Dagblaðið - 14.09.1977, Side 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1977.
15
Unnandi íslenzkrar
poppmenningar:
Útihljómleikar
ættuaðvera
hljómsveitunum
að kostnaðarlausu
t>ao er orðíð heldur seint að
fjalla nokkuð um útihljóm-
leika hljómsveitarinnar Eikar,
sem haldnir voru á Lækjar-
torgi fyrir tæpum tveimur vik-
um. Vegna þeirra hafði þó
sannur unnandi íslenzkrar
poppmenningar samband við
Dagblaðið og bað um að koma
eftirfarandi á framfæri:
í frétt í Dagblaðinu fyrir
nokkru mátti lesa hálfgerðan
undrunartón vegna þess hve
fáar hljómsveitir notuðu sér
það að halda útitónleika í
Reykjavík. Staðreyndin er sú
að vafalaust er vilji flestra
fyrir hendi en slíkt hljómleika-
hald kostar peninga.
Kostnaður alls er um 50.000
krónur og það er peningur
ennþá, þó að merkilegt megi
y.irðast.
í þessum 50 þúsund kalli er
innifalinn kostnaður við að
flytja sviðsvagn Reykjavíkur-
borgar, kostnaður við að flytja
hljóðfæri hljómsveitarinnar til
og frá þeim stað sem hljóm-
leikarnir fara fram á og loks
laun rótara. Vagninn er lánað-
ur endurgjaldslaust.
Það er í sjálfu sér lofsvert að
borgin láni sviðsvagninn án
þess að taka fé fyrir, en ég tel
Lárus Grímsson og Pétur Hjaltested I Eik. Ahugamaður um
íslenzka poppmenningu telur að þeir og aðrir stéttarbræður
þeirra eigi ekki að þurfa að greiða fyrir að laða Reykvíkinga að
opnu svæðunum í borginni. DB-mynd: Bjarnleifur.
að henni væri ekki of gott að
borga kostnaðinn líka. Á
hverju ári er eytt milljónum
króna í að halda við skrúðgörð-
um eins og Miklatúni, Laugar-
dalsgarði og fleiri stöðum, sem
fólk sést varla á. Er þá nokkuð
fjarri Iagi að sami aðili greiði
kostnaðinn við að laða fólk á
staðina.
Það hefur sýnt sig á úti-
hljómleikum, bæði i fyrra og
hittifyrra að aðsókn var alltaf
góð og stundum mjög góð. Það
er því fyllsta ástæða yfirvalda
að létta enn frekar undir með
láglaunuðum hljómsveitar-
mönnum og um leið að llfga
stórlega upp á borgarbraginn.
HÖGNIER EKKIHREKKVIS
I frétt á poppsíðunni í sið-
ustu viku var lítillega minnzt á'
hljómsveit austan af landi,
sem nefndist Högni hrekkvísi.
Aðstandendur hljómsveitar-
innar hafa óskað eftir að sú
leiðrétting komi fram, að
hljómsveitin neiti einungis
Högni. Högni hrekkvísi sé allt
önnur hljómsveit. — Þá er
bara eftir að vita, hvernig að-
standendur Högna vissu að
skrifað var um þá en ekki
hljómsveitina Högna hrekk-
vísa.
PELIKAN & EINAR VILBERG. — A þeim sannast hið fornkveðna, að enginn er spámaður í sinu
föðurlandi, enda eftir myndinni að dæma enginn þeirra í föðurlandi, utan yfir að minnsta kosti.
%'á ^ v
■ * -' i'
Presley og Jerry Lee Lewis
björguðu lífí og limum
Pelikana og Einars Vilbergs
Hringferð hljómsveitar-
innar Pelikan og Einars Vil-
bergs um landið er nú lokið án
áfalla. Þó var anzi mjótt á
mununum einu sinni, að því er'
Dagblaðinu hefur verið tjáð.
Það gerðist föstudagskvöldið 2.
september, er hljómsveitin lék
1 Neskaupstað.
Orðrétt segir svo í heimild
Dagblaðsins:
„En í harðbakka sló þó í
Neskaupstað eftir dansleik sl.
föstudagskvöld. Varð flokkur-
inn fyrir aðsúg nokkurra
reiðra heimamanna, sem ekki
töldu tónlist Pelikan og Einars
Vilbergs beinlínis við hæfi
innfæddra. Voru hafðar á lofti
hótanir um allt frá kjafts-
höggum upp í flöskur í haus-
inn, ef hljómsveitin léki ekki
meira af léttara taginu kvöldið
eftir.
Eftir fögur loforð og miklar
fortölur tókst þeim félögum að
sleppa ósködduðum að gisti-
húsi kaupstaðarins og ganga til
náða.“
Meðlimir Pelikans hafa
væntanlega séð, að þarna urðu
þeir að laga sig að aðstæðum,
því að í bltið morguninn eftir
fengu þeir lánaðar nokkrar
plötur með Presley sáluga og
Jerry Lee Lewis. Síðan var æft
fram eftir degi og beztu lög
kappanna að sjálfsögðu
kópleruð vandlega.
Það var ekki að sökum að
spyrja að Pelikan sló hressi-
lega I gegn um kvöldið og stóð
gleðin langt fram eftir nóttu.
Margnefnd heimild Dag-
blaðsins, sem að sjálfsögðu
neitar að láta nafns síns getið,
sagði að ekki hefði verið laust
við að margri ungplunni hafi
vöknað um augu, er Pelikan og
Co óku á brott á sunnudags-
morguninn og settu stímið á
Hornafiörð.
►
COUNT BASIE FÆR SER
BÍTA. — A síðasta afmælis-
degi djassmeistarans Count
Basie steingleymdist að af-
mælisbarnið er með sykursýki.
(Jr þvessu var bætt I ár svo að
hann gat fengið sér bita með
hinum. Það var að loknum
hljómieikum I Detroit að þess-
ari flygillöguðu hnallþóru var
skotið inn á svið og' Count
beðinn að gera svo véi. 2000
aðdáendur hans voru staddir á
hijómleikunum og máttu fá
-sér bita. En 113 kilóa þung
tertan entist aðeins handa átta
hundruð manns. — Afmælis-
barnið varð 73ja ára gamalt.
OrTIME