Dagblaðið - 15.11.1977, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. NOVEMBER 1977.
Fleirí greiöa
lægri upphæð hver
Hvaö er þessi virðisauka-
skattur sem brátt á að taka upp
hér? Forsætisráðherra sagði í
stefnuræðu sinni að virðisauka-
skatturinn mundi koma í kjöl-
far staðgreiðslukerfis sem
komið yrði á 1. janúar 1979.
Virðisaukaskatturinn ætti að
leysa söluskatt af hólmi.
Virðisaukaskattur er í eðli
sínu „söluskattur" í öðru formi.
Hann er lagður á söluverð vöru
og þjónustu á öllum viðskipta-
stigum, þannig að hin ýmsu
fyrirtæki, sem um vöruna
fjalla, greiða skatt á hinum
ýmsu stigum. Þegar fyrirtækið
innheimtir skattinn fyrir ríkið
má það draga frá þeim skatti þá
upphæð sem það hefur áður
greitt í virðisaukaskatt við
kaup á vörunni og hvers konar
aðföngum. Því verður ekki um
margsköttun að ræða. Virðis-
aukinn svokallaði er söluverð-
mæti vöru og þjónustu ákveð-
ins fyrirtækis að frádregnum
þeim vörum og þjónustu sem
fyrirtækið hefur keypt frá öðr-
um fyrirtækjum eða innflutn-
ingi. Bezt er að skýra skattinn
með einföldum dæmum:
Neytandinn greiðir
hið sama og fyrr
Framleiðandi hráefnis selur
vöru fyrir 1.000 krónur. Hann
greiðir skatt af því, segjum
20%, eða 200 krónur í virðis-
aukaskatt.
Þá tekur við vörunni fram-
leiðandi sem fullvinnur hana.
Hann kaupir vöruna á 1.000
krónur af hráefnisframleiðand-
anum og selur á 1.600 krónur.
Hann greiðir skatt af mismun-
inum, ,,virðisaukanum“, eða
600 krónum. Skatturinn verður
120 krónur.
Heildsali kaupir vöruna af
honum 1.600 krónur og selur á
1.800 krónur. ,,Virðisaukinn“
þar er því 200 krónur og skatt-
-urinn 40 krónur.
Smásali kaupir vöruna af
heildsalanum á 1.800 krónur og
selur til neytanda á 2.300 krón-
ur. „Virðisaukinn", mismunur-
inn á kaupverði og söluverði, er
500 krónur og skatturinn því
100 krónur sem smásalinn innir
af hendi.
Þegar lagt er saman hvað
allir þessir aðilar hafa greitt í
skatt koma út 460 krónur, sem
eru einmitt 20% af söluverðinu
til neytandans, sem er 2.300
krónur, eins og um núverandi
söluskatt væri að ræða. Munur-
inn er sá að hinir ýmsu aðilar
greiða á hinum ýmsu stigum,
þegar um virðisaukaskatt er að
ræða, eins og rakið var i þess-
um dæmum.
Kostirnir taldir
yfirgnœfandi
Hvers vegna vilja sér-
fræðingar virðisaukaskattinn
frekar? Þessi skattur er í gildi í
flestum grannríkjum okkar.
Við fyrstu sýn virðist kerfið
nokkuð flókið. Það er viða-
meira en núverandi söluskatts-
kerfi því að fleiri fyrirtæki eiga
að innheimta þennan skatt
fyrir ríkið af viðskiptamönnum
sínum. Við virðisaukaskatt á
ekki að gæta þeirrar „uppsöfn-
unar“ sem söluskattskerfið
veldur. Virðisaukaskatturinn
hefur í reyndinni yfirleitt gert
skattheimtu einfaldari og skýr-
ari. Verulegt vandamál nú er að
skipta þarf sölunni í skatt-
skylda og skattfrjálsa sölu og
fer skattskyldan eftir því hvort
kaupandinn er endanlegur
neytandi, endurseljandi eða
framleiðandi og svo framvegis.
Þetta verður æ flóknara eftir
því sem viðskipti og framleiðsla
verður fjölbreyttari. Þetta
vandamál hverfur með virðis-
aukaskattinum. Innheimta og
skil á virðisaukaskatti er í
höndum mun fleiri aðila en inn-
heimta núverandi söluskatts og
hvert fyrirtæki á því að skila
lægri upphæð. Þetta ætti að
draga úr þeirri áhættu sem
verið hefur samfara því að inn-
heimta söluskatt á aðeins einu
viðskiptastigi.
- HH
FJÖRUTIU UMFERÐARMERKI
VANTAR Á ÍSAFIRÐI
samkvæmt könnun sem lögreglan gerði — „Fengum
merki ekki afgreidd í sumar/’ segir bæjarstjóri
„Könnun leiddi í ljós að um-
ferðarmerki vantar á velflestar
götur tsafjarðar og þau merki,
sem enn eru uppistandandi,
þarfnast lagfæringar, bæði er að
merki eru orðin stórskemmd og
Á verðlaunapalli A-listans
Á vallt til leigu Bröyt X2B grafa ístærri
ogsmærri verk.
ÍJtvega einnig
á hvers konar fyli- f
ingarefni.
Uppl. í simum
73466 og 44174.
Hilmar Hannesson.
stangirnar, sem þau standa á, allt-
of stuttar,“ segir í skýrslu lögregl-
unnar á ísafirði sem afhent var
bæjaryfirvöldum í júní 1976. „Þá
eru og mörg merki illa farin,
stangir bognar og spjöld illlæsi-
leg,“ segir ennfremur, en þetta
kemur fram í Vestfirzka frétta-
blaðinu. Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar á ísafirði eru það
um 40 umferðarmerki sem vantar
á götur bæjarins og eftir að
skýrslan var send bæjaryfirvöld-
um hafi verið sett upp eða lag-
færð fimm umferðarmerki en
önnur þrjú séu horfin.
„Jú, það er ljóst að gera þarf
átak í að koma þessum málum í
lag,“ sagði Bolli Kjartansson
bæjarstjóri á Isafirði í viðtali við
DB. „Segja má að þarna séu van-
rækslusyndir tveggja ára en við
ætluðum okkur að setja merkin
upp nú síðsumars og þau voru
pöntuð en við höfum ekki enn
fengið afgreiðslu á þeim.
Merkin fara illa, sér i lagi á
vetrum, bæði vegna snjóruðnings
og moksturs og svo hefur ekki
verið gengið of vel um umferðar-
merkin hér í bænum og við erum
ekki of hressir yfir því.“
- h halls.
Gefa af mælisgestun-
um stóra hljómplötu
— ítilefni afmælis síns
Venjan er sú að þegar ein-
hver á afmæli þiggur hann gjaf-
ir í tilefni dagsins. Hljómplötu-
útgáfan hf. snýr hins vegar
blaðinu alveg við og gefur
veizlugestum sínum gjöf —
eina af þeim ellefu hljómplöt-
um sem út hafa komið hjá fyrir-
tækinu síðan það var stofnað
fyrir réttum tveimur árum.
Afmælisveizlan verður hald-
in i veitingahúsinu Óðali í
kvöld og er öllum frjálst að
koma meðan húsrúm leyfir. Að
sögn Jóns Ólafssonar fram-
kvæmdastjóra Hljómplötuút-
gáfunnar fá gestirnir einnig að
hlýða á nýjustu plötu fyrirtæk-
isins sem er með grínkörlunum
Halla og Ladda. Auk þeirrar
plötu koma tvær aðrar plötur út
hjá fyrirtækinu fyrir jólin.
Önnur ber nafnið Jólastrengir,
hin nefnist Bara það bezta. Á
henni er safnað saman beztu
lögunum af þeim plötum sem
fyrirtækið hefur gefið út.
Hljómplötuútgáfan hf. hefur
á sinni stuttu ævi borið tvö
nöfn. Fyrst hét hún Júdas hf.
en skipti um nafn síðastliðið
sumar er eigendaskipti urðu að
hluta. Þrír stærstu eigendur út-
gáfunnar- eru nú Jón Ólafsson,
Vilhjálmur Vilhjálmsson
söngvari og Magnús Kjartans-
son.
Dagblaðið ræddi við Jón í
gær í tilefni afmælisins og
spurði hann þá meðal annars
hvað hann reiknaði með að af-
mælisgjafirnar til gestanna
væru mikils virði.
„Það fer náttúrlega eftir því
hve margir koma,“ svaraði Jón,
„en ef það verður fullt hús má
reikna með því að söluverð
platnanna sé um 1,2 milljónir."
Dágóð afmælisgjöf það.
- AT-
Jón Ólafsson: — Gjafirnar til
veizlugesta kosta 1,2 milljónir
króna.
KAUPMAN NASAMTÖK
ISLANDS
Kaupmannasamtök íslands
boða félagsmenn sína til
HÁDEGISVERÐARFUNDAR
að Hótel Sögu (Súlnasal), fimmtudaginn 17. nóvember n.k. kl. 12
Umræðuefni: Verðlagsmál
Forsætisráðherra, Geir Hallgrímsson, flytur ávarp og
svarar fyrirspurnum
Stjórnin