Dagblaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 1
3. ARG. — FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1977 — 226. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMULA 12. AUGLVSINGAR ÞVERHOLTI 11,*AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — AÐALSÍMI 27022 Setti frúna í svefnpoka og „smyglaði” inn á Völlinn Langar bióraóií' voru við bæði hlið Keflavíkurflugvallar í morgun. Krefja'st Iögreglu- menn í hliðunum þess að hver sem um þau fari, sýni persðnu- skilrlki og eru þau síðan borin saman við starfsmannaskrár. Er ástandið á Vellinum því hið sama og I fyrradag, þegar mynduðust allt að 1500 metra langar raðir. Menn hafa reynt ýmislegt til að losna unaan passasKyiaunin. Einstaka menn hafa ekið rak- leiðis í gegnum hliðið — en hafa þá verið teknir rækilega fyrir þegar þeir fara út aftur. Einn maður gerði sér lítið fyrir f gær þegar I ljós kom að kona hans, sem er starfsmaður á Keflavíkurflugvelli, hafði ekki passa sinn i lagi. Skreið frúin ofan í svefnpoka sem bóndi hennar kom siðan fyrir i far- angursgeymslu fjölskyldubils- ins. Ók hann rakleiðis i gegnum hliðið eftir að hafa sýnt sinn eigin passa og kom konu sinni til vinnu. Lögreglumenn i hliðunum tóku „stikkprufur" í gær og leituðu i einstaka bilum að ólöglegum varningi. Fannst sáralitið — einn eða tveir bjórar i stöku bil, svo vitað sé. Unnsteinn Jóhannsson, varð- stjóri I lögreglunni á Kefla- víkurflugvelli, sagði í samtali við DB í morgun að rangt væri það sem komið hefði fram haft eftir Páli Asgeiri Tryggvasyni, deildarstjóra i varnarmáladeild utanrikisráðuneytisins, að reglugerð um notkun skilrikja við inngöngu áVöllinn væri úr gildi. Kvað Unnsteinn lögreglu- menn hafa mörg plögg undir höndum sem sýndu að hún væri enn i gildi. - emm/ASt./ÓV Margurlaun- þeginn missti dagslaunin — ein kona komst ekki heim til sín — bls. 8 V Stríðsára- stemmning viðhöfnina „Hver hefur leyft þér að fara í land?“ spurði tollvörður einn unga konu með 3 ára barn, þegar hún kom í land eftir siglingu til laudsins með Mánafossi í morgun. Leyfið hafði verið veitt af útlend- ingaeftirlitinu, en tollskoðun á skipinu hefur ekki verið gerð. Mun skipið því verða að bíða á ytri höfninni í Reykjavík þar til úr rætist. Það var stríðsárastemmning yfir komu skipsins, — þeir sem fóru í land urðu að fara niður kaðalstiga frá borði og i bát sem ferjaði fólkið í Iand. DB-mynd Sv. Þormóðsson. Pabbi Bísa og Krimma meðal beztu teiknara heims - bls. 8 Fjárlögin 78: Keppinautar Dagblaðsins fá 40 millj. króna glaðning — baksíða K- ' ^ 'H;-: Allirbanda- rískir bflar með öryggisloftpúða árið 1984 — erlendarfréttir bls. 6-7 , • I Þorlákshöfn! Á Skattstofuna! ÍTónlistarskóla! íherbúðum BSRB — bis. 5 UpplagDBígær 31.800 í dag verður upplagið mjög svipað. Utsölu- staðir eru beðnir að tilkynna afgreiðslunni ef skammturinn selst upp. Síminn er 22078. BorginogStarfs mannafélagið: Samninga- fundur kl.ellefull Góðir samningar á Norðfirði: MILUVEGURINN FUNDINN? „Við erum ekki farnir að fá samningana af Suðurlandi ennþá og ég get því ekki taliö upp ' einstök atriði þeirra," sagði Haraldur Steinþórsson framkv.stj. BSRB í viðtali við DB I morgun. „Við höfum hins vegar fengið samkomulagið frá Norðfirði og mér sýnist þar vera harla gott.“ Sagði Haraldur að það væri eins og svo margir þessara samninga byggt á samkomu- laginu á Akranesi. (Mönnumtil glöggvunar er þar að finna endurskoðunarrétt og að laug- ardagarnir eru teknir út úr orlofi. Þa er launastiginn sá sami og í tilboði rikisins en við alla launastiga bætast tvö þúsund krónur þann 1. nóv. Þá er gert ráð fyrir flokkshækkun eftir fimmtán ára starf og þeir sem unnið hafa í tólf ár, fá greiddar 40 þús. krónur f des.). „Þeir á Norðfirði hafa haldið þessum ákvæðum öllum, en hafa samið um milliveg milli siðasta tilboðs rikisins og þess sem við höfum boðið,“ sagði Haraldur ennfremur. „Það er um 3500 kr. hækkun og reiknast frá 1. júlí." Að framansögðu má vera ljóst, að Norðfirðingar hafa að hluta til fundið milliveg i deilunni milli BSRB og rikisins og verður fróðlegt að sjá hvort rfkið getur fallizt á það sem Norðfjörður telur sig geta borgað. -HP. „Það verður fundur með samningsaðilum núna kl. ellefu," sagði Þórhallur Halldórsson formaður Starfs- mannafélags Reykjavíkurborg- ar í morgun. „Við höfum haldið nsér daglega fundi í samninga- nefndinni og í gær var fundur með fulltrúaráðinu." Þórhallur vildi ekki úttala sig nánar um þær kröfur er þá yrðu ræddar en sagði, er hann var spurður að því hvort þeir myndu taka mið af þeim samningum, sem gerðir hafa verió út um land, t.d. af Akra- nessamningunum, að menn yrðu að taka tillit til þess að i Reykjavikværu aðstæður aðrar, þar ynnu starfsmenn ríkis og .borgar oftlega saman, t.d. á sjúkrahúsunum. -HP.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.