Dagblaðið - 01.10.1977, Blaðsíða 15
Tívolí
Grindavik
Hljómsveitin Tívolí leikur í kvöld.
Guðfaðir trommuleikaranna, Guðmundur Stein-
grímsson, mœtir og sólar með Óla.
Fjölmennið og takið parísarhjólið með.
Dúndrandi sœtaferðir fró BSÍ og Torgi Keflavík.
Fyrr mó nú sleppa en grósleppa.
Glslason, l'ryggvi
A HALLÆRISPLANINU — Aðstandendur Fjörefnis eru, talið frávinstri, Páll Pálsson,
Hlibner. Asgeir Öskarsson og Jóhann Þórisson. DB-mynd Hörður Vilhjáimsson.
Nikki
Róberts
Jón
Þór
NOKKUR ORÐ
UM ÁRBLIK.
„Astæðan fyrir því, að
ég skrifa þessar línur er sú
að fimmtudaginn í fyrri
viku fór ég í Klúbbinn.
Þetta kvöld voru hljóm-
sveitirnar Pelikan og Tí-
volí auglýstar, en ein-
hverra hluta vegna spilaði
Arblik.
Mig langar aðeins að
vekja athygli á þeim fram-
förum sem hljómsveitin
virðist hafa tekið á þeim
tíma sem ekkert hefur frá
henni heyrzt. Ég vil ein-
dregið hvetja þá félaga til
að halda áfram á þeirri
braut sem þeir hafa mark-
að sér með frumsömdu
efni en ekki falla fyrir
freistingu „peningatónlist-
ar“, eins og svo margir fyr-
irrennarar þeirra.
Það þarf vissulega hug-
rekki til að leika eingöngu
frumsamin verk og lög á
dansleik nú orðið, en engu
að síður tókst þeim það fá-
dæma vel og eiga lof skil-
ið.
Svo vil ég þakka fyrir
margar áthyglisverðar og
mjög góðar poppsíður Dag-
blaðsins með von um að
þær verði jafnvel enn betri
i framtíðinni.
Virðingarfyilst, SSS
Jésú minn,
bara hjá sér.
maður fer
„Eg lýsi þvi yfir að ég hef
aldrei baðað mig í Læralæk, ég
hef aldrei hangið á Hallæris-
planinu í leit að skemmtun, ég
hef aldrei staðið i biðröð fyrir
utan Tónabæ og aldrei lifað það
upp sem unglingur að hafa
engan skemmtistað til að fara á.
Því segi ég það, að þessi plata
markar kynslóðaskipti í ís-
lenzkri tónlist." (HP)
Þessi orð manns á þrítugs-
aldri lýsa vel plötunni Fjörefni.
Aðstandendur hennar eru 4
fyrrverandi meðlimir hljóm-
sveitarinnar Daggar ásamt
ENN EIN ÚTGÁFAN AF
BLACKIS BLACK
ER ORDIN VINSÆL
Black Is Black nefnist lag,
sem varð mjög frægt fyrir ell-
'efu árum, þa flutt af hljóm-
sveitinni Los Bravos. Þetta lag
er enn á ný á enska listanum,
að þessu sinni með La Belle
Epoque. Nú er það í nokkuð
nútímalegri búningi en áður, —
komið með diskótakt og tilheyr-
andi krúsidúllur á fiðlur.
Black Is Black hefur nokkuð
heyrzt í diskótekum i Reykja-
vík og kannski víðar í þessari
nýju útsetningu upp á síðkast-
ið. Það var geysilega vinsælt á
Spáni í sumar og plötusnúðar,
sem brugðu sér í sólina, komu
með plötuna með sér heim.
Fyrr á þessu ári kom Black Is
Black einnig út í diskóútsetn-
ingu með Cerrone. Það hlaut
einnig þokkalegar undirtektir
þá. Fyrir þremur árum var lag-
ið einnig á ferðinni, — reyndar
undir öðru nafni og þá var það
sungið af Tinu Charles og
hljómsveitinni 5000 Volts. Þau
kölluðu lagið I’m On Fire. Síðar
kom það í sömu útsetningu og
með sama nafni, flutt af John
Gilstrap. Það má því með sanni
segja að á þessum ellefu árum
síðan Black Is Black var samið
hafi það verið fullnýtt.
Vinsældalistarnir þessa viku
taka litlum breytingum frá því
síðast. I efsta sæti í Englandi er
Magic Fly sem var á sama stað
fyrir hálfum mánuði. Star Wars
Theme er áfram númer eitt í
Bandaríkjunum.
I Vestur-Þýzkalandi er
Smokie vinsælust eins og fyrri
daginn. Þar er It’s Your Life í
efsta sæti. Þetta lag komst á
topp tíu í Englandi fyrir nokkr-
um vikum. Vinsælasta lagið í
Hollandi þessa vikuna er I
Rembember Elvis Presley með
Danny Mirror og í Hong Kong
er Brotherhood Of Manlagið
Angelo númer eitt.
-AT-
þeim Asgeiri Öskarssyni og
Tryggva Hiibner úr Eik, — þar
með upp talið, — engir auka-
menn. Upptöku Fjörefnis lauk í
síðustu viku og er platan
væntanleg á jólamarkaðinn. Ut-
gefandi er Steinar hf.
Lög og textar á plötunni eru
allir eftir þá Jón Þór Gíslason
og Pál Pálsson sem störfuðu
saman með Dögg II. 1 stuttri
tölu sem útgefandinn, Steinar
Berg, hélt er Fjörefni var
kynnt blaðamönnum, sagði
hann að til þess tíma sækti
þessi plata rætur sínar. Síðan
hefði hugmyndin þróazt smám
saman þar til fyrr á þessu ári er
ákveðið var að upptökur færu
fram. Strákarnir vermdu lítt
sæti í Hljóðrita og fór upptakan
fram á innan við hundrað tim-
um.
Textar á Fjörefni fjalla um
hluti sem eru nálægt fólki. að
minnsta kosti í Rvík. Heil
plötusíða er lögð undir Hall-
ærisplanið og sagan rakin frá
þvf að unglingarnir hópast
þangað að kvöldi þar til götu-
sóparinn gengur um daginn
eftir og hreinsar glerbrotin og
ruslið. Á hinni síðunni er meðal
annars sungið um Læralækinn
sem naut mikilla vinsælda í
byrjun sumars en virðist nú
óðum vera að falla í gleymsku.
Eftir að hafa hlustað á Fjör-
efni einu sinni er óhætt að full-
yrða að þarna er á ferðinni
plata sem vert er að veita at-
hygli, — ekki hvað sizt vegna
þess að þarna er ný kynslóð að
kveða sér hljóðs.
Enn hefur ekki verið teki.n
ákvörðun um hvort platan Fjör-
efni verður kynnt með hljóm-
leikum en hugur mun vera í
öllum að troða upp með lögin.
- AT-
SIGURÐUR GRÖNDAL —
gítarleikari Arbliks.
DB-mynd: Ami Páll.
ENGLAND — Melody Maker
1.(4) MAGIC FLY SPACE
2(2) WAY DOWN ELVIS PRESLEY
3(1)OXYGEN JEAN MICHAELJARRE
4(3) SILVER LADY DAVID SOUL
5. ( 6 ) BEST OF MY LOVE EMOTIONS
6 ( 5 ) DOWN DEEP INSIDE DONNA SUMMER
7(7) TELEPHONE MAN MERI WILSON
8 ( 9 ) LOOKING AFTER NUMBER ONE BOTTOM RATS
9 (23) BLACK IS BLACK LA BELLE EPOQUE
10 (16) FROM NEW YROK TO L.A. PATSY GALLANT
BANDARÍKiN — Cash Box
1 ( 1 (STARWARSTKEME
2(2) DON’T STOP FLEETWOOD MAC
3 ( 6 ) KEEP IT COMIN* LOVE KC AND THE SUNSHINE BAND
4 ( 7 ) NOBODY DOES IT BETTER CARLY SIMON
5. ( 5 ) ON AND ON STEPHEN BISHOP
6. ( 4 ) TELEPHONE LINE ... ELECTRIC LIGHT ORCHESTRA
7. (25) 1 OU LIG H I UPMYLIFt DEBBY BOONE
8. ( 3 ) FLOAT ON FLOATERS
9. (16) SWAYING TO THE MUSIC JOHNNY RIVERS
10. (11) 1 JUSTWANTTO BE YOUR EVERYTHING . ANDYGIBB
ÓMAR
VALDIMARSSOi
Rís 4
Förum niðr’á Halló
DACBLADH). LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1977