Dagblaðið - 01.10.1977, Side 10

Dagblaðið - 01.10.1977, Side 10
10 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. OKTÖBER 1977. frfálst, úhád dagblað Utgefandi DagblaöiA hf. Framkvœmdastjori: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Krístjánsson. Fréttastjóri: Jón , Birgir Pótursson. Ritstjornarfulltrui: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjórnar: Johannes Reykdal. íþróttir: Hallur Símonarson. Aöstoöarfróttastjóri: Atli Steinarsson. Handrit: Asgrímur Palsson. Blaðamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tomasson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stefánsdóttir, Gissur Sigurösson, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jónas Haraldsson, Katrín Pálsdóttir, Ólafur Geirsson, Ólafur Jonsson, Ómar Valdimarsson, Ragnar Lár. Ljósmyndir: Bjamleifur Bjarnleifsson, Hörður Vilhjálmsson, Sveinn Þormóösson. Skrífstofustjóri: ólafur Eyjolfsson. Gjaldkori: Þráinn Þorleifsson. Dreifingarstjóri: Már E. M. HaUdórsson. Ritstiorn Siöumula 12. Afareiösla Þverholti 2. Áskríftir, auglysingar og skrifstofur Þverholti 11. AAafsimi blaösins 27022 (10 línur). Áskrift 1500 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 80 kr eintakiö. Setning og umbrot: Dagblaöiö og Steindórsprent hf., Ármúla 5. Mynda og plötugerö: Hilmir hf. Siöumula 12. Prentun: Árvakur hf. Skoifunni 19. Getur kerfið vaknað? Sveitarstjórnarmenn segjast vera vaknaðir. Þeir ætli að byggja upp iðnað hjá sér. En ríkisvaldið sefur. Jafnvel sá takmarkaði iðn- aður, sem til er nú, verður í tals- verðri hættu. Iðnrekendur færa skýr rök að nauðsyn á framlengingu aðlögunartímans vegna aðildar að fríverzlunarbandalaginu EFTA. Varast verður að taka of trúanleg rama- kvein hagsmunahópanna, en iðnrekendur hafa rök máli sínu til stuðnings, sem ekki verður hafnað. Þeir benda á, að þeir stríði við óheiðar- lega samkeppni. Meðan íslendingar hamast við að fella niður tolla á innfluttum iðnvarningi, greiða ríkissjóðir flestra annarra EFTA-landa iðnaðarvörurnar niður með styrkjum. Þetta er brot á EFTA-samningnum, sem bandalagið lætur óátalið, því að forystumenn þess eru fulltrúar ríkisstjórnanna, sem brjóta af sér. Hinar niðurgreiddu iðnaðarvörur eru svo fluttar inn hér og þær keppa við innlendar vörur. íslenzkir framleiðendur eru því hlunn- farnir. Iðnrekendur segja, að þetta stofni fyrirtækj- um þeirra í voða. Enn einu sinni biðja þeir um lengingu aðlögunartímans, þannig að frestað verði þeim tollalækkunum á innfluttum iðnaðarvörum, sem taka eiga gildi nú um ára- mötin. Ætla má, að valdhafarnir í EFTA gætu ekki synjað beiðni um þetta, ef hún kæmi frá ís- lenzkum stjórnvöldum með viðeigandi rök- stuðningi. Kröfur iðnrekenda um árabil eru í aðalat- riðum einfaldar og sanngjarnar. Þeir krefjast sömu starfsskilyrða og aðrir aðalatvinnuvegir þjóðarinnar njóta, sömu starfsskilyrða og er- lendir keppinautar þeirra njóta hver í sínu landi og sömu skilyrða og útlendingar njóta á íslandi, þar með talið orkuverð. Iðnrekendur hafa lítið verið með í dansi annarra hagsmunahópa, sem gjarnan líta ekki á, hvað sanngjarnt er, heldur hvaða þrýstingi þeir geta beitt. Vonandi þýða yfirlýsingar sveitarstjórnar- manna, að sá hluti kerfisins ætlar að söðla um. Forystumenn Reykjavíkurborgar eru farnir að skilja, að þeir verða að sækjast eftir að fá fyrirtæki í borgina og hlúa að þeim. Sveitar- félögin þurfa að keppa um fyrirtækin til að halda uppi atvinnu og fá nægar tekjur. Ekki nægir að barma sér. Sum sveitarfélög hafa skilið þetta, til dæmis Kópavogur, raunar af augljósri nauðsyn. Önnur hafa setið eftir, einnig höfuðborgin, og því fór sem fór. Á ráðstefnu sveitarfélaganna um iðnaðinn nú í vikunni lögðu menn mesta áherzlu á iðngarða sem framtíðarlausn. Tvímælalaust verða sveitarfélögin aó byggja leiguíbúð- ir undir iðiiiym tæki eða styrkja þau á annun hátt til bygginga undir starfsemi sína. Þau verða á ýmsan annan hátt að veita iðnaðinum fríðindi, eigi úr þessu að verða annað og meira en skraf við hátíðleg tækifæri. Sveitarfélögin geta haft forgöngu og knúið fram stefnubreyt- ingu hjá ríkisvaldinu. FJARSKYNJUN —þegar verzlunum var lokað á föstudögum var bara meira verzlað á veitingastöðunum Drykkjuskapur hefur verið mikið vandamál á Grænlandi í mörg ár. Svo var komið að yfir- völd tóku til sinna ráða til að reyna að stemma stigu við þessu. Það varð úr að bannað var að selja áfengi 1 verzlunum á föstudögum. Það er sama hvaða ráðstafanir eru gerðar, drykkjuskapurinn minnkar ekki. í stað þess að kaupa áfengi eða bjór í búðunum fara Grænlendingar nú á veitinga- húsin og kaupa sér jafnmikið áfengi en það er mörgum sinn- um dýrara. Það má því segja að þær ráðstafanir sem stjórnin hefur gripið til hafi algjörlega mistekizt. Áfengisneyzlan er jafnmikil eftir sem áður. Jafnmikið áfengi ffyrir miklu hœrri upphœð Þrátt fyrir þær ráðstafanir sem gerðar voru dró ekkert úr áfengisneyzlunni. Menn fóru bara I veitingahúsin í stað þess að kaupa áfengið fyrir helmingi lægra verð í verzlunum. Að visu voru seldar um eitt hundrað þúsund færri bjór- dósir en salan jókst um sama magn á veitingastöðunum. Neyzlan var sú sama en hún kostaði Grænlendinga bara miklu fleiri krónur. Veitinga- húsin græða á tá og fingri og eru að vonum ánægð með þessa breytingu. Talið er að það magn sem drukkið var í Godtháb hafi kostað neytendur um hálfri milljón danskra króna meira en áður en verzlunum var lokað. Þegar lokunartíma verzlana var breytt voru einnig settar reglur um opnunar- og lokunar- tíma veitingastaðanna. Fyrir breytinguna mátti selja áfengi á börum frá klukkan tólf á hádegi og til tvö. Þetta hefur nú verið afnumið. Það hefur aldrei mátt selja áfengi á Iaugardögum og svo er einnig nú. En þá var verzlað geysi- mikið á föstudögum en nú hefur það verið stöðvað. Vín- búðir mega ekki vera opnar á föstudögum eftir að breyting- arnar gengu i gildi. Lausnin á áfengisvanda- málinu er ekki auðfundin Reynslan sýnir að það þýðir ekkert að gripa til víðtækra ráð- Umbúðunum utan af bjórnum er keyrt á haugana og þar liggja þær í tonnatali. Hin nýja heimsskoðun: Grænland: Áfengisbann leysir engin vandamál Allur þorri íslendinga hefir ávallt haft gaman af að hugsa, - vita og tala um svonefnd „dulræn fyrirbæri", ekki sízt skyggni en einnig fjar- skynjanir, „sálfarir“, huglækningar o.fl. Það ætti því að vera íslendingum sérstakt fagnaðarefni að nú hafa hin öflugu vísindi nútímans fært svo út rannsóknarsvið sitt að einnig tekur til þessara hluta. Þegar vitringurinn Helgi Pjeturss var að rita um þessi mál fyrir 60 árum síðan var ástandið þannig að allt tal um fjarhrif, lífgeislan og því um líkt, þótti rugl eitt og markleysa og allsendis ósamboðið vísinda- mönnum að koma nálægt slíku. Nú horfir allt öðruvísi við. Arið 1969 var Alþjóðsambandi fyrir- burðafræðinga (para- sálfræðinga) formlega veitt innganga í Samband banda- rískra vísindafélaga (American Association for the Advance- ment of Science). Vísindamenn viðurkenna nú að fjarhrif séu staðreynd og að rannsóknir á þeim séu alls ekki óvísinda- legar. Eru nú rannsóknir á fjar- hrifum og hvers konar „yfir- skilvitlegum" fyrirbærum stundaðar af kappi við háskóla víða um lönd en þó líklega mest í Bandaríkjunum og Rússlandi. Hin nýja heimsskoðun Ég hef leyft mér að nota sem yfirfyrirsögn að þessum greina- stúfum mínum orðin „hin nýja heimsskoðun" og ætla ég rétt aðeins _.gð útskýra það nánar. Eins og allir vita þá er ekkert nýtt við það að menn brjóti heilann um „dulræn fyrirbæri“ eða eigum við að segja ,,æðra“ eðli hins lífræna. Það er heldur ekkert nýtt við það að rannsaka stjörnurnar eða það að reyna að skilja eðli alheimsins, þvert á móti mun þetta hvortveggja vera það hugðarefni sem fylgt hefir mannkyninu frá örófi alda. En það sem er nýtt, það sem aldrei fyrr hefir gerzt, svo að nokkurt gagn, nokkurt vit hafi verið í, er að þetta tvennt væri tengt saman. Þ6 að ein- staka hugsuðirhafi látið sér til hugar koma að I fjarlægum sólhverfum himingeimsins kynnu að fyrirfinnast vits- munaverur I likingu við mennina og þó að örfáir menn hafi einnig látið sér til hugar koma að unnt væri að ná vit- sambandi við slíkar verur, er það ekki fyrr en nú fyrst fyrir fáeinum árum, að vísindin almennt hafa snúið sér að þessu stórkostlega verkefni í blákaldri alvöru. Og' einmitt samtímis þessari nýju stefnu i stjörnufræði hafa fræði- og vísindamenn aldrei sýnt meiri áhuga en nú á þeim málum, sem nefnd hafa verið „dulræn fyrirbæri", dulvísindi, æðra eðli mannsins eða hvað menn vilja kalla það. Brautryðjandi á þessu sviði var íslendingurinn Helgi Pjeturss sem minnir á hina miklu heimspekinga Forn-

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.