Pósthússtræti 13
er opin mánudag. þriðjudag, miðviku-
dag og föstudag kl. 5 til 7, sími 28633.
Súðavík
Dagblaðið óskar eftir að ráða
umboðsmann í Súðavík. Uppl. gefur
Sesselia Þórðardóttir í síma 94-6927
Súðavík og í síma 91-22078 Reykjavík.
BIAÐIÐ
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir
tilboðum í eftirfarandi háspennulínu-
efni í 132 kV háspennulínu, „Austur-
landslínu,“ frá Kröflu að Evrarteig í
Skriðdal:
A 101 Vír
A 102 Einangrar
A 103 Klemmur og festingar
A 104 Þverslár
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu
Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi
116, Reykjavík gegn greiðslu á kr.
5000.00
Tilboð eiga að berast skrifstofu Raf-
magnsveitna ríkisins fyrir mánu-
daginn 17. nóv. 1977 og verða opnuð
kl. 14.00
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegilló 105 Reykjavík.
Ræningjar Schleyers
fllAo — fimmtifresturinn
UlUa alcfl la rann út ínótt
t fimmta skiptið leið sá loka-
frestur sem mannræningjar
Schleyers gáfu yfirvöldum í
Þýzkalandi til að láta lausa úr
haldi 11 fanga sem sitja i fang-
elsum víðs vegar i Þýzkalandi
og hafa hiotið dóm fyrir hryðju-
verk. Svo virðist sem ekkert
hafi gerzt og mannræningj-
arnir hafa. ekki staðið við
hótanir sinar um að myrða for-
mann þýzka vinnuveitendasam-
bandsins, Hanns-Martin Schley-
er.
Mannræningjarnir sendu boð
til dagblaða og kröfðust þess að
11 félögum þeirra yrði sleppt
úr fangelsum, einnig að þeir
fengju farareyri og flugvél til
umráða til að komast úr landi.
Fréttamenn höfðu nánar
gætur á flugvöllum í Þýzka-
landi en ekkert óvenjulegt
hefur átt sér þar stað í nótt.
Þýzka stjórnin mun hafa sent
skilaboð til svissneska lög-
fræðingsins Denis Payot 1 nótt
en hann miðlar málum milli
ræningjanna og þýzkra yfir-
valda.
Friðarviðræður Araba og ísraelsmanna:
Bandarikjamenn vilja
þátttöku fulltrúa PLO
—ísraelsmenn segjast sætta sig við að þeir verði
ísendinefnd Jórdaníu
Stjórn Carters Bandaríkjafor-
seta segir að ekki sé hægt að líta
fram hjá stöðu palestínskra flótta-
manna, þegar talað sé um að leysa
deilumál landanna fyrir botni
Miðjarðarhafs. Stjórnin hefur
einnig undirstrikað vilja sinn um
að fulltrúar Palestínuaraba sitji
ráðstefnuna í Genf sem á að fjalla
um deilumálin.
Yfirlýsing stjórnarinnar í
Bandaríkjunum um málefni Mið-
austurlanda er sú ákveðnasta til
þessa varðandi málefni Palestínu-
araba. Þar er tekin ákveðin
afstaða um hvort fulltrúar þeirra
eigi að sitja fundinn I Genf.
Israelsmenn hafa ætíð mótmælt
því að fulltrúar Palestínuaraba,
og þá framámenn í PLO, sitji
fundinn.
I yfirlýsinunni sagði einnig að
allir sem fundinn sitji í Genf yrðu
að viðurkenna tilverurétt ísraels-
manna.
Þeirri kröfu hafa hins vegar
forsvarsmenn frelsishreyfingar
Palestínu vísað á bug. Israels-
menn hafa líka neitað að ganga
til samninga við PLO, frelsis-
hreyfingu Palestinuaraba.
Stjórnin í Israel gaf þegar út
tilkynningu þess efnis að hún
myndi samþykkja að fulltrúar
Palestinuaraba væru með
sendinefnd Jórdaniu á Genfar-
ráðstefnunni.
Sendiherra Egypta í Banda-
ríkjunum, Ashraf Ghorbal,
sagði að hann væri mjög ánægður
með yfirlýsingu Bandarikjanna.
Hann sagði að yfirlýsingin sýndi
að Bandaríkjamenn gerðu sér
fulla grein fyrir hve mikilvægt
væri að friður næðist í Miðaustur-
löndum.
Bandaríkin:
Carter hefur nóg að
gera að verja Lance
Talsmaður Hvíta hússins í
Washington, Jody Powell, sagði
að þrír háttsettir aðstoðarmenn
Carters Bandaríkjaforseta hafi
lesið nákvæma skýrslu um fjár-
mál Bert Lance en ekki talið
ástæðu til að skýra forsetanum
frá þessari skýrslu. Bert Lance
er góður vinur Carters forseta
og hann skipaði hann ráðgjafa
sinn þegar hann var kosinn
forseti. Nú hafa fjármál
Lance komizt I hámæli i Banda-
ríkjunum og Carter hefur verið
orðaður við hneykslismál vegna
þessa máls Lance.
Powell, talsmaður Hvita
hússins, sagði að starfsmenn
Hvíta hússins, þeir Jordan og
Lipschuts, hafi séð skýrsluna
um fjármál Lance en þeir
ákváðu að skýra Carter ekki frá
henni. Carter hefur skýrt frá
því að hann hafi ekkert vitað
um fjármál Lance vinar síns
þegar hann tók hann með sér til
Washington frá Georgíu.
Powell sagði að rannsóknarlög-
reglan hafi ekki talið það til
tiðinda þó að Lance og fjöl-
skylda hans hafi yfirdregið
bankareikning sinn um 450
þúsund dollara.
Þetta mál hefur verið mikið
til umræðu og hefur Carter for-
seti átt fullt í fangi með að
verja vin sinn. Annan hvern
dag heyrast raddir á þann veg
að Lance eigi að segja af sér
því embætti sem hann hefur
sem einn af ráðgjöfum
forsetans.
Lance er gamall vinur Carters forseta frá Georgíu,