Dagblaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. OKTÖBER 1977. 7 Erlendar fréttir ÖLAFUR GEIRSSON REUTER 200 þúsund sektarmiðar í ruslafötuna hjá dipló- mötunum Lögreglan í New York-borg setti meira en 200.000 sektarmiða a bifreiðir erlendra sendimanna síðasta ár. Allir fara þeir síðan beina leið í göturæsið eða rusla- fötuna, því erlendir sendimenn, sem flestir eru tengdir aðal- ■stöðvum Sameinuðu þjóðanna, þurfa ekki að greiða slíkar sektir. Þrátt fyrir ítrekuð tilmæli til sendimannanna um að fara að lögum I umferðinni er ástandið alltaf jafnhörmulegt að sögn þess fulltrúa Sameinuðu þjóðanna sem fer með málefni sem varða sam- skipti stofnunarinnar við gest- gjafann, New York. 30 drukkna á Indlandi Talið er að um 30 manns hafi drukknað i gær, þegar stór fólks- flutningabifreið fór út af risa- stiflu í ríkinu Punjab á Indlandi. Þegar síðast fréttist höfðu tvö lík fundizt en 20 manns var bjarg- að í tæka tíð. ÚRVRL/ KJÖTVÖRUR OG ÞJÓflU/Tfl /4i/allteitthvaó gott í matinn Cr>)iÍ0L/r- STIGAHLIÐ 45^47 SIMI 35645 23636-14654 Til sölu: 2ja herb. íbúð við Lindargötu 2ja herb. íbúð við Miklubraut 3ja herb. íbúð við Langholtsveg 4ra herb. íbúð við Kleppsveg. 4ra herb. íbúð við Æsufell 4ra herb. hæð ásan.t herbergi 1 kjall- ara við Sörlaskj'ól, góður bll- skúr, hagstæð greiðslukjör. 5 herb. sérhæð á Seltjarnarnesi. Húseign á eignarlóð við Njálsgötu. Sala og samningar, Tjarnarstíg 2 Seltjarnar- nesi. Kvöldsimi sölumanns 23636. Valdimar Tómasson, löggiltur fasteignasali. Samþykktá Bandaríkjaþingi: Loftpúðar sem blásast út ef bifreið verður fyrir hnjaski eiga að vera i öllum bandarísk- um bifreiðum frá og með árinu 1984, en öldungadeild þingsins í Washington samþykkti tillögu þess efnis í gær. Tillagan var frá stjórninni og verður að lög- um í dag. Gerð var tilraun til að fá sam- þykkta tillögu sem hefði gert þessa samþykkt að engu en hún var felld. Þar með virðist margra ára deilu milli bifreiðaframleið- enda. og tryggingarfélaga og neytendasamtaka lokið. Framleiðendur töldu þetta of dýrt og mundi það hækka verð hvers bíls um 230 dollara, eða um 50.000 ísl. krónur. Tryggingarfélögin halda þvi aftur á móti fram að kostnaður- inn sé helmingi minni. Neyt- endasamtök telja að lækka megi iðgjöld af bifreiðatrygg- ingum um allt að 32 dollara á ári sem samsvarar um 7000 ís- lenzkum krónum. I nýju lögunum er heimilað að nota önnur jafngóð öryggis- tæki og loftpúðana. Þó er talið að þeir muni verða ráðandi i bandarískum bifreiðum, því all- ar tilraunir í öryggisátt hafa beinzt að þeim. Loftpúða í alla bíla fyrir 1984 Þarna sést hvernig loftpúði hlífir farþega i árekstri og allt á þetta að gerast á 1/25 úr sekúndu. D0TTIR ALLENDES REÐ SER BANA Beatriz Allende, dóttir fyrrum forseta Chile, sem féll í uppreisn árið 1973, réð sér bana á heimili sínu í Havana á Kúbu í gær. Beatriz var gift kúbönskum starfsmanni utanrfkis- þjónustunnar, sem hún kynntist á valdadögum föður síns í Chile. Þegar Beatriz kom til Kúbu eftir byltingu hægri manna í Chile sagðist hún hafa barizt við hlið föður sfns í forsetahöllinni P Santiago. Hafi hún ekki yfirgefið hann fyrr en hann bað hana vegna þess að hún var þunguð og hann óttaðist um lif hennar og ófædds barnabarns síns. Yfirvöld í Havana sögðu að Beatriz Allende hafi haft þungar Shyggjur af ástandinu 1 Chile og framtíðarhorfum þar. Sovétolía fundin íKyrrahafinu Fundizt hefur olia á svæði Sovétríkjanna á Kyrrahafinu norður af Japan. Er það í fyrsta sinn, sem olía finnst á þessu svæði en að tilraununum vann japanskí fyrirtæki. Tass fréttastofan sovézka sagði að Japanir mundu hljóta umbun erfiðis sfns í olíu og mundu þeir njóta forgangsréttar um kaup á olfu frá nýja svæðinu. Fréttastofan benti einnig á, að olfufundurinn mundi hafa mjög mikla þýðingu fyrir örari upp- byggingu I austurhluta Sovétrfkj- anna. Ekkert hefur verið sagt um hve mikið af oliu er áætlað á svæðinu. iárnbent steinstevpa í einingum Traustar sperrur og tréverk, og traustir menn til að reisa húsin. Ná- kvæm stöðlun framleióslu okkar þýóir ekki, aö öll húsin veröi eins, heldur það, aó allir hlutar framleiðslunnar falla nákvæmlega inn í þá heild, sem þió veljið. Það eru margvíslegir mögu- leikar á fjölbreytni í útliti húsanna og innréttingum. Traust og fjölbreytileg einingahús. Vió framleiðum bæöi stór og smá hús, atvinnuhúsnæði, bílskúra og ein- býlishús eða raðhús. Einingabygg- ing sparar ómetanlegan tíma, fé og fyrirhöfn, bæði verktökum og atvinnu- mönnum í byggingariðnaói og öðr- um húsbyggjendum. HÚSASMIÐJAN HF Súðarvogi 3, Reykjavík. Sími 86365.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.