Dagblaðið - 14.09.1977, Page 12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAG UR 14. SEPTEMBER 1977.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
fþróttir
Iþróttir
Letkni tókst ekki að vinna Grindvíkingiymoó fjórum miirkum »k þar af
leiðandi er Austri kominn i 2. deild. Myndin er úr leik I.elknis ok
Grindvikinga i rokinu í Kaplakrika í gærkvöldi.
Youri Uitchev með blkarlnn að loknum lelk gegn Fram. Með honum eru
Ingi Björn Albertsson og Sigurður D agsson.
ANDERLECHT OG EINTRJ
STÓRT í FYRSTU EVRÓPU
Evrópukeppnir félagsliða hófust i
gærkvöldi og unnu bæði Anderlecht
frá Belgíu og Eintracht frá Frank-
furt I V-Þýzkalandi yfirburðasigra.
Anderlecht frá Belgiu gjörsigraði
búlgarska liðið Lokomotiv Sofia
með 6 mörkum gegn einu 1 leik
liðanna í Sofia í gær.
Van Der Elst gerði f jögur mörk i
leiknum. Ahorfendur voru 25
þúsund.
Leikurinn er 1 liður I Evrópukeppni
bikarmeistara.
Eintracht Frankfurst frá Vestur-
Þýzkalandi hafði yfirburði 1 leik
sínum gegn Sliema Wanderers frá
Möltu.
Urslitin urðu 5-0. Leikurinn fór
fram I Frankfurt og voru áhorf-
endur fáir aðeins 5000.
Austri á Eskifirði er búinn að
tryggja sér annað sætið, sem losnar í
2. deild knattspyrnunnar næsta
sumar. Eru þau þá orðin tvö Austur-
landsliðin, sem leika í þeirri deild
að ári. Nágrannabæirnir Eski-
f jörður og Neskaupstaður.
Fyrir leik Leiknis, liðsins úr
Breiðholtinu i Reykjavik, og Grinda
vikur áttu hinir fyrrnefndu mögu-
leika ef þeir ynnu leikinn með
fjórum mörkum eða meira.
Sú von brást. Leik liðanna í
Kaþlakrika lauk að vísu með sigri
Leiknis, þrem mörkum gegn
tveimur. En það dugði ekki til og
Austri þar kominn i 2. deild.
Suðvestan hávaðarokið lék stórt
hlutverk í leiknum i Kaplakrika i
gærkvöld . Vindurinn stóð reyndar
þvert á völlinn þannig að það kom
jafnt niður á báðum liðum.
I fyrri hálfleik voru Grindvík-
ingar mun betri. 25 mínútna töf
varð á þvi, að leikurinn gæti byrjað,
vantaði annan línuvörðinn. Ur því
tókst að bæta en sannarlega ekki
þægilegt fyrir hina fáu áhorfendur
er ekki sátu inni I bifreiðum sínum
að norpu of lengi úti í kuldanum.
Fyrsta markið kom eftir varnar-
mistök hjá Leikni. Komst Pétur
Pálsson einn inn fyrir. Skaut lag-
lega að marki og í netinu lá knöttur-
inn eftir að hafa farið í stöngina.
Þrem mínútum fyrir lok hálf-
leiksins áttu Grindvikingar aðra
sókn. Þeir léku laglega i gegnum
allt of opna vörn Leiknis. Þorgeir
Rúnarsson átti tækifæri til að skora
en það rann út i sandinn.
Beint upp úr spyrnu markvarðar
Leiknis frá marki á sömu minútu
var knötturinn kominn til
Asmundar Friðrikssonar langt inn á
vallarhelmingi Grindvíkinga.
Tókst Asmundi að skora
jöfnunarmarkið án þess að úthlaup-
andi markvörðurinn kæmi vörnum
við.
Þannig var staðan í hálfleik 1
mark gegn 1.
Eftir gangi leiksins voru það
tæpast sanngjörn úrslit. Grind-
vikingar voru mun ákveðnari og
tókst á mun árangursrikari hátt að
hemja knöttinn I rokinu.
Hjá þeim voru háspyrnur út í
loftið mun óalgengari og oft brá
fyrir góðum tilraunum til leiks.
Helzt var það i kringum Björn
Birgisson, leikmann með mjög góða
knattmeðferð og gott auga fyrir
samleik.
Leiknismenn komu mun
ákveðnari til leiks eftir hlé — nú
skyldi barizt til þrautar.
Annað mark þeirra kom á 15.
mínútu, þegar Asmundur Friðriks-
son skoraði framhjá úthlaupandi
markverði.
2- 1 fyrir Leikni.
Enn bættu Leiknismenn þriðja
markinu við, þegar Þorsteinn
ögmundsson skaut á markið úr
þvögu.
3- 1 fyrir Leikni.
Grindvikingar löguðu stöðuna á
33. mfnútu, þegar Július P. Ingólfs-
son skaut af vítateigslinu og
knötturinn skreið rétt undir þver-
slána.
Staðan var orðin 3-2 fyrir Leikni
og þannig lauk leiknum, sem
kannski einkenndist helzt af suð-
vestanstorminum og opnum vörnum
beggja liða, þar sem illa var valdað
upp.
En hvað um það, Austri frá Eski-
firði var kominn I 2. deild.Leiknir
og Grindvikingar, sem léku i gær-
kvöldi fá tækifæri að ári. Knatt-
spyrnulega séð mun ekki vera
mikill munur á liðunum og Austra.
— segir Youri llitchev, þjálfari Valsmanna, sem leiðir liö sitt í
Evrópukeppni í Laugardalnum annað kvöld
„Já, ég tæki að mér þjálfun
íslenzka landsliðsins næsta keppnis-
timabil ef mér væri boðin staðan,“
segir Yourillitchev, sovézki knatt-
spyrnusérfræðingurinn, sem
þjálfað hefur Val undanfarin ár.
Ilitchev, sem á morgun leiðir
Valsmenn I Evrópuleiknum gegn
Glentoran, segir þetta og ýmislegt
fleira athyglisvert í viðtali við DB,
sem birtast mun í blaðinu á morgun.
Ilitchev segir i viðtalinu að hann
—viðtal íblaðinu
ámorgun
mundi vilja gegna stöðu landsliðs-
þjálfara ásamt núverandi stöðu
sinni hjá Val. Telur hann það
heppilegra og tryggja, að þjálfarinn
einagrist ekki frá þar sem hlutirnir
eru stöðugt að gerast.
Margt fleira kemur fram 1 viðtal-
inu við Yourillitchev, bæði um Vals-
liðið, íslenzka knattspyrnu almennt
og árangur landsliðsins i sumar og
hvort mögulegt væri að ná betri
árangri en hingað til.
Lesið viðtalið við dr.Yourillitchev
þjálfara Valsmanna, það birtist á
Íþróttasíðu DAGBLAÐSINS á
morgun.
Knötturinn fauk í marl
sigur Þróttar var í h
— 9 vindstig og ofsaveður réði ferðinni á Norðf
Markmaður Reynis frá Sandgerði
sá sér ekki annað fært en að snúa
sér undan veðrinu og láðu honum
það fáir. Reyndar var það aðeins
það sama og flestir aðrir leikmenn
leik Reynis og Þróttar, Nes-
kaupstað, gerðu svo oft i leiknum.
Astæðan var 8-9 vindstiga
hávaðarok og tilheyrandi mold- og
sandrok á vellinum í Neskaupstað.
En þegar rokhviðunni, sem verið
er hér að tala sérstaklega um, linnti
þá lá knötturinn i netinu hjá Reyni,
markverðinum til mikillar furðu.
Siðast þegar hann sá knöttinn
NOTTHINGHAM KEYPTIPETER
SHILTON FYRIR100 MILLJ.
Peter Shilton varamarkvörður
ensKa t,».tíMii.i tit; iú .'tkaimns
tíma aðalmarkvörður hjá Stoke City
undirritaði samninga um sölu til
Nottingham Forest. Söluverðið er
270.000 sterlingspund, eða tæpar
100 milljónir íslenzkra króna.
Samkomulag hafði komizt á milli
fi'lagaima i siðustu viku um málið
en undirskriftir töfðusl er Shilton
krafðist 5000 punda aukagreiðslu
við samningsgerð. Jafngildir það 1,8
milljónum krónum.
Shilton var um tfma aðalmark-
vörður hjá enska latidsliðinu eða
þar til Liverpool leikmaðurinn Ray
Clemence tók við af honum.
Siðustu fjóra leiki Stoke City lék
hann ekki með aðalliðinu. 1 stað
hans lék Roger Jones og hefur hann
ekki enn þurft að hirða knöttinn úr
r.etinu.
áður höfðu samherjar hans verið að
hefja leik með honum að nýju eftir
aó heimamann höfðu skorað jöfnun-
armarkið 2-2.
Þar sem það var gert á 43. minútu
gafst Reyni ekki kostur á að jafna
og úrslitin urðu 3-2 heimamönnum i
vil.
Reynismenn léku undan yindi 1
fyrri hálfleik og gerðu bæði sín
mörk þá. Voru þar þeir Pétur
Sveinsson og Ari Arason að verki.
Annars setti hávaðarok og
moldrok mestan svip á leikinn.
Þórhallur Jónasson gerði fyrsta
mark Þróttara fljótlega í byrjun
síðari hálfleiks. Komu þeir mjög
ákveðnir til leiks og greinilega
ákveðnir í að hvorugt stigið skyldi
koma þeim Suðurnesjamönnum í
Reyni að gagni.
MUNDIÞJALFA LANDSUÐIÐ
EF MÉR VÆRIBODIN STAÐAN
AUSTRI í 2. DEILD
NÆSTA ÁR
Leiknir náði ekki 4 marka
sigri írokinu íKaplakrika