Dagblaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBF.R i<»77 VERKFALL SETUR MÓT ÚR SKORÐUM r — Islandsmótið í handknattleik og Reykjavíkurmótið Það er oft svo að þegar tvelr deila bitnar það á þeim er sízt skyldi. Svo er nú um verkfali opinberra starfsmanna. Það bitnar ðkaflega hart á aimenningi — þð sér í lagi á Reykjavíkur- svæðinu. Þannig ganga engir strætisvagnar í borginni — það bitnar raunar á þeim er sízt skyldi, börnum og öldruðu fólki, þeim er ekki hafa bifreið til umráða. Iþróttahreyfingin virðist ætla að fara mjög illa út úr verkfalli opinberra starfsmanna. Iþrótta- mót hafa þegar verið sett úr skorðum. Þannig hefur orðið að fresta tveimur leikkvöldum í 1. deild Islandsmótsins í handknatt- leik — og einni umferð í Reykja- víkurmótinu í körfuknattleik. Ákaflega bagalegt fyrir þessa aðila—mest allt starf á vegum hreyfingarinnar er unnið í sjálf- boðavinnu. Þannig mætti fjöldi ungra drengja vestur í Hagaskóla til að leika í Reykjavíkurmótinu — starfsmenn hússins búnir að opna vegna þess að ádráttur hafði verið gefinn um að körfuknatt- leiksmenn mættu leika. En skyndilega breyttist allt — boð komu um að „reka alla út á stundinni". Hætta varð við leik- kvöldið — ungir strákar höfðu komið víða að úr borginni, margir íkörfu verða illa úti gangandi, og vonbrigði þeirra urðu mikil. Alþýðusamband Islands hefur gefið undanþágur til íþrótta- iðkana I verkföllum ASl — þvi var búizt við að BSRB fylgdi í kjölfar ASt og leyfði slíkt hið sama. Jú, menn sjá ekki að sett sé pressa á stjórnvöld með því að banna íþróttaiðkanir og kappleiki. Öbilgirni virðist hafa hlaupið í báða aðila — vonandi sjá verk- fallsmenn að sér áður en þeir bókstaflega leggja í rúst heil landsmót með þvi að setja þau úr skorðum. Teknir með falsaða $ Einn efnilegasti knattspyrnu- maður á Englandi.Rashid Harkouk, og annar leikmaður Crystal Palace, sem nú leikur í 2. deild, voru í gær handteknir, þar sem þeir höfðu undir höndum 25 þúsund dollara, í fölsuðum seðlum. Harkouk var settur úr liðinu — en hann hefur verið metinn á 300 þúsund sterlingspund, ef Crystal Palace kærði sig um að selja hann. A Islandi aka yfir ^ 2700 BILAR með Lumenitgon Daglega f jölgar þeim bílum, sem aka með þessum bún aði, enda er platínulausa transistorkveikjan fré LUMENITION örugg fjárfesting, sem wiargskilar hagnaði. Yf ir 2ja ára reynsla íslenzkra ökumanna hef ur staðfest tvennt: #• Raunverulegur benzínsparnaður er a.m.k. kr. 8 pr. Itr. Meðaltal sem miðast við kr. 88 pr. Itr. © Gangöryggi, sem tryggir stöðuga hámarksnýtingu vél- araflsins. Algengustu gangsetningarvandamál og rykkjóttur akstur með kaldri vél eru úr sögunni. Spyrjið LUMENITION-eigendur um þeirra reynslu. ágiBBft TOð aáSm HABERGhf Skeifunnl 3e • Simí 3'33‘45 Don Masson, fyrirliði skozka landsliðsins skoraði úr vitaspyrnu í gærkvöld — hér skorar hann gegn Argentinu úr vítl í s i KhftÍMBWBMII í ^ K , ðSS Skotar fögnuðu á Ai sæti i úrslit í Argei —Skotar itrðu f immta þjóðin til að tryggja sér sæti í úrslit Hll Skotar urðu fimmta þjóðin til að tryggja farseðilinn i úrslitakeuoni Heimsmeistarakeppninnar i Arg- entínu næsta sumar — ruddu Evrópumeisturum Tékka og Wales úr vegi á leið sinni. Skotar sigruðu Wales- búa i gærkvöld 2-0 á Anfield Road í Liverpool. Anfield Road — leikvöllur Liverpool var þéttsetinn, færri komust að en vildu. Þannig brotnaði niður aðalhlið Ieikvangsins vegna áhorfenda sem vildú komast til að fylgjast með leikn- um. Skotar byrjuðu vel — en Wales- búar komu meir inn i myndina og náðu undirtökunum í leiknum. Wales, drifið áfram af góðum leik John Mahoney og Terry Yorath, réð meiru um gang leiksins — Skotar vörðust vel. En lánið lék ekki við Walesbúa — á 78. mínútu var dæinjl vítaspyrna, umdeild vítaspyrna á Wales. David Jones, miðvörður Norwich, en hann kom f stað Dave Roberts, Hull, sem meiddist á æfingu um daginn, virtist handleika knöttinn í eigin vítateig. Hinn franski dómari leiksins dæmi umsvifalaust vítaspyrnu. Dómurinn var umdeildur — og Mike Smith, einvaldur velska liðsins sagði eftir leikinn: „Enginn leikmanna minna handlék knöttinn. Eg hélt að um brot hefði verið að ræða.“ Sjónvarpsvélar sýndu síðar um kvöldið að Jones hefði ekki handleikið knöttinn — Joe Jordan hafði hins veg- ar gert það, að því er virtist. Dómarinn sagði eftir leikinn, að hann hefði dæmt hönd. Hvað um það — Don Masson fyrir- liði skozka liðsins skoraði örugglega úr vítinu. Þrátt fyrir markið sóttu leik- menn Wales stift þær 12 mínútur, sem eftir voru en Skotland skoraði aftur á 86. minútu — frábær sending Martin Buchan a Kenny Dalglish, sem skallaði knöttinn glæsilega I netið. Vonir Wales voru úti — Skotland hafði hins vegar tryggt sér farseðilinn til Argentínu. Skotar meðal hinna 55 þúsund ahorf- enda á Anfield Road I Liverpool fögnuðu innilega, allt Skotland fagnaði. Skotland var eina liði frá Bret- landseyjum til að tryggja sér far- seðlinn til V-Þýzkalands ’74 — óg svo virðist sem sagan ætli að endurtaka sig, Skotland verði eina þjóðin frá Bret- landseyjum til að eiga fulltrúa meðal 16 beztu knattspyrnuþjóða heims. Lið Skota var þannig skipað: Rough, Partic, Jardine, Rangers, Buchan Man. Utd., kom í hans stað. McQueen, Leeds, Forsyth, Rangers, Uonacnie, Man. City, j Davies, Wrexham, Thomas, Derby, Masson, QPR, Hartord, Man. City, joneS( Norwich, Phillips, Aston Villa, Dalglish, Liverpool, Jordan, Leeds, og jones, Liverpool, Mahoney, Stoke, Johnston, WBA. Flynn, Burnley, Yorath, Coventry, Lið Wales var þannig skipað — | Sayer, Cardiff, Thomas, Wrexham og Sitfurlið Hollai bæði stigin í I —og Holland því með annan fótinn í úrsliti Silfurhafarnir frá siðustu heims- j sigraði N-Iriand 1-0 í gærkvölt meistarakeppni, Hollendingar, eru nú og hefur nú þriggja stiga forustu á þröskuldi heimsmeistarakeppninnar fjórða riðli, þrjú stig framyfir Belga í Argentínu 1978 — með sigri í Belfast Belgar eru nú eina þjóðin, sem ógnat eru Hollendingar komnir með annan getur sigri Hollendinga í riðlinum, N fótinn í úrslitakeppnina. HoIIand I írar og íslendingar eru úr leik. Vonir Olympíumeistara A-Þýzkalands litlar Ólympiumeistarar A-Þýzkalands, eina liðið sem sigraði heimsmeistara V-Þýzkalands í heimsmeistarakeppn- inni i V-Þýzkalandi 1974, á nú sáralitla möguleika til að komast i úrslit HM i Argentínu 1978. A-Þjóðverjar náðu aðeins jöfnu gegn Austurrikismönnum í Leipzig í gærkvöld — að viðstöddum 95 þúsund áhorfendum, aðeins jafn- tefll 1-1. Austurrikismenn eru því með annan fótinn í Argentínu. Hafa hlotið 8 stig úr fimm leikjum, tvö jafntefli gegn A-Þýzkalandi. En A-Þjóðverjar geta engum nema sjálfum sér um kennt — nú annað jafnteflið a heimavelli, fyrst gegn Tyrklandi og nú Austurríkis- mönnum. Látlaus sókn A-Þjóðverja all- an leikinn en þrátt fyrir það varð Austurriki fyrra til að skora. Hatten- berger lék a þrjá varnarmenn A- Þýzkalands, síðan á Jurgen Croy, mark- vörð Þjóðverja og renndi knettinum í autt netið, 0-1. Og markið kom á ákaf- lega þýðingarmiklu augnabliki, síðustu mínútu fyrri haifleiks. A-Þjóðverjar settu nú allt sitt í sókn- ina og þegar á sjöttu mínútu siðari hálfleiks jafnaði A-Þýzkaland, Löwe skoraði eftir sendingu Schade, 1-1. Hinir 95 þúsund áhorfendur hvöttu sína menn ákaft til dáða — en tækifær- in fóru hvert eftir annað forgörðum. Hafner misnotaði tvívegis góð mark- tækifæri og Riedeger einu sinni — og Riedeger fékk sannkallað gull af tæki- færi en misnotaði það. Knötturinn small í þverslá austurríska marksins féll fyrir Riedeger sem stóð einn fyrii opnu marki — en honum brást boga listin, skallaði yfir. Því jafntefli 1-1 — og leikmenn Austurrfkis fögnuðu inni lega. Eftir mögur ár hefur Austurrik aftur skipað sér a bekk fremstu knatt spyrnuþjóða heims — fremstu knatt spyrnuþjóða Evrópu. Staðan í riðlinum er nú: Austurríki A-Þýzkaland Tyrkland Malta 5 3 2 0 13-2 8 4 1 3 0 4-3 5 3 111 5-2 3 4 0 0 4 0-15 C

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.