Dagblaðið - 15.11.1977, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. NOVEMBER 1977.
Raddir lesenda eru á bls. 2-3 og 4 í dag
Fékk Mallorkaferð íbingóverðlaun:
FERÐIN VAR ALDREIFARIN
—og Club Mallorka neitar að greiða andvirði
ferðarinnar
SS ræddi við þáttinn í síma:
Fyrir rúmum tveimur árum fór
ég ásamt vinafólki mínu á
skemmtikvöld á Hótel Sögu. Rifj-
aðist þetta upp fyrir mér, þegar
ég las frétt í Dagblaðinu um Club
Mallorka. Salurinn var þéttsetinn
prúðbúnu fóiki, og þar á meðal
var Spánverji, sem kynntur var
sem borgarstjóri í Palma á Mall-
orka að ég held.
Meðal skemmtiatriða var bingó-
spil, — og ég hafði víst heppnina
með mér, því ég vann ferð til
Mallorka og það gerði önnur
kona reyndar líka. Var ég heldur
en ekki glöð með vinninginn og
þetta ágæta kvöld. Var mér tjáð
að ég gæti farið hvenær sem ég
vildi sumarið 1976. Er ekki að
orðlengja að um veturinn fór ég
að hlakka til þess sem var í vænd-
um.
Um vorið og sumarið kom hins-
vegar í ljós að þetta Club Mall-
orka var eitthvað skrítið fyrir-
bæri. Ég náði tali af formannin-
um, sem þá var Axel Gomez held
ég að maðurinn hafi heitið. Hann
sagði mér að hann væri ekki
lengur formaður, en ég gæti
snúið mér til arftaka hans og
fengið vinninginn greiddan út,
þvi ekki væri útlit fyrir að félagið
gengist fyrir sumarferðum til sól-
arstranda Mallorka. Þetta gerði
ég, en fékk þau svör, að vinningur
þessi væri núverandi stjórn óvið-
komandi.
1 stuttu máli — ég fékk hvorki
farseðilinn né andvirði hans í
peningum. Finnst mér samtök
þessi vægast sagt undarleg, því
áreiðanlega hafa þau haft eitt-
hvað af fé upp úr krafsinu, þó
ekki væri nema fyrir félagsgjöld
og bingókvöldið góða á Sögu.
Ekki veit ég hvort hin konan,
sem var svo ljónheppin að fá eins
,,vinning“ og ég, hefur sömu sögu
að segja, en gaman væri að vita
það.
Ragnar
saklaus
af laga-
smíðinni
„Ragnar Aðalsteinsson lögfræð-
ingur hringdi til min og óskaði
eftir, að ég leiðrétti þann mis-
skilning, sem hann telur að komi
fram í kjallaragrein minni 4. nóv-
ember. Hann kveðst ekki hafa átt
neinn þátt í að semja lög fyrir
Heimamenn s/f í Þörungavinnsl-,
unni.
Fullyrðing mín byggðist hins
vegar á upplýsingum, sem ég taldi
gildarogfæ ég trúlega skýringar
þar á, en þar sem þetta breytir í
engu efnislega því, sem ég sagði,
má þetla gjarnan koma fram.“
Bragi V. Björnsson,
öflunarstjóri
Þörungavinnsiunnar.
Hringiöísíma
27022
millikl.l3ogl5
Bréfritari var búinn að hlakka til Mallorka-ferðarinnar allan veturinn og hefur líklega séð sjálfa sig
anda sólbrúna á sendinni strönd með ískaldan svaladrykk í hendi. Svo varð aldrei af ferðinni.
6. Þií labbar inn til þín, afslappaður, írólegheitum þvíþií ert hættur
að slást við hurðir, þú kannt að nota þér ameríska yfirburðatækni
5. Hurðin lokast á eftir þér
4. Þú ekur inn úr kuldanum
Sjálfvirkir hurðaopnarar fyrir:
Alla bílskúra — Fyrírtæki — Bifreiðageymslur fyrir fjölbýlishús
Svo einfalt...
1. Þú hringir íStáltæki. sími 27510 og pantar bílskúrshurðaropnara.
Við komum j heimsókn
2. Þú þrýstir á hnappinn inni í
hlýjum bflnum
3. Hurðin opnast sjálfkrafa
og kveikir Ijés
Amerísk
yfirburðatækni
— Eins árs ábyrgð
— Fullkomin viðgerða-
og varahlutaþjónusta
CASIO-UMBOÐIÐ
STÁLTÆKI
Bankastræti8
Sími 27510
Spurning
dagsins
Drekkuröu mikiö
af
gosdrykkjum?
(Starfsmenn kókverksmiöjunnar
spurðir).
Kristján Tómasson, 20 ára: Það er
heilmikið. Nei, ég er ekkert
hræddur við kaloríurnar í gos-
drykkjum.
Guðmundur Guðmundsson, 78
ára: Nei. Ég hef aldrei drukkið
gosdrykki og fer varla að gera það
úr þessu.
Jón Sigurðsson, 26 ára: Nei, það
geri ég ekki. Aðeins mjög litið.
Sigurður Jónsson, 54 ára: Það er
sáralitið og aldrei kók. Mér finnst
gosdrykkir vera allt of sætir, en
er ekkert að hugsa um hitaeining-
arnar.
Þorgils Þorvarðarson, 17 ára: Já,
ég geri mjög mikið að þvi.
Auðvitað helzt kók.
Björn Baldursson, 17 ára: Já. ég
drekk heilmikið af gosdrykkjum
og auðvitað ekkert nerna kók!