Dagblaðið - 01.10.1977, Blaðsíða 3
DACBl-AÐlf). LAUCAKDAC.UK 1. OKT0BEK 1977.
'
^ Engar byltingarkenndar
nýjungar í litsjónvarps-
^sC° tækni á næsta leiti
Sl. mánudag birtist grein í
Dagblaðinu undir fyrirsögninni
„Þeir, sem kaupa sér litsjón-
varpstæki, ana út í tóma vit-
leysu“. Er þessi fyrirsögn
byggð á ummælum ónafn-
greinds „útvarpsvirkja“.
Er í greininni haft eftir „út-
varpsvirkja" þessum, að
„þróunin i þessum málum sé
svo ör, að eftir nokkur ár, 2-3 í
mesta lagi, verði littækin, sem
nú eru á markaði, orðin úrelt og
önnur komin i þeirra stað“.
Við fylgjumst gjörla með
allri tækniframþróun í þess-
um efnum. Andstætt því, sem
fullyrt er í umræddri grein,
viljum við upplýsa, að almenn
þróun í litsjónvarpstækni er
fremur hæg um þessar mundir.
Á rafeindatækjasýningu, sem
haldin var í Berlín um siðustu
mánaðamót, Funk-Ausstellung
1977, en þetta er helzta
sýningin í Evrópu fyrir hvers
konar rafeindatæki, komu eng-
ar markverðar nýjungar fram á
sviði litsjónvarpstækja.
Fullyrðingar „útvarpsvirkjans"
um „öra þróun“ eru því
staðlausir stafir. Það eru engar
byltingarkenndar nýjungar á
næsta leiti í litsjónvarpsmál-
um.
Stöðugt er unnið að endur-
bótum þeirra tækja og þess
tæknibúnaðar, sem i notkun er
á hverjum tíma. Auðvitað
gildir þetta einnig hér. T.a.m.
vinna ýmsir aðilar að gerð nýs
myndskermis fyrir sjónvörp, og
er fyrirséð, að bygging, lögun
og stærð hans kemur til með að
breytast — eins og allt annað —
einhvern tíma í framtíðinni. Sá
myndlampi, sem nú er almennt
í notkun, línumyndlampinn,
sem í raun leysti upphaflegu
litmyndlampagerðina, Delta-
myndlampann, af hólmi fyrir
Raddir
lesenda
aðeins 2-3 árum siðari, kemur
þó örugglega tilmeð aðgilda og
vera fastur í sessi um fjölmörg
ókomin ár.
Þetta fyrir þá, sem vilja hafa
það, sem sannara reynist.
Með vinsemd og virðingu,
NESCO H.F.
Óli Anton Bieltvedt.
r
r
Væri nú ekki hægt að hafa
þarna einhverja gæzlu, a.m.k. á
nóttinni?
Og eitt enn, þessir menn sem
þarna voru að verki þurfa ekki
að stela grænmeti frá börnum
þó þeir séu svangir, það er hægt
að hjálpa þeim á annan hátt. Að
stela frá börnum er eitt það
lúalegasta sem ég hef heyrt um.
BARNA
Móðir í Breiðholtinu hringdi:
Það er eitt sem mig langar að
kvarta svolítið yfir. Það er að
einhver eða einhverjir
óprúttnir náungar hafa látið sig
hafa það að stela grænmeti úr
skólagörðum barnanna hér í
Breiðholtinu. Auðséð var víða
að þeir höfðu haft góð áhöld við
vinnu sína, því-að t.d. hvftkálið
var snyrtilega skorið. Ég þekki
nokkrar litlar stelpur sem lentu
í því að nær öllu var stolið frá
þeim. Þær urðu að vonum ákaf-
lega sárar en gátu ekkert gert.
Þessa mynd tók Hörður nú í haust þegar verið var að taka upp úr skólagörðum inni við Mikiubraut.
Þaðan úr görðunum hafði einnig verið stoiið grænmeti.
Félag
veggfóðrarameistara:
Víst eru
tjón sem
þessi leiðrétt
Óiafur ölafsson, formaður
Félags islenzkra veggfóðrara-
meistara hafði samband við slð-
una. Benti hann á að fólk sem
lenti í vandræðum, eins og
konan, seri sagði sögu sína af
slælegri dúklagningu, gæti haft
samband við félagið ef um væri
að ræða meistara í greininni. Ef
um svein I dúklagningu væri að
ræða sækti fólkið til sveina-
félagsins.
Bað hann Dagblaðið að koma
á sambandi við frúna I þessu
tilviki en því miður fundum við
ekki nafn hennar þegar til átti
að taka. Ætti hún því að hafa
samband við lesendadálkinn
eða beint til skrifstofu Félags
veggfóðrarameislara í Skip-
holti 70.
V ■■
Guðmundur Einarsson hringdi
einnig og sagði að það sama
hefði komið fyrir dætur sfnar
og vinkonu þeirra. Þegar þær
komu 1 garðinn um siðustu
helgi, var þar hvorki tangur né
tetur af grænmeti og engu
líkara en fagmaður hefði tekið
það upp svo snyrtilega var að
öllu farið. Guðmundur sagði, og
taka eflaust margir undir það,
að hryggilegri sjón geti ekki en
barn sem hefur orðið fyrir þvf
að ávöxtum erfiðis þess hefur
verið stolið.
Heimilis
reykskynjarínn
frá LPálmason hf
Skynjarjiifnt osynileyar sem synileyur loftteyundir sem
myndast vid bruna ú hyrjunarstiyi.
Erknúinn rufhlödu sem endist minnst i eittúi:
Gefur merki þei’ur endurnýju Jxuf nifldööu.
Auóveldur i uppsefninyu.
Hér er um aö neóu ixlýrt ÖRYCiCilSTEKI sem enyin
f jölskyldu hefur efni ú ud veru un!
nhnappur
Flautuþéttir
85 db.
viðvörunarflauta
f jóriunarhólf,
úr ryðfriu stáli
9volt Alkaline
rafhlaða
III
I
I.Pálmason hf Dugguvogi 23 simi32466
Pétur Eyfjörð, atvinnuUus: Eg
hef gaman af allri músfk. Sérlega
finnst mér þó gaman að jassi og
léttri tónlist. Og eins þykja mér
ákaflega skemmtilegar óperur.
Popp legg ég hins vegar alveg á
hilluna.
Spurning
dagsins
Hefurðu gaman af
Betsy Agústsdóttir húsmóðir:
Nei, það hef ég ekki. Mér finnst
jass ekkert sérstakur á neinn
hátt.
Ragnar Guðmundsson verzlunar-
naður: Já, já, ég hef mjög gaman
af jassi. Beztur finnst mér gamli
jassinn, t.d. frá New Orleans.
Sigurður Konráðsson tsknifraeð-
ingur: Nei. Eg hef miklu meira
gaman af sigildri tónlist. Þar er
Tsjaikovski mitt uppáhald.
Asta Óskarsdóttir, nemi í
Kennaraháskólanum: Það fer allt
eftir þvi hvers konar jass það er.
Ég hef nú ekkert vit á jassi en að
sumu þykir mér gaman en öðru
ekki. Þættirnir hans Jóns Múla
eru oft mjög skemmtilegir en líka
finnst mér stundum ekkert í þá
varið.
Jóhanna Gestsdóttir, viiinur á
upptökuheimillnu i Kópavogl: Já.
mér finnst jass skemmtilegur. Eg
er auðvitað enginn sérfræðingur i
honum og finnst yfirleitt allt gott
sem ég heyri.