Dagblaðið - 24.11.1977, Side 8

Dagblaðið - 24.11.1977, Side 8
8 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. NÖVEMBER 1977. Af labrögðin fyrstu tíu mánuði ársins: Heildaraflinn nær 50% meiri en á sama tíma f fyrra — Bolfiskaflinn 51 þúsund lestum meiri íár en loðnuaflinn 3 þúsund lestum meiri nú Jónas stýrimadur, — ekki við eina f jölina felldur í listinni: „....líklega eini togarasjó- maðurinn sem skrifar reglu- lega um ballett í dagblað” —gefur út bók með útvarpserindum sínum og blaðagreinum, — sýnir málverk íKaupmannahöfn ídesember Þrátt fyrir allar aðvaranir hefur fiskaflinn stóriega aukizt. Myndin er gömul en góð, hún sýnir aflaskipið Snæfell að veiðum. Skipið liggur nú á mararbotni, var sökkt eftir að það hafði legið lengi inni á Akureyrarhöfn. „Ég var að bæta enn einni list- greininni við,“ segir Jónas Guðmundsson stýrimaður, rithöf- undur, listmálari og nú einnig píanóleikari og þá væntanlega verðandi tónskáld, þegar við hittum hann í önnum við að dreifa síðustu bók sinni, Skriftir til sjós og lands. „Það er þannig að ég lærði á píanó á unga aldri, en tók mér 30 ára hlé. Svo var það að ég keypti á dögunum píanó og lét drösla því upp til mín. Maðurinn á neðri hæðinni dró mig út í horn nokkrum dögum seinna og hvíslaði að mér: Mikið óskaplega spilar konan þin annars illa á píanó. Mér brá náttúrlega dálítið ónotalega, en svaraði O, minnstu ekki á það, ég reyni að vera sem minnst heima við. Annars er ég að fara til hans Atla Heimis til að ná í dálítið af þungum verkum til að leika mér til hugarhægðar." Jónas kvað bók sína einkum innihalda útvarpserindi sín og blaðagreinar gegnum árin. Þetta er 16. bók hans. Það verður ekki af Jónasi skafið. Hann er dugnaðarmaður og notar tímannn vel. „Eg held þetta sé ágætis- bók, einkum hinar lærðari 2;reinar hennar,“ sagði hann. „Annars dettur mér oft í hug í sambandi við bækur sem hér koma út að Gunnar Gunnarsson heitinn, sá sómamaður var eitt sinn á ferðinni með sporvagni í Kaupmannahöfn með handrit að Gesti til forleggjara síns. Þá gerðist það að honum snerist hugur þar sem hann sat í spor- vagninum. Hann tók næsta vagn til baka, tók handritin og brenndi þeim. Hann var ekki ánægður, enda þótt hann væri búinn að selja handritið. Ef fleiri gerðu þetta hér á landi væru öll hitaveítumál auðleyst.“ Þegar Jónas var spurður um ástand og horfur í stjórnmálum landsins, sagði hann: „Þegar ég var að sigla þá voru embættis- menn hér yfirleitt allir fullir en þá þurfti ekki nema tíunda part- inn af þeim mannskap sem talinn er nauðsynlegur í dag. í Alþingi er það að gerast að í gamla daga var vaninn að menn drykkju sig út úr þinginu, núna virðast þeir „þurrkaðir út“ ef svo mætti segja. Nei, ástandið er ógnvænlegt og virðist helzt líkjast Þýzkalandi, þegar Hitler sálugi komst til valda. Og aðalgallinn á okkur er sá að menn hugsa ekki lengur stórt, eins og Hriflu-Jónas gerði meðan hann var og hét.“ Framundan kvað Jónas mikla annatíma, við píanóió, ritvélina og málaratrönurnar. Og í næsta mánuði verður málverkasýning hans opnuð í Kaupmannahöfn. Jónas hefur áður sýnt þar, „og í öllum öðrum menningarlöndum í kringum okkur.“ Þar að auki skrifar Jónas stöðugt i bændablaðið Tímann. „Ég mun vera eini núlifandi togarasjómaðurinn sem skrifar að staðaldri um ballettlist í dag- blað,“ sagði listamaðurinn og var þotinn. jbp Jónas stýrimaður, — margfaidur i roðinu hvað listum viðkemur — DB-mynd Sv.Þorm. Þessar glæsidömur sýndu hluta af varningnum og sem sjá má er hér ekki um neitt slor að ræða. Ágóðanum af sölunni verður varið til námsferðar nemanna, upprennandi listamanna þjóðarinnar. Arlegur basar skólans verður siðan eftir áramót. DB-mynd Sv. Þ. Heildarfiskafli landsmanna fyrstu tíu mánuði ársins nam samtals 1.237.275 lestum samkvæmt bráðabirgðayfirliti Fiskifélags íslands. Á sama tíma í fyrra var heildaraflinn 873.256 lestir. Meginmismunur- inn á aflanum i ár og í fyrra liggur í meiri loðnuafla nú en þá. Loðnuaflinn fyrstu tíu mánuðina í ár er 764.099 lestir en var á sama tíma í fyrra 427.648 lestir. Bolfiskaflinn í ár er samtals 620.917 lestir samkvæmt bráða- birgðayfirlitinu en var í fyrra 569.301 lest. Bátaaflinn nú er rúmlega 415 þúsund lestir á móti rúmlega 393 þúsund lestum i fyrra. Togaraaflinn nú er hins vegar mun meiri en í fyrra eða 205.597 lestir sam- kvæmt bráðabirgðayfirlitinu en var 176.169 lestir í fyrra. Ekkert liggur fyrir um það ennþá hve þorskurinn á stóran hlut í heildar bolfiskaflanum. Sé litið á aðrar fisktegundir er heildaraflinn sem hér segir samkvæmt bráðabirgðayfir- litinu fyrir fyrstu 10 mánuði ársins. I svigum eru endanlegar tölur frá árinu áður. Síld 14.750 lestir (20.153) Rækja 5.023 lestir (5.324) Humar 2.770 lestir (2.780) Hörpudiskur 2.776 lestir (3.015) Kolmunni 11.730 lestir (569) Annar afli i soærlingur o.fl.) 20.797 lestir 1(20 535) Ef litið er á aflabrögðin í októbermánuði einum er árið í ár meira en helmingi hag- stæðara en október í fyrra. Heildaraflinn í mánuðinum nú er samkvæmt bráðabirgðatöl- um 108.188 lestir en í fyrra var heildaraflinn í október ekki nema 48.884 lestir samkvæmt endanlegum tölum. ASt. Flöamarkaður Myndlista- og handíðaskólans: Stúdentshúf a fyrir hundrað kall—jakkaföt og dragtir - ain i að seijast Þao Kennir margra grasa á flóa- markaði Myndlista- og handíða- skólans, sem byrjaði í morgun og stendur fram á föstudag. Flóa- markaðurinn er haldinn í Gaileri Sólon Islandus við Aðalstræti. I Galleríinu er hægt að fá stásskjóla og dragtir, að ógleymd- um undirfötum kvenna og snyrti- vörum og fyrir karla má fá jakka- föt með og án vestis og yfirhafnir allrahanda. Þá eru ógleymdir skór á bæði kynin, bæði támjóir og breiðir, og ein forláta stúdents- húfa. Mun auðveldara er t.d. að fá sér stúdentshúfu á markaðnuin fyrir hundrað kall, heldur en að sitja i menntaskóla í fjögur ár til bess að ná sama árangri. JH

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.