Dagblaðið - 01.10.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 01.10.1977, Blaðsíða 1
3. ÁRG. — LAUGARDAGUR 1. ÓKTÖBER 1977 — 216. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMULA 12. AUGLÝSINGAR ÞVERHOLTI 11, AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — AÐALSÍMI 27022, Ódýri maturinn kemur sjá nánar um matarfríðindi ekki á skattskýrsluna opinberra starfsmanna - bls. 5 „Fari það til helvítis, ég hætti þessu” Þá er jólabókaflóðið að fara af stað og ekkert ómerkari maður en Halldór Laxness ríður á vaðið. í gær var boðað til blaðamanna- fundar með Halldóri vegna endurútkomu þýðingar hans á Vopnin kvödd eftir Ernest Hemingway. Texti Halldórs á þessu verki hefur hlotið almenna viðurkenningu sem snjallasta þýðing á erlendu nútímaskáld- verki, þótt bókinni hafi verið illa tekið af ýmsum stafsetningarpost- ulum og kreddumönnum er hún kom út fyrir 36 árum. „Vinna við þessa þýðingu var mér mjög erfið,“ sagði Laxness, „erfiðasta þýðing sem ég hef unn- ið við. Ég stóð oft upp frá borðinu og sagði: Fariþaðtil helvítis, ég hætti þessu. En éggafstekki upp og þetta tókst. Stundum skildi ég ekki Hemingway og þá hjálpaði Arni Guðnason mér. En þar kom að hann skildi ekki, en við vorum svo heppnir að þá var stríð hér og því margir Englendingar og Ameríkanar hér, margir hámenntaðir málfræðingar sem aðstoðuðu, þannig að ég hætti ekki fyrr en hún var rétt þýdd.“ -JH. Að vera eða ekki vera.... Hamlet á skjánum Hamlet Danaprins er f sjón- varpinu i kvöld i frábærri upp- færslu Slr Lawrence Oliviers. Sjá bls. 23. A bls. 12 og 13 er sagt frá Krónborgafkastala, sem er sögusvið harmleiks Shakespeares. Þar svifur andi Hamlets enn yfir vötnunum, — jafnvel þótt taiið sé að hann sé grafinn einhvers staðar á Jót- landsheiðum. Um hvað er kosið í alls- herjarat- kvæða- greiðslunni á sunnudag og mánudag — sjá bls. 7 í næturrallýi Alfa Romeo Bíllinn kostaði 2,2 milljónir og keppir við 19 aðra, m.a. tvo frá 1960 á f lunkunýjum Kristjánsson á VW Golf 1974 og síðan Jón R. Sigmundsson i sínum nýja Alfa Romeo árgerð 1978. Efstu keppendum er raðað eftir fyrri getu en meðal hinna er dregið um rásröð. Meðal þeirra er þátt taka er Ragnar S. Halldórsson fram- kvæmdastjóri Alversins. Hann ekúr í Lada Topaz 1973. Elztu bllarnir sem keppendur nota eru Skoda 1960 og Ford Galaxie 1960. • A.St. „Mér þykir mjög vænt um bilinn, en rallý er mitt áhuga- mál. Þess vegna legg ég bilinn i þetta, þó ég viti að það sé mikil þraut og strangt próf fyrir hann,“ sagði Jón R. Sigmunds- son sem verður einn 20 þátttak- enda sem Ieggja upp í lengsta og erfiðasta rallý sem haldið hefur verið á Islandi. Með Jóni I bílnum er Dröfn Björnsdóttir en þau hafa áður tekið þátt I rallýkeppni með góðum ár- angri, orðið nr. 4 tvivegis og síðast í 3. sæti. Jón og Dröfn aka i Alfa Romeo bil árgerð 1978. Hann kom úr kassanum á miðvikudag og var Jón R. búinn að aka honum600km í gær, m.a. Kalda- •dalsleiðina — eða síðari hluta keppnisleiðarinnar. Billinn kostaði 2,2 milljónir. Var Jón hæstánægður með farartækið, kvað hann liggja sérlega vel og um öræf i undirbúningsvinna að baki er keppnin hefst. Keppnin hefst kl. 6 i dag við Loftleiðahótelið. Fyrstur fer Ómar Ragnarsson af stað á Simca 1100 1974, siðan Vilmar fara beygjur vel á hvaða hraða sem er. Jón var búinn þremur varadekkjum, nýrri keðjugerð og i nestið hefur hann vitneskj- una um það að Alfa Romeo bíl- arnir eru heimsfrægir fyrir árangur sinn í Monte Carlo- kappakstrinum. Okuleiðin er 950 kilómetrar og verður leiðin lögð að baki á ca 18 klst. Mikill hluti leiðar- innar er ekinn í myrkri. öku- leiðin er víða mjög erfið og gerir miklar kröfur bæði til ökumanna og farartækja. Svartasta tíma næturinnar nota þátttakendur til að þræða villu- gjarna slóða á Fjallabaksleið nyrðri. Þar er að finna allar tegundir vega og vegleysa, ár, snjó, aurbleytu, stórgrýti, sandfok o.s.frv. Allir keppendur hafa ekið leiðina áður, sumir oft. Hjá þeim og öðrum liggur því mikil

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.