Dagblaðið - 14.09.1977, Síða 24
Unnið af krafti á norræna sjónvarpinu:
Við eigum að ná sjö
stöðvum í tækin okkar
— með tiltölulega einföldum aukabúnaði
„Þó norrænt sjónvarp um
gervihnetti sé ennþá á umræðu-
stigi er unnið af fullum krafti
við þær tilraunir sem flestir
eru fullvissir um, að verði
undanfari þess að allir Norður-
landabúar eigi þess kost með
tiltölulega ódýrum aukabúnaði
að velja sér sjónvarpsefni beint
frá gervihnetti," sagði Erik
Mánsson einn af ritstjórnar-
mönnum sænska blaðsins
Expressens. Hann var hér á
ferð á dögunum og leit þá við
hjá DB.
Mánsson sagði að fyrir til-
stilli Norðurlandaráðs væri
undirbúningur þess máls i góðu
gengi og ýmis fyrirtæki önn-
uðust rannsóknir og tilrauna-
smíði til fullprófunar mögu-
leikans.
Nú er helzt gert ráð fyrir að
gervihnettirnir fyrir Norður-
löndin verði tveir eða þrir,
þannig að móttökuskilyrðin
verði alls staðar vel viðunandi.
Með sérstökum loftsnetsút-
búnaði sem sjónvörpin eru
siðan tengd geta sjónvarps-
hafar valið úr sjö dagskrám,
tveimur frá Svlþjóð, tveimur
frá Finnlandi og einni frá Dan-
mörku, Noregi og Finnlandi.
Hinn sérstaki útbúnaður er
falinn i skálarlaga loftnet með
hóflegu þvermáli ásamt tiðni-
og tónbreyti. Kvað Mánsson þá
skoðun hafa komið fram i Svi-
þjóð að útbúnaður þessi myndi
kosta 1000-1500 sænskar
krónur eða 45-65 þúsund
krónur islenzkar.
Eins og áður hefur komið
fram í DB er þetta fyrirhugaöa
norræna sjónvarp algerlega
óháð jarðstöð hér á landi. Jarð-
stöðin hér er fyrst og fremst
byggð til að skapa tryggt sima-
og fjarskiptasamband fyrir
sima o.fl. Jarðstöðin skapar
islenzku sjónvarpi og útvarpi
og möguleika til að bæta sam-
keppnisaðstöðu sina við þær
sjónvarpsstöðvar sem sjón-
varpseigendur i framtiðinni
geta náð beint frá gervihnetti,
hvar sem þeir búa á Norður-
löndum.
Með sameiginlegu norrænu
sjónvarpi um gervihnetti, sem
gefur möguleika til vals milli
dagskrárefnis ýmissa landa,
eru Norðurlandaþjóðirnarekki
að brjóta neitt blað 1 þróun
sjónvarpsmála. A meginlandi
Evrópu eru tilraunir með sjón-
varpssendingar, sem sjónvarps-
eigendur ná beint frá gervi-
hnöttum, komnar enn lergra og
þar verður sllku sambandi
komið á fyrr en á Norðurlönd-
um. Með þeirri áætlun sem
unniö er að fyrir tilstilli
Norðurlandaráðs er aðeins
verið að halda i við aðrar og
stærri þjóðir varöandi þróun
málanna.
ASt.
f-“5' Óskemmtileg lífsreynsla
„Það er hrein klára vitieysa og
ekkert annað sem fær menn til
þess,“ sagði Ben Abruzzo i samtali
við blm. DB er hann var spurður
að þvi h«'að fengi menn til þess að
fljúga i loftbelg yfir Atlantshafið.
„Við höfum flogið brátt saman 1
25 ár á flugvélum okkar sem viö
eigum heima iAlbuquerqueog eig-
um vonandi eftir að fljúga áfram
lengur," hélt Abruzzo áfram þar
sem þeir félagar sátu i svitunni á
Hótel Loftleiðum og virtu fyrir
sér flugleiðina á stærðarinnar
landakorti sem lá á gólfinu.
„Skammt fyrir sunnan Græniand
lentum við í skýjaþykkni og sáum
hvorki tillands né niður i sjóinn
fyrr en við brotlendinguna I
mynni Isafjarðardjúps."
„Við munum áreiðanlega halda
áfram flugi iloftbelgjum, þó við
munum aldrei leggja upp i lang-
ferð sem þessa. Þá munum við
eingöngu nota heitaloftsbelgi, en
ekki heliumbelg eins og þennan.
Nú eru u.þ.b. þúsund loftbelgs-
flugmenn 1 Bandarikjunum og
nota þeir allir heitaloftsbelgi."
Kváðu þeir flug sem þetta yfir
Atlantshafið og til meginlandsins
—sem þeir vildu ekki upplifa oftar
Abruzzo bendlr á staðlnn þar sem lægðln hreif þá suður af Grænlandi
og hrakti þá f stóran hrlng yflr hafinu, Anderson talar hins vegar
glaðhiakkalegur f sfmann við kunningja sinn vestan hafs.
(DB-mynd BJarnlelfur).
flugvélum og loftbelgjum aðeins
tómstundagaman. Fjármögnuðu
þeir ferðalagið að mestu sjálfir úr
eigin vasa en auk þess höfðu þeir
með sér eitt þúsund frimerkt
umslög, stimpluð í Massachusetts,
þaðan sem þeir félagar lögðu upp
og verða þau siðan aftur stimpluð
hér.
Eiginkonur þeirra Anderson og
Abruzzo bíða þeirra á hóteli í
London og flugu þeir utan i morg-
un til fundar við eiginkonur
sinar. -BH.
1 gærkvöldi huðu loftbelgsmennlrnir tveir löndum sfnum á Kefla-
vikurflugveili sem unnið höfðu að björgun þelrra, til velzlu i
Krystalsal Hótels Loftleiða. Alls voru þetta um 40 manns. Björgunin
var að þvi leyti mjög söguieg að þyrlan fiaug beint af lendingarstaðn-
im heim að hóteiinu þar sem loftbelgsfararnir komust fótgangandi f yl
og hlýju hótelsins. -DB-mynd Sv. Þorm.
geta verið hið ánægjulegasta i
góðu veóri, en eins og nú háttaði
hefði þetta verið miður ánægju-
leg lifsreynsla, sem enginn gæti
trúað nema sá sem hefði lent í
slíku, þetta vildu þeir ekki þurfa
að upplifa aftur. Voru þeir orðnir
blautir og kaldir eftir útivistina
er þeim var bjargaö upp í
þyrluna, og enn i gærmorgun var
i þeim talsverður hrollur.
Starfa þeir báðir að viðskiptum
í heimabæ sínum, Aibuquerque i
Nýja Mexicó og er flugið bæði i
25.156 eintök
Upplag Dagblaðsins var að
meðaltali 25.156 eintök á dag á
siðasta þriggja mánaða tíma-
bili, mai, júni og júli. Er það
1.142 eintaka aukning frá
næsta þriggja mánaða tfmabili
á undan, þegar upplagið var
24.014.
Meðalupplag Dagblaðsins er
nokkuð misjafnt eftir dögum. A
siðasta þriggja mánaða timabili
vaf upplagið á mánudögum
27.652 eintök að meðaltali,
24.753 eintök á þriðjudögum,
23.803 eintök á miðvikudögum,
24.596 eintök á fimmtudögum,
26.698 eintök á föstudögum og
22.372 eintök á laugardögum.
Dagblaðið hefur ásamt
Morgunblaðinu undirritað
samning við Verzlunarráð
Islands um nákvæmt eftirlit
með prentuðu, dreifðu og seldu
upplagi dagblaðanna. Þessi
samningur var smiðaður i
fyrravetur á sameiginlegum
fundum dagblaðanna, stærstu
auglýsingastofanna og Verzl-
unarráðs.
Þjóðviljinn hefur neitað að
undirrita samninginn. Timinn,
Vísir og Alþýðublaðið hafa hug-
leitt málið i fjóra mánuði, en
ekki lagt enn í að undirrita.
í Víðsjá útvarpsins í kvöld kl.
19:35 verður m.a. rætt um
upplagseftirlitið.
fijálst, úháð riaghlsð
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPT1977.
Prófkjör
Alþýðuflokksá
Reykjanesi:
Örn
Eiðsson
bættist
íhóp fram-
bjóðenda
I prófkjöri Alþýðuflokksins um
tvö efstu sætin á lista í Alþingis-
kosningum verða sjö menn. DB
hefur áður skýrt frá því að Jón
Armann Héðinsson, alþingis-
maður, gefur kost á sér í efsta
sætið, og að þessir menn bjóða
sig fram í 1. og 2. sæti: Karl
Steinar Guðnason, Hilmar Jóns-
son, Olafur Björnsson og Kjartan
Jóhannsson. Þá gefur Gunn-
laugur Stefánsson kost á sér í 2.
sætið og loks örn Eiðsson, deild-
arstjóri í Tryggingastofnun
rikisins, í 2. sætið.
Prófkjörið fer fram dagana 8.
og 9. október næstkomandi, á
kjörstöðum í Mosfellssveit, á
Seltjarnarnesi, i Kópavogi,
Hafnarfirði, Grindavik, Njarðvik,
Keflavik, Sandgerði og ef til vill
fleiri stöðum.
Slökkviliðið
4 sinnum
á fleygiferð
Slökkviliðið var fjórum
sinnum kallað út frá kl. 5 í
gær og fram yfir miðnætti. I
öllum tilfellum var um
lítinn eld að ræða og tjón
lítið sem ekkert. Fyrsta
kallið kom frá bílaverkstæði
í Armúla 34. Þar kviknaði i
út frá logsuðutæki sem verið
var að vinna með. Næsta kall
kom kl. 20.17. Þá var eldur í
rusli við Múlaborg í Armúla.
Þá kom kall kl. 21.04 frá
Plastgerð við Grensásveg 7.
Hafði eldspýtu verið kastað
inn í viftu og brann hún.
Hugsanlegt er að sömu
aðilar hafi kveikt i í Armúla
og á Grensásvegi. Siðasta
kallið kom kl. 00.18 frá
Fiskimjölsverksmiðjunni á
Kletti. Þar hafði kviknað í
mjölþurrkara. Góður út-
búnaður kom i veg fyrir
meiri eld og tjón.
•ASt.