Dagblaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 2
2 Dúmbó og Steini. Steini er fimmti, talið frá vinstri. DB-mynd Ragnar Th. Dúmbó og Steini frábærir Skorað á þá að byrja aftur R.H. hringdi: „Mig langar til þess að biðja DB að koma á framfæri sér- stöku þakklæti til ■ Dúmbó og Steina sem skemmtu i Sigtúni um síðustu helgi fyrir alveg troðfullu húsi. Þetta var frábær upprifjun hjá þeim á gömlum lögum — maður endurlifði gamla og góða tíma með þeim. Það var troðfullt út úr dyrum og áheyrendur skemmtu sér hið allra bezta. Ég vil leyfa mér að skora á Dúmbó og Steina að taka aftur upp þráðinn og halda áfram að skemmta fólki.“ DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. OKTOBER 1977. Er kennaraháskóli á Akureyri lausn á kennaraskortinum? „Perpetuum Mobile“ skrifar: „A þessum siðustu og verstu tímum er mikið rætt um kenn- araskort og kennaravöntun. Mig langar því til að beina þeirri fyrirspurn til forráða- manna Kennaraháskólans hvort komið hafi til tals að stofna kennaraháskóla eða deild úr kennaraháskólanum a Akureyri. Ef svo er, hvenær yrði hún þá stofnuð. Ef svo er ekki, hvort ekki væri þörf á slikri stofnun í menntabænum Akur- eyri.“ Svar: Samkvæmt upplýsingum Baldurs Jónssonar rektors Kennaraháskólans stendur ekki til að skólinn eða hluti hans verði fluttur til Akureyr- ar. Baldur sagði að aðsókn að skólanum hefði að visu aukizt á seinustu árum, en skólinn væri ekki fjölmennari en svo að hann gæti annað þeim 400 nem- endum sem þar eru. A Akureyri eru margir skóiar. Myndin sýnir hinn myndarlega iðnskóia á Akureyri. Bréfritari vill gjarnan fá kennaraháskóla til Akureyrar, en ekki er útlit fyrir að honum verði að ósk sinni. V. Sd % Svart og brúnt leöur kr. 10.390 Svartogbrúnt leður kr. 9.735 Sparískór margar gerðir Ljóst leður kr.9.735 Póstsendum Lítil saga af „liðlegum” barþjóni „Ég ætla ekki að fara að vera neinr vatnsbrúsi fyrir dans- skólakrakka. Það er lágmark að þið kaupið eins og eitt glas á kvöldi, þið fáið hérna fina þjón- ustu, hreina dúka og ösku- bakka, svo þambið þið bara vatn allt kvöldið." Þetta sagði barþjónn a skemmtistað einum i Reykjavík er ég hugðist fá vatnsglös fyrir mig og unnustu mína. Eitt glas, takk fyrir og ekki meir. ísmola þorði ég ekki að biðja um. Er það svona sem þjónustan á að vera fyrir þá sem hyggjast eyða sunnudagskvöldi með dansi án áfengis. Einn borðfélaginn brá nú við og tfndi saman öskubakkana af borðinu, þvi þeir voru ekki not- aðir, og fór með þa til hins „skapgóða“ barþjóns. Ætlaði hann að fá skipt á bökkunum og einu glasi af vatni. NEI..NEI.. var eina svarið sem fékkst. Skömmu siðar fór ég á bar- inn og hitti þar sama „vininn". Eg rétti honum glasið sem ég hafði fengið hjá honum fyrr um kvöldið og bað um kók. Bauðst ég til að nota sama glasið til þess að hann þyrfti að hafa sem allra minnst fyrir okkur. Ég fékk kókið fyrir 250 kr„ en ekki orðalaust. Barþjónninn sagði að við skyldum fá að vita að við fengjum ekki að sitja við þetta sama borð ef við kæmum aftur um næstu helgi. Hann skyldi ekki láta okkur fá borð aftur! Sem sagt. Engin þjónusta fyrir þá sem ekki drekka. Þetta gekk alveg fram af mér, sérstaklega þar sem ég hafði fyrir stuttu verið í Sjall- anum á Akureyri og fengið hina beztu þjónustu þótt ég ^ bæði aðeins um vatn. Þar kost- aði að visu eina kílókrónu inn, því þetta hét skemmtikvöld, en skemmtararnir voru ballgest- irnir sjálfir. Með beztu kveðju til bar- þjónsins „liðlega". Guðni Gíslason, Hafnarfirði. 5URÐUAÐS0 I grein Sigga flug i blaðinti i gær misritaðist 5 sentilitrar og voru þeir gerðir að 50 sentílítrum. Ertt lesendur beðnir vel,virðingar A þessum mistökum.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.