Dagblaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 24
Hvað gera börnin íkennaraverkfalli? Hanga á sjoppum, selja blöð og sparka bolta Þegar kennarar og aðrir opinberir starfsmenn fóru í verkfall kom upp virkilegt vandamál um það hvernig börn ættu að eyða tímanum. I gær- dag, þegar blaðamenn voru a flakki um bæinn I fréttaleit ráku þeir alls staðar augun i krakka sem að því er virtist ráfuðu um stefnulaust, héngu inni ð sjoppum eða seldu blöð. Alls staðar þar sem hægt var að henda eða sparka bolta var svo krakkaslæðingur, þrátt fyrir að hvasst væri. Við tókum nokkra krakka tali og spurðum að því hvað þeir hefðu fyrir stafni þegar enginn væri skólinn. Inni í söluturninum Jóker hittum við tvo strðka og eina stelpu. Reyndar taldi blaðamaður að um þrjá stráka væri að ræða en þegar eitt barnanna var spurt að nafni sagði það: „Ég er stelpa og heiti Alda. Alda Rögn- valdsdóttir." Strákarnir sögðust heita Bjarni Daniel Daníelsson og Benedikt Heiðar Franklinsson. Þau sögðust hanga mestan hluta dagsins inni á Jóker. „Ög svo leikum við okkur og svoleiðis." Ekki sögðust þau vera í neinum vandræðum þó þau væru að mestu leyti ein heima. Alda Rögnvaldsdóttir, BJarnl Danfel Danfelsson og Benedikt Heiðar Franklinsson skemmtu sér við spil ð Söluturninum Jóker f skólaleysinu. Fótboltastrákarnir úr Meiaskóia vildu allir láta Svein taka mynd af sér. Helgi Jóhannsson, Danfel Hart- mannsson og Hróar Haligrfms- son sögðu að þeir seldu blöð í frfinu og það gerðu alltof marg- ir aðrir. Niðri í Austurstræti hittum við svo nokkra eldhressa stráka sem voru að selja Dagblaðið. Þeir sögðust heita Helgi Jóhannesson, Danfel Hart- mannsson og Hróar Hallgríms- son. Helzta ráð þeirra til að láta tfmann líða var að selja blöð og spila fótbolta. En einn væri galli á gjöf Njarðar, og hann væri sá að salan i blöðunum væri ekki nógu góð þvf svo margir væru um hituna. „En það er einn sem er alveg ofsa- lega klár að selja. Hann selur fleiri hundruð og fimmtíu blöð ■á dag.“ Tilhugsunin um að verkfallið yrði alltaf var greini- lega mjög spennandi fyrir þð og hlakkaði í þeim. „En sumir gætu orðið gjaldþrota," sagði Helgi. Og það leizt þeim ekkert of vel á. — En er þá ekki gott að sofa út á morgnana? „Sofa <it. Jú, það er sko flott, maður.“ Uppi í skeifunni við Háskól- ann var heill hópur af strákum í fótbolta. Þeir sögðust vera f 6, 7, 8 og 9 ára bekk í Melaskóla. Og það væri bekkjakeppni hjá þeim í fótbolta. Þeir sögðust vona að verkfallið yrði sem lengst en það væri ekki af því að þeir vildu sofa út á morgn- ana. Nei, en þeir kunnu þvf vel að geta verið úti að sparka allan daginn. Það þætti þeim skemmtilegast af öllu. - DS Skattahækkun 78 íhagfræðilegum neytendaumbúðum Sköttum á að beita þannig á árinu 1978, að vexti einkaneyzlu verði í hóf stillt, segir 1 athuga- semdum við fjárlagafrumvarpið. Þetta er aðeins eitt þeirra ráða sem beita á til þess að treysta þann jöfnuð i rfkisfjárhagnum, sem náðst hefur á síðastliðnum tveimur árum að mati fjármála- ráðherra. Þetta lftur út eins og hag- fræðileg neytendapakkning á ráðagerðum um skattabreytingar, sem horfa til hækkunar frá því sem nú er. Þó er f frumvarpinu gert ráð fyrir þvf að vöxtur einka- neyzlu verði um 6% í kjölfar 7- 8% aukningar á þessu ári, segir i frumvarpinu. -BS. fijálst, úháð dagblað FIMMTUDAGUR 13. OKT. 1977 BSRB í morgun: „Höfum ekkert heyrt...” „Nei, við höfum ekkert heyrt frá sáttasemjara né samninga- nefnd rfkisins, en bfðum átekta," sagði Kristján Thorlacius for- maður BSRB í morgun. „Við höfum ekki tekið afstöðu til þeirra samninga sem gerðir hafa verið af svéitarfélögunum og munum halda fast við okkar sfðasta tilboð, ef til samninga- fundar verður boðað.“ - HP Torfi lætur vélrita Sáttasemjari rfkisins, Torfi (Hjartarson, hefur sem kunnugt er skrifstofu sfna f Tollstöðinni í Reykjavík. Skattstofan er þar einnig til húsa og er DB var þar á ferð í gær, fréttist að sáttasemjari hefði verið að láta vélrita einhver ósköp af gögnum fyrir sig. Ekki vissu menn gjörla hvað það var sem hann var að gefa út en töldu líklegt að hann væri að undirbúa sáttafund. - HP Féll af vörubílspalli Ungur bílstjóri hjá Eggert Kristjánssyni og Co. slasaðist í gær er hann féll af palli vörubif- reiðar sem hann ók á vegum fyrir- tækisins. Var ungi maðurinn við losun hjá Vöruflutningamið- stöðinni í Borgartúni er óhappið varð. Féll hann aftur yfir sig af pallinum, og fékk höfuðhögg er hann kom niður. Við rannsókn kom J ljós að höfuðkúpa mannsins hafði sprungið. Var líðan hans eftir at- vikum góð f morgun. -ASt. Gefa fíokks- blöðunum 40 milljónir króna Enda þótt málgögn stjórnmála- flokkanna séu gefin út af fyrir- tækjum með hlutafélagsformi er þessari styrkveitingu beint til þeirra. Dagblaðið fær ekki þenn- an styrk og sækir ekki um hann. 1 útgjöldum Alþingis er að finna lið sem heitir: Sérfræðileg aðstoð fyrir þingflokka: kr. 16.6 milljónir. „Lifeyrissjóður starfsmanna stjórnmálaflokka" heitir einn liður f útgjöldum fjármálaráðu- neytisins. I hann verða sam- kvæmt fjárlagafrumvarpinu greiddar 1.5 milljón króna. Styrkveitingar til stjórnmála- flokkanna er að finna í fjárlaga- frumvarpinu. Undir liðnum „ýmislegt" í greiðsluliðum fjár- málaráðuneytisins, er að finna eftirfarandi: Til blaðanna sam- kvæmt nánari ákvörðun rfkis- stjórnarinnar að fengnum tillög- um stjórnskipaðrar nefndar: kr. 40 milljónir. ALBERT GAFST EKKIUPP - REYKVÍKINGAR FÁ ELLERT B. SCHRAM í FJÁR- VEITINGANEFND Reykjavíkurþingmenn hafa ekki setið i fjárveitinganefnd sameinaðs Alþingis í áratugi þar til í gær að Ellert B. Schram var kosinn í þessa ein- hverja mestu áhrifanefnd Alþingis. Albert Guðmundsson vakti athygli á því, snemma eftir að hann tók sæti á Alþingi, að eng- inn þingmaður Reykvikinga ætti sæti í fjárveitinganefnd. Hann gerði kröfu sína um þing- mann Reykvíkinga að stefnu- máli innan þingflokks Sjálf- stæðisflokksins og síðan á Alþingi. Hann benti á að Reykjavíkurkjördæmi ætti a þingi 1/5 hluta allra kjörinna þingmanna og með uppbótar- sætum rúmlega fjórðung þing- manna. Hann taldi óeðlilegt að höfuðborgarþingmenn hefðu ekki neinn mann í níu manna áhrifanefnd á Alþingi. Nú hefur þessi skoðun Alberts unnið slikt fylgi á þingi að í sameinuðu þingi i gær var Ellert B. Schram kosinn í fjár- veitinganefnd Alþingis. Sigurður Kristjánsson, ritstjóri og alþingismaður. sat i fjár- veitinganefnd. Hann sat á Alþingi 1934 — 1949. Siðan hef- ur enginn þingmaður Reyk- víkinga setið í þessari áhrifa- nefnd fyrr en nú. Kosningu í fjárveitinganefnd nú hluti þessir: Steinþór Gests- son (S), Lárus Jónsson (.S), Ellert B. Schram (S), Þórarinn Sigurjónsson (F), Ingi Tryggvason (F), Sighvatur Björgvinsson (A), Geir Gunnarsson (Abl.) og Helgi F. Seljan (Abl.). Sú brevting ein hefur orðið á fjárveitinganefnd frá síðasta þingi að Ellert B. Schram hefur komið í stað Jóns heitins Arna- sonar, sem var formaður nefnd- arinnar um árabil. -BS. -BS.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.