Dagblaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. OKTOBER 1977. Þegarlögreglanfóralltíeinueftirlögum: ] KEMSTEKKITIL VINNUSINNAR— ÖNNUR KOMST EKKIHEIM TIL SÍN —Hliðlögreglan mildar starfsaðferðir sínar og býður launþegum nú framrétta hönd Fólk sem a leió um hliðin inn a Keflavíkurflugvöll hefur heldur ljót orð um viðskipti sin við löggæzlumennina sem þar sitja og hafa skyndilega tekið upp á því að fara að lögum og skoða skilrlki, vallarpassana, hja hverjum og einum. Vinna mennirnir akaflega eftir bók- stafnum og verður hvergi hagg- að. Kona ein sem býr I svoköll- uðu Grænashverfi innan vallar- girðingarinnar fór I fyrradag I verzlanir I Keflavík. A leiðinni heim til sln þurfti hún að fara um hliðið, skilrikjalaus. Ekki viðlit að komast inn, var henni tjað af lögregluþjóni sem reyndar býr I sömu blokk og konan I Grænasnum. Varð hún að fara aftur til Keflavíkur og leita aðstoðar við að komast til slns heima. „Þetta er svívirða," sagði kona ein sem starfar a vellin- um. „Þessir menn eru greini- lega að hefna sin a öðrum laun- þegum. Hvers vegna og hvaða hvatir liggja að baki get ég ekki ímyndað mér hverjar eru.“ Kona þessi sem er einstæð ekkja með börn býr I Keflavík og starfar á skrifstofum hersins Svo illa vildi til að vallarkort hennar féll úr gildi a þriðju- dagskvöld. Passinn var tekinn af henni en útilokað var að fa nýjan passa gefinn út. í gær- morgun tók hún leigubíl fyrir 1400 krónur að flugvallarhlið- inu. Enda þótt lögreglumenn- irnir þar könnuðust mæta vel við hana var það tómt mál að tala um að hún kæmist til vinnu. Konan kvaðst þegar vera búin að heyja sitt verkfall og hefði hún slzt efni a því að þurfa að missa atvinnuna vegna þessa strlðs launþega gegn öðrum launþegum. Konan kvað varnarliðið draga fra þa daga sem hún mætti ekki til vinnunnar enda þótt svona væri I pottinn búið. Var hún búin að reyna að fa útgefið skirteini hjá lögreglu- stjóranum a flugvellinum, Þor- geiri Þorsteinssyni. Hann kvaðst allur af vilja gerður, hann bara mætti ekki gefa út þetta skírteini, rétta starfsfólk- ið væri I verkfalli. En hvað segja löggæzlumenn vallarhliðanna? Síðdegis I gær kom frá þeim tilkynning um breytta tilhögun „öryggisgæzlunnar". Starfs- menn sem lagt geta fram full- gild persónuskilríki og geta staðfest við lögregl- una að þeir starfi hjá „viður- kenndum aðilum a flugvellin- um“ fa nú aðgang að vellinum, enda þótt þeir hafi ekki undir höndum vallarvegabréfið. Þa verða ekki lengur hindraðir flutningar nauðsynlegra birgða til vallarins, einkum er hér att við eldsneytis- og matvæla- flutninga. „Lögreglumennirnir vilja leggja rika áherzlu a að þeim sé fyrirskipað af kjaradeilunefnd að halda uppi öryggisgæzlu á vellinum og þvl hlutverki geti þeir þvl aðeins sinnt af nokkru gagni að mun nakvæmar sé fylgzt með ferðum manna inn a völlinn en tíðkast þegar fullri gæzlu er haldið uppi a sjálfu vallarsvæðinu," segir I frétt- inni fra lögreglumönnunum a Keflavlkurflugvelli. Segjast lögreglumennirnir skilja að aðgerðir þær, sem beitt var a þriðjudag, hafi bitn- að hvað harðast á launþegum sem af völdum aðgerðanna misstu laun sín þann dag. Segj- ast þeir með breyttum hattum a gæzlu þessari vilja leggja sitt af mörkum til þess samstarfs sem BSRB vænti af félögum sinum I Verkalýðs- og sjómannafélagi Suðurnesja og raunar verka- lýðshreyfingunni allri. Grænlandsvinafélag stofnað íkvöld Varnarræða Sævars M. Ciesielskis: „ÉG ER SAKLAUS” ar Marlnó Ciesielski, akærður, þess réttar slns að mæla nokkur orð. Hóf hann mai sitt úr sæti sínu en að tilhlutan dómsins flutti hann það frá ræðustóli verjenda. „Það sem er að gerast I þessu maii er hlutur sem er að gerast og hefur gerzt um allan heim. Sak- laust fólk er íatið játa a sig rangar sakir og svo er því kúplað út úi þjóðfélaginu. Þetta gerðist I Rúss- landi 1937 og þetta hefur víða gerzt. Þetta er mjög slungið mál allt saman og ákærurnar I minn garð eru þungar," sagði Sævar Marfnó. „Ákæruvaldið krefst ævilangs fangelsis yfir mér. Það getur kraf- izt þess sem því sýnist. Ég lýsti þvl yfir hér I upphafi að ég væri saklaus og ég stend við þann framburð," sagði Sævar. Hann lýsti nokkuð dvölinni I fangelsinu sem hja honum var þá orðin tæplega 700 sólarhringar, eins og fram kom I ræðu verjanda hans, Jóns Oddssonar hrl. Hann kvaðst hafa orðið fyrir líkamlegu ofbeldi og játningar I belg og biðu hefðu verið framkallaðar með ýmsum hætti. „Þetta er heila- þvottur, þetta er andleg píning," sagði Sævar. „Virðulegu dómarar. Það er ykkar að dæma. Verið skynsamir," voru lokaorð hans. -BS. Nærri 30 klukkustunda mál- flutningi lauk um kl. 20.30 sl. föstudagskvöld I sakadómi. Undir síðari ræðu saksóknara, Braga Steinarssonar vararíkissaksókn- ara, hitnaði svo I kolunum og orðahnippingar urðu svo hvassar milli hans og verjenda að dómur- inn gerði hlé a maiflutningi. Fóru talsmenn aðila I bakher- bergi. Voru þeim bornir vindlar og sefandi viðræða aður en loka- spretturinn var hafinn. Þegar saksóknari og verjendur höfðu lokið máli sínu, neytti Sæv- Sævar Marinó Ciesielski, 22 ára: „Saklaust fólk er látið játa a sig rangar sakir...“ Ahugafólk um stofnun félags til þess að efla samskipti og sam- vinnu milli Islendinga og Græn- lendinga a sviði menningar, fé- lags- og atvinnumaia mun hittast í Norræna húsinu I kvöld (fimmtu- dag) klukkan 20. Þetta mun um leið verða stofnfundur Græn- landsvinafélags. Grænlandsvinir hafa lengi haft a orði sin á milli að eðlilegt væri að stofna félag til að auka sam- skipti okkar við næstu granna okkar í vestri. -KP. Sigurður örn Brynjólfsson höfundur þeirra Bísa og Krimma við tukthúsið á Skólavörðustig. Arangur hans í Berlín hlýtur að vekja mikla athygli. Heimssýning Clf*!IDMíllD ÍÍDkl teiknara íBerlín: OlViUIÍUUIt Ulfn MEÐAL ÞEIRRA BEZTU í KEPPNI647 TEIKNARA Teiknarinn okkar góði, hann Sigurður Örn Bryn- jólfsson, fékk óvæntan glaðningl póstinum a dögiin- um, þýzkan tékka asamt arnaðaróskum. Hann hafði lent í 6.-10. sæti í heimssýningu teiknara sem frarn fór i Vestur-Berlín a dögunum. Reyndar var sagt fra þessari sýningu i DB a manu- daginn var og verðlaunamyndin birt þar. Þetta er glæsilegur arangur hja Sigurði Erni þvi 1700 teikningar barust til þessarar heimskeppni eftir 647 teiknara fra 52 Iöndum. Sigurður Örn teiknar myndasöguna Bisa og Krimma sem ttndanfarnar vikur hefur birzt a 2. síðu Dagblaðs- ins og vakið verðskuldaða athygli. Sigurður starfar setn auglýsingateiknari hja Auglýsingaþjónustunni. Þetta er m.vndin eftir Gunter Hagedorn. Arið 2002: Torkennilegir hlutir yfir Winsen og Luhe. heitir hún og fyrir hana fékk hann fyrstu verðlaun. -JBP- íiitf » «#*0 et/íoti fflS* *<*><• ■£*«**,> mum llHigí ?(!,<)(>«< ÍÍM »ií <«,>■}>-• IM SSÍf I <«»*»» [ í.paf *»«»«>*•

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.