Dagblaðið - 13.10.1977, Síða 10

Dagblaðið - 13.10.1977, Síða 10
1Q DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1977. MMBIABW trjálst, nháð dagblað Útgefandi Dagblaöift hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Krístjánsson. Frettastjóri: Jón Birgir Pótursson. Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjórnar: Johannes Reykdal. íþróttir: Hallur Simonarson. Aftstoftarfróttastjóri: Atli Steinarsson. Handrit: Ásgrimur Pálsson. Blaftamenn: Anna Bjamason. Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurftsson, Dóra Stefánsdóttir. Gissur Sigurftsson, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jónas Haraldsson. Katrín Pálsdóttir, Ólafur Geirsson, Ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson, Ragnar Lái. Ljósmyndir: Bjamleifur Bjarnleifsson. Hörftur Vilhjálmsson, Sveinn Þormóftsson. Skrifstofustjori: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Þráinn Þorleifsson. Dreifingarstjóri: Már E. M. Halldórsson. Ritstiorn SíAumúla 12.. AfgreiAsla Þverholti 2. Áskríftir. auqlvsingar og skrifstofur Þverholti 11. AAalsími blaAsins 27022 (10 línur). Áskríft 1500 kr. á mánuAi innanlands. i lausasölu 80 k eintakiA. Setning og umbrot: DagblaAiA og Steindórsprent hf., Ármúla 5. Mynda og plötugerA: Hilmirhf. SiAumúla 12. Prentun: Árvakur hf. Skeifunni 19. Uggvænlegt frumvarp Uggvænlegt er fjárlagafrum- varpið, sem ríkisstjórnin lagði fyrir alþingi í fyrradag. Samnefn- ari ótíðindanna er hækkun þess frá því í fyrra, sem nemur tæpum 49%. Verðbólgan á greinilega að hafa sinn hraða gang hér eftir sem hingað til. Eins og venjulega er reynt að ljúga að fólki í greinargerð frumvarpsins. Þar er því haldið fram, að hækkunin milli ára sé ekki nema 27%. Sú tala fæst með því að miða við fjárlögin eins og þau voru endanlega afgreidd í fyrra. Fjármál hvers árs mótast í þremur þrepum hjá ríkinu. Fyrst kemur frumvarpið, síðan fjár- lögin og loks ríkisreikriingurinn. Hvert þessara þriggja plagga hefur sitt talnakerfi, enda samin á ýmsum tímum, aðskilin misjafnlega langri verðbólguþróun. Ógerlegt er að bera fjárlagafrumvarp ársins 1978 saman við fjárlög eða ríkisreikning ársins 1977. Tölurnar eru einfaldlega ekki sömu ætt- ar. Hið eina sanngjarna er að bera frumvarp ársins 1978 saman við frumvarp ársins 1977. Þar með fæst samanburður á fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar í október á þessu ári og í október í fyrra. Úr slíkum samanburði kemur sú óhugnan- lega niðurstaða, að í október í fyrra hugðist ríkisstjórnin láta ríkið nota rúmlega 83 millj- arða króna á árinu 1977, en nú hyggst hún samkvæmt frumvarpinu nota rúmlega 123 milljarða króna á árinu 1978. Þetta jafngildir 49% hækkun, en ekki 27%. Ekki andar hlýju í garð almennings í frum- varpinu. Þar stendur: „...með því að beita skött- um á árinu 1978 þannig, að vexti einkaneyzlu verði í hóf stillt.“ Á mæltu máli þýðir þetta, að hækka eigi skatta á fólki, svo að það beri minna úr býtuni en ella. Ein slík hækkun er þegar komin inn í frum- varpið. Það er 15 króna hækkun bensíngjalds og hliðstæð hækkun þungaskatts. Hækkunin er afsökuð með auknum vegaframkvæmdum, þótt tekjur ríkisins af umferðinni séu miklu meiri en útgjöld vegna vega og annarra umferðar- mála. Sem betur fer eiga umsvif ríkisins ekki að aukast, þrátt fyrir 49% hækkun frumvarpsins milli ára. Sjálfur reksturinn á að hækka um hálft annað prósent eða sem svarar íbúafjölg- uninni. Og opinberar framkvæmdir eiga að dragast saman um 5%. Þetta væri gott og blessað, ef ríkisstjórnin hefði ekki áður gert sig seka um að magna rekstur og framkvæmdir ríkisins. Á undanförn- um árum hefur ríkisgeirinn og útþensla hans verið öflugasta vél verðbólgunnar. Þær syndir hefði nú mátt fyrirgefa, ef hlutdeild ríkisins í þjóðarbúinu hefði í frumvarpinu verið færð niður í það, sem hún var á síðasta ári vinstri stjórnarinnar. Þá hefðum við getað sagt, að helmingaskipta- stjórnin væri ekki verri en vinstri stjórnin. En nýja fjárlagafrumvarpið gefur því miður ekki tilefni til svo vinsamlegra ummæla. Kjarni málsins er sá, að ríkisstjórnin spáir 49% verðbólgu milli áranna 1977 og 1978 og ætlar að láta' ríkið taka af fullum krafti þátt í verðbólgukapphlaupinu. Unnendur svarts hass frS Líbanon mega eiga von á mikilli veröhækkun á vörunni S næstunni. Þ6 hassneyzla sé ólögleg og mörg riki heims — þar a meðan Island — leggi í mikinn kostnað til að koma í veg fyrir neyzlu hass er öllum sem vilja vita ljóst hvaðan hassið kemur. Einnig má öllum vera ljóst að þetta efni flæðir tiltölulega frjálst um alla Vest- ur-Evrópu og víðar. I ljósi þess er fróðlegt að iesa eftirfarandi upplýsingar sem byggðar eru á viðtali við með- lim fjölskyldu sem hefur fram- færi sitt af verzlun með hass. Hún býr í Líbanon, sem til skamms tíma var talið það ríki sem fremst stóð menningarlega af löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs að Israel undan- skildu. Síðan hefur geisað þar blóðugt borgarastríð og af- leiðingar þess eru mikil verðhækkun á hassi. Fyrsta uppskeran eftir að skærur borgarastríðsins rén- uðu er nú að koma á markað. Er hún sögð bæði mikil að magni og gæðum. Blómatími borgara- stríðsins er liðinn Ali, sá sem rætt er við um hassmarkaðinn, telur verð- hækkunina hafa verið óhjá- kvæmilega. Ali ætti að vera fær um að dæma um nauðsynina, því fjölskylda hans ræður yfir um það bil helmingi markaðarins í Líbanon. Hass frá Lfbanon er' talið mjög gott og er því yfirleitt f háu verði. En Ali heldur áfram: „I hass- viðskiptum er það eins og í öðrum viðskiptum. Við verðum að greiða meira en áðuf fyrir ræktunina og flutninga. Stærsti liðurinn er mútur svo við getum flutt hassið úr landi. Þess vegna þurfti verðið lfka að hækka. A meðan á borgarastrfðinu stóð notuðum við tækifærið og jukum framleiðsluna mikið. Stjórnvöld höfðu um nóg annað að hugsa en hassútflutning. Þannig er líklega svo komið að hass sé verðmætasta út- flutningsvara landsins." Embœttismenn taka 10 milljónir fyrir hver 6 tonn útflutt „En frelsið stóð ekki til Af hassviöskiptum i Líbanon þar sem mútur eru hæsti kostnaðarliðurinn eilífðar," segir Ali mæðulega. Nú eru lögreglumenn og aðrir embættismenn mættir til leiksins og þeir krefjast síns hluta fyrir að láta útflutning- inn afskiptalausan. Fyrir hver sex tonn af hassi sem fUitt eru út vilja embættis- mennirnir fa 50.000 dollara, sem eru jafnvirði 10 milljóna íslenzkra króna og liðlega það. Heiztu framleiðslutegundirn- ar eru rauður Líbanon, sem er úrvalið, einnig má nefna svart- an Líbanon og hassolíu, sem er um það bil 10 sinnum sterkari en venjulegt hass í sama þunga. Að sögn Ali er uppskeran í ár mjög góð. „Allah sendi okkur svalan vind ofan af fjöllunum. Hann er eins góður og frjósam- ur jarðvegur. Þegar vindinn lægir minnka gæði hassplönt- unnar. Uppskeran á hassökrum Líbanon verður að sögn Ali um það bil 1200 tonn. Holland var áður góður viðskiptaaðili en nú hafa þeir snúið sér meir og meir til Egyptalands og kaupa nú nálægt þriðjungi af uppskeru þeirra. Hertar aðgerðir gegn inn- flutningi til Bretlands hafa 1 borgarastríðinu voru Líbanonmenn uppteknir við að skjóta á hver annan, eyðileggja borgir og byggingar og fleira sem tilheyrir styrjöldum. Þá ’voru blómatímar á hassmörkuðum. Nú eru embættismennirnir komnir aftur til starfa og þár með bætist nýr kostnaður við þegar hassinu er komið til neytenda í Evrópu, mútur til embættismanna. ÞAR STENDUR HNÍFURINN f KÚNNI Það er ýmislegt sem bendir "~-ti! þess að í næstu kosningum muni göngur og réttir stjórn- málaflokkanna ekki ganga fyrir sig á hefðbundinn hátt. Fólk spáir nú meira i hlutina en áður og þessar vangaveltur stafa af því að mörgum er að verða það ljóst að nú eru efna- hagsmál komin á það stig að enga hliðstæðu er að finna á lýðveldistímabilinu. En þó að aimenningur sé að vakna þá ber ekki á þvf að stjórnmálaflokkarnir hafi þungar áhyggjur. Þeir sem leggja línurnar í dagblöðunum virðast ekki skynja neitt. Þeir dvelja ennþa inni I sínum litla flokksheimi þar sem stöðugt verður meira rökkur. Nú verður reynt að renna stoðum undir þessa fullyrðingu og reifa þá kosti sem völ er á. Þar sem hið svokallaða lýðræðisfyrirkomulag ríkir safnast vissir hópar manna saman í stjórnmálaflokka. Þessir flokkar reyna síðan að koma sér saman um stjórnun eftir leikreglum lýðræðisins. Þó að ýmsar undantekningar séu á því gerist þetta oftast þannig að stjórnmálaflokkur verður til vegna þess að fólk með svipuð sjónarmið binzt V - samtökum um að vinna að framgangi þeirra mála sem það telur samræmast hagsmunum sfnum. Þannig verða til verka- lýðsflokkar og flokkar hlynntir atvinnurekendum o.s.frv. Ef þessum hlutum væri ekki þannig varið væri ekki þörf á stjórnmálaflokkum eða þá ekki nema einum flokki en það fyrirkomulag hefur verið reynt i mannkynssögunni með mis- jöfnum árangri. Á tslandi eru nú starfandi fjórir lifandi stjórnmálaflokkar sem 1 upphafi voru allir stöfn- settir til þess að vinna að fram- gangi vissra þátta í þjóð- félaginu og til þess að vernda hagsmuni sérstakra stétta. Ekki er það tilgangur þessara orða að rekja sögu þessara flokka heldur að drepa aðeins á núverandi ástand þeirra. Þróunin sem allir hlutir eru háðir verður þess valdandi að öll hugtök verða afstæð. Sann- leikur í gær getur orðið lygi i dag. Framsóknarflokkurinn er sérstakt dæmi um þetta. Framsóknarflokkurinn í nú- verandi mynd brýtur raunar i bága við það sem á undan er sagt um forsendur stjórnmála- flokka. Til þess að mæta breytt- um þjóðfélagsháttum hefur þessi stjórnmálaflokkur tekið upp þá stefnu að þjóna ólíkleg- ustu sjónarmiðum. Innan hans eru öfl sem spanna allt pólitíska litrófið. Hugmyndafræði Framsókn- arflokksins er afar einföld. Við erum í miðjunni. Við erum reiðubúnir að vinna þetta kjör- tímabilið með þessum og næsta kjörtímabil með hinum. Málefni skipta okkur litlu máli. Þegar Framsóknarflokkur- inn er í hægra samstarfi verður hann helmingi íhaldssamari en sá flokkur sem þjónar atvinnu- rekendum. Þegar hann er í vinstra samstarfi er hann reiðu- búinn til að styðja ýmis góð verk ef það kemur ekki inn á fyrirtæki sem tengd eru flokkn- um. Dæmi um þetta er fyrrver- andi og núverandi stjórnarsam- starf Framsóknarflokksins. I vinstristjórninni var flokkurinn reiðubúinn að gangast inn á ýmsar umbætur f félagslegum efnum.Sömu mennirnir semtóke þátt i endurbótum a kjörum lítilmagnans í vinstri stjórn ganga nú frani f að afnema þau. Dæmið um afstöðu flokksins f utanrlkismálum er kómfsk tragidfa.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.