Dagblaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. OKTOBER 1977. Er sauðfé friðhelgt á Reykjanesskaga? Sauðfé veldur störhættu á Keflavíkurflugvelli 9 \ Aukinn ágangur sauöfjár hefur valdiö flugumferðar- stjórum a Keflavíkurflugvelli miklum áhyggjum í sumar. Mikið er um sauðfé á þessu svæði og girðingin umhverfis flugvöllinn er ekki fjárheld og hefur aldrei verið. Þessi sauðfjárágangur hefur stórhættu í för með sér fyrir allt flug. Á undanförnum árum hafa smalar verið ráðnir til að smala svæðið og halda fénu í burtu og f vor var ráðinn maður, sem svaraði útköllum, en hann hætti um það leyti sem landgræðslugirðing viö völlinn var fullgerð, en hún hefur komið að litlum notum. Nú er enginn smali á vellin- um og verða flugumferðar- stjórarnir sjálfir eða menn frá varnarliðinu að stugga við fénu og reka þeir það þá stytztu leið f gegnum girðinguna. Þetta er að mati flugumferðarstjóranna hið mesta ófremdarðstand enda er það á þeirra ábyrgð að flug- brautirnar séu hreinar þegar flugvélum er veitt heimild til lendingar eða flugtaks. Bogi Þorsteinsson yfirflug- umferðarstjóri sagði að þetta ástand hefði aldrei verið viðun- andi, þótt það hefði verið verra í sumar en áður. Auðvitað á flugvöllurinn að vera þannig girtur að hvorki kvikfénaður né óviðkomandi aðilar geti verið þar á ferli. Vfrnetsgirðing er einungis á þeirri hlið sem snýr að byggðinni en sfðan er stór hluti flugvallarsvæðisins girtur með gaddavfr sem alltaf þarf endurnýjunar við, auk þess sem gaddavfr heldur fé aldrei almennilega. Sauðkindin virðist friðhelg á skaganum, þrátt fyrir það að svæðið vestan landgræðslu- girðingarinnar skuli friðlýst landgræðslusvæði. Það er eins og það sé nokkurs konar einskismannsland á flugvellin- um. Það er gefin út skipun af bæjarfógetanum í Keflavfk og sýslumanninum f Gullbringu- sýslu um að hafa sauðlaust land innan landgræðslugirðingar- innar en engin slfk skipun hefur verið gefin út um Kefla- vfkurflugvöll sem fellur undir embætti lögreglustjórans þar. -JH. Flat- eyri: UTKOMAN BATNAR VIÐ ENDURSKOÐUN 1 ljós hefur komið að tala í fyrstu grein Dagblaðsins um „Flateyrardæmið" var röng. Sagt var að innheimta opinberra gjalda á Flateyri 1974 hafi verið 51% en við yfirstandandi endur- skoðun reikninganna hefur kom- ið í ljós að innheimtan var 91,6% að sögn Þórðar Gíslasonar, hag- ræðingarráðunauts og fyrrum sveitarstjóra á Flateyri, sem vinnur að endurskoðuninni. Sagði Þórður í samtali við fréttamann DB að meðaltalsinn- heimta áranna 1974-1976 væri því um 87%!Þórður nefndiþessa tölu með fyrirvara um útkomu endan- legrar endurskoðunar. Þá var vegna mistaka birt mynd frá Suðureyri við Súganda- fjörð með fyrstu Flateyrar- greininni á laugardaginn. DB biðst velvirðingar á þessu. -OV. Ný sambyggð trésmíðavél frá íslenzkt leikrit á fjalirnar á Akranesi Það fer vart framhjá neinum, sem nýtur þess sem Skagaleik- flokkurinn sýnir um þessar mundir að japönskum áhrifum bregður fyrir i leiknum. Sem dæmi má taka förðunina, sem er dálitið öðruvísi en við eigum að venjast. Það er leikstjórinn Haukur Jón Gunnarsson sem hefur sett Höfuðbólið og hjá- leiguna á svið. Hann hefur dvalið lengi í Japan og lagt stund á leik- húsfræði þar, en hann hefur komið víða við og útskrifaðist frá háskólanum f Hull í Englandi með próf f leikhúsfræðum fyrir tveim árum. Skagamenn telja mikinn feng að veru Hauks Jóns hjá félaginu og telja hann eiga sinn þátt f þeirri grósku sem þar er í leiklist- inni. Leikritið Höfuðbólið og hjáleigan er eftir Sigurð Róbertsson en verk hans var eitt þeirra sem komust í úrslit f sam- keppni sem efnt var til á þjóðhatíðarárinu 1974. Aðalhlutverkin leika Þorvaldur Þorvaldsson, Anton Ottesen, Pálmi Pálmason, Vaka Haralds- dóttir og Jakob Þór Einarsson. Belgíu, með þrem einfasa 220 volta mótorum til sýnis næstu daga ÁRMÚLA 32 - REYKJAVÍK - S!M! 86466 - PÖSTHÖI F 7074 GLÆSILEGIR SÓLARLANDA FERÐAVINNINGAR Á EINU OG SAMA KVÖLDINU Skemmtiatriöi: Hinn frábæri Jörundur flytur nýja skemmti þætti og kynnir efni af nýrri hljómplöti^^^pj^ stutt ferðakynning: SagtfráKanaríeyja- m og Öörum spennandi röamöguleikum ívetur TÍZKUSÝNING Karon, samtök sýnmgarfólks, sýnir vetrartízkuna. Fegurðardrottning Islands 1977 og nngfní Reykjavík 1977 ásamt fleiri stiílkum, sem tekið hafa þátt ffegurðarsamkeppnum erlendissýnaþaðnýjastaitfekunni II Ferðaskrif stofan SU N N A

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.