Dagblaðið - 24.11.1977, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. NÖVEMBER 1977.
9
fC
Alþingispróf kjör sjálfstæðismanna
í Vesturlandskjördæmi um helgina
j
TÍU KEPPA UM MNGSÆTI
Jón Sigurðsson
V
Óðinn Sigþórsson
Inga Jóna Þórðardóttir
félags íslands 1972-74 og nú
aftur 1977. Hann hefur setið
um árabil i stjórn UMSB Ung-
mennasambands Borgarfjarðar
og formaður þess frá 1976.
Valdimar Indriðason, fram-
kvæmdastjóri, er 52 ára
gamall Akurnesingur. Hann
varð gagnfræðingur frá Flens-
borgarskólanum 1942. Fór
hann síðan í Iðnskólann á
Akranesi og lauk sveinsprófi í
vélvirkjun 1946. Vélskólaprófi
með rafmagnsdeild lauk hann
1949. Var hann vélstjóri á
togurum í mörg ár.
Þegar hann fór í land varð
hann vélstjóri og síðar fram-
kvæmdastjóri Sildar- og fiski-
mjölsverksmiðju Akraness. Því
starfi hefur Valdimar gegnt frá
1960.
Valdimar var um langt
skeið i bæjarstjórn Akraness
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Auk
þess hefur hann gegnt fjölda
trúnaðarstarfa í félags- og
atvinnumálum, m.a. formaður
Slysavarnadeildarinnar
Hjálparinnar á Akranesi, í
skólanefnd Iðnskólans, 1
fræðsluráði Akraness svo
eitthvað sé nefnt.
Auk þess, sem nú var nefnt
hefur Valdimar gegnt mörgum •
trúnaðarstöðum í samtökum
fiskvinnslufyrirtækja og út-
flutningssamtaka þeirra.
Kjörstaðir:
A Akranesi: Sjálfstæðihúsið,
Heiðarbraut 30.
Borgarfjarðarsýsla:
Leirárskóli, Leirár- og Mela-
hreppi.
Kleppjárnseykjaskóli,
Reykholtsdalshreppi.
Mýrasýsla: Skrifstofa
Sjálfstæðisflokksins, Borgar-
braut 4, Borgarnesi.
Dalasýsla: Félagsheimilið
Dalabúð, Búðardal. Félags-
heimilið Tjarnarlundur, Saur-
bæjarhreppi
Snæfellsness- og Hnappadals-
sýsla: Lions-húsið, Stykkis-
hólmi.
'Skrifstofa Guðmundar Runólfs-
sonar hf. Grundarfirði
Grundarbraut 10, Ólafsvík
Skrifstofa Hraðfrystihúss
Hellissands
Félagsheimilið Lýsuhóll,
Öfeigur Gestsson
Anton Ottesen
Prófkjör sjálfstæðismanna
í Vesturlandskjördæmi fer
fram laugardaginn 26.
nóvember og sunnudaginn 27.
nóvember næstkomandi.
Þessir menn eru í framboði:
Anton Ottesen, 34 ára gamall,
bóndi að Ytrahólmi. Hann var í
9. sæti lista sjálfstæðismanna í
kjördæminu við síðustu
alþingiskosningar. Anton hefur
tekið virkan þátt í félagsmálum
sinnar sveitar, m.a. Ungmenna-
félagshreyfingunni. Hann er
nú oddviti sveitar sinnar,
Innra-Akraneshrepps.
Arni Emilsson, sveitarstjóri í
Grundarfirði, 34 ára gamall,
Hann er borinn og barnfæddur
Grundfirðingur. Hann lauk
prófi frá Iþróttakennaraskólan-
um 1962 og var síðan við nám í
Noregi.
Árni stundaði kennslu og
verzlunarstörf í Grundarfirði
þar til hann var ráðinn sveitar-
stjóri þar 1970. Hann hefur
tekið virkan þátt 1 félags-
málum sveitarstjórnarmanna
og er nú formaður í Samtökum
sveitarfélaga á Vesturlandi.
Hann var fyrsti formaður
Samtaka ungra sjálfstæðis-
manna^á Vesturlandi og þátt-
takandi i flokksstarfinu í
Grundarfirði og Vesturlands-
kjördæmi.
Friðjón Þórðarson, alþingis-
maður, er 54 ára gamall. Hann
varð stúdent frá MR 1941, og
lögfræðingur frá Háskóla
Islands 1947. Friðjón starfaði
fyrst sem lögfræðingur í
Reykjavík og síðan við ýmis
embættisstörf. Hann var full-
trúi lögreglustjórans í
Reykjavík frá 1948 — 1955. Það
ár varð hann sýslumaður í
Dalasýslu og var það í 10 ár.
1965 varó hann sýslumaður
Snæfellsnes- og Hnappadals-
sýslu, en sagði því embætti
lausu vegna þingsstarfa og
annarra trúnaðarstarfa 1975.
Friðjón varð landskjörinn
þingmaður 1956. Frá 1967
hefur hann verið þingmaður
Vesturlandskördæmis fyrir
Sjálfstæðisflokkinn. Hann
hefur, sem áður er að vikið,
gegnt fjölda trúnaðarstarfa,
Arnl Emilsson
bæði heima í héraði og á öðrum
vettvangi, m.a. í sendinefnd
Islands hjá Sameinuðu þjóð-
unum. Hann hefur um árabil
átt sæti í bankaráði Búnaðar-
banka Islands, svo eitthvað sé
nefnt.
* Inga Jóna Þórðardóttir er 26
ára Akurnesingur. Hún varð
stúdent frá MA 1971.
Viðskiptafræðiprófi lauk hún
við Háskóla Islands 1977. Hún
tók snemma þátt í félagslífi og
stjórnmálum og var m.a. í
stjórn Vöku í Háskólanum.
Inga Jóna var formaður
Félags ungra sjálfstæðis-
manna á Akranesi um árabil og
varaformaður Sambands ungra
sjálfstæðismanna frá 1975. Hún
er nú 1. varamaður i bæjar-
stjórn Akraness Hún situr nú í
miðstjórn Sjálfstæðisflokksins.
Hún starfar sem fulltrúi hjá
Dráttarbraut og vélsm.
Þorgeirs og Ellérts.
Sr.Ingiberg J. Hannesson
alþingismaður og 42 ára
gamall. Hann varð stúdent frá
ML 1955, og lauk guðræðiprófi
frá Háskóla íslands 1960. Það
ár var hann vígður sóknar-
prestur í Staðarhólsprestakalli
í Dölum og situr á Hvoli í
Saurbæ.
Hann var formaður Bræðra-
lags kristilegs félags stúdenta á
háskólaárum sínum. Hann
hefur tekið virkan þátt í félags-
málum heima í héraði, m.a.
verið formaður Ungmenna-
félagsins þar. Hann tók sæti á
Alþingi sem varamaður en fast
,sæti er Jón Árnason, alþingis-
maður féll frá sl. sumar.
Jón Sigurðsson er 35 ára
gamall. Hann lauk prófi frá
Verzlunarskóla Islands 1962
og hefur lengst af starfað að
verzlunarstörfum.
Hann starfaði hjá Sameinuðu
þjóðunum í Genf í Sviss árin
1969 og 70. Þegar hann kom
heim aftur tók hann við stöðu
framkvæmdastjóra Islenzks
markaðar. Hann fæddist í Ól-
afsvík og ól æsku sína og
uppvaxtarár í Borgarnesi.
Jón hefur tekið þátt í starfi
sjálfstæðisflokksins, einkum í
Reykjavík. Hann var 4. maður á
Jósef H. Þorgeirsson
Friðjón Þórðarson.
lista flokksins í Vestur-
landskjördæmi í síðustu
alþingiskosningum og er því
varaþingmaður flokksins nú.
Jósef H. Þorgeirsson er 41 árs
gamall Akurnesingur. Hann
'varð stúdent frá MA 1956 og
lauk lögfræðiprófi við Háskóla
tslands 1963. Að loknu
lögfræðiprófi nam hann við
Dartmouth College í Banda-
ríkjunum.
Jósef tók þátt í félagsmálum
stúdenta og stjórnmálum. Var
hann m.a. formaður Vöku í
Háskólanum. Hann er nú fram-
kvæmdastjóri hjá Dráttarbraut
og vélsmiðju Þorgeirs og
Ellerts hf. á Akranesi.
Hann var formaður fulltrúa-
ráðs Sjálfstæðisfélaganna á
Akranesi um árabil og á sl. ári
var hann kjörinn formaður
kjördæmisráðs Sjálfstæðis-
félaganna á Vesturlandi. Hann
hefur setið í bæjarstjórn Akra-
ness og í bæjarráði í 11 ár.
Óðinn Sigþórsson, bóndi í
Einarsnesi, er 26 ára gamall.
Hann lauk prófi frá Samvinnu-
skóla Islands 1970. Að því
prófi loknu starfaði hann um
skeið hjá Landsbanka tslands
og Eimskipafélagi Islands.
Þá var hann við nám i verzl-
unarfræðum í Englandi í ár.
Hugur hans stóð löngum til b j-
skapar og gerðist hann bóndi á
jörð sinni að Einarsnesi 1973.
Rekur hann þar myndarlegt
kúabú.
Öðinn hefur starfað nokkuð
innan vébanda Sambands
ungra sjálfstæðismanna og
hefur að vonum sérstaklega
látið Iandbúnaðarmál til sín
taka.
Ofeigur Gestsson, frjótæknir að
Sigtúni við Hvanneyri, er 34
ára gamall. Hann varð
búfræðingur frá Hvanneyri
1961 og hefur unnið hjá
Búnaðarsambandi Borgar-
fiarðar síðan.
Öfeigur hefur tekið mikinn
þátt í félagslífi og stjórnmálum,
m.a. hefur hann verið í stjórn
Sjálfstæðisfélaganna í Borgar-
fjarðarsýslu frá 1969 og
formaður nú. Hann sat í
stjórn SUS eitt kjörtímabil.
Hann var formaöur Frjótækna-
Valdimar Indriðason
••
Sr. Ingiberg J. Hannesson
Staðarsveit
Samkomuhúsið Dalsmynni,
Eyjahreppi
Utankjörstaðakosning
verður í Valhöll, Háaleitisbr. 1,
Rvík sömu daga og prófkjörið
fer fram.
Kjörstaðir verða opnir báða
dagana frá kl. 13-22, nema I
Reykjavík þar sem opið verður
kl. 13—19.
Atkvæðisréttur:
Atkvæðisrétt i prófkjörinu
hafa allir þeir íbúar Vestur-
landskjördæmis sem ætla að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn í
næstu alþingiskosningum og
náð hafa 20 ára aldri 25. júní
1978, einnig meðlimir Sjálf-
stæðisfélaganna í kjördæminu
16 ára og eldri.
tJtfylling atkvæðaseðils:
Á atkvæðaseðli er nöfnum
raðað eftir stafrófsröð. Kjósa
skal fæst 3 frambjóðendur og
flesta 5. Skal það gert með því
að setja tölustaf fyrir framan
nöfn manna á atkvæðisseðlin-
um og tölusetja í þeirri röð, sem
óskað er að þeir skipi á
endanlegan framboðslista.
Sé merkt við færri en 3
nöfn er seðillinn ógildur. Sé
merkt við fleiri en 5 nöfn,
teljast ekki með þau merki, sem
eru umfram 5.
Heimilt er að kjósa 2 menn
sem ekki ení í framboði með
því að rita nöfn þeirra i auðu
línurnar neðst á prófkjörs-
seðlinum.
Bindandi úrslit:
Til T)ess að úrslit geti orðið
bindandi fyrir kjörnefnd, þarf
fjöldi þeirra, sem þátt taka í
prófkjörinu, að vera helmingur
af kjörfylgi sjálfstæðismanna
við síðustu alþingiskosingar
eða minnst 1189. Auk þess
þurfa einstakir frambjóðendur
að hljóta minnst 50% greiddra
atkvæða til þess að kosning
þeirra verði bindandi.
Upplýsingar:
Nánari upplýsingar um fram-
kvæmd prófkjörsins veita for-
maður kjördæmisráðs, Halldór
Finnsson, sími 8725, Grundar-
firði og formaður kjörnefndar,
Guðjón Guðmundsson, síma
2252, Akranesi. BS
„BÝST FREKAR VIÐ ÞVÍ AÐ ÉG FARI í FRAMB0Д
— segir Bjöm Guðmundsson útgerðarmaður
Enn er ekki búið að ákveða
daginn fyrir prófkjör það sem
fram á að fara um sæti Guðlaugs
Gíslasonar alþingismanns. en
hann hefur tilkynnt að hann
muni ekki gefa kost á sér á lista
sjálfstæðismanna í Vestmanna-
eyjum fyrir næstu kosningar.
Þrir menn hafa verið nefndir i
þessu sambandi, Árni Johnsen
blaðamaður á Morgunblaðinu.
Guðmundur Karlsson fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjunnar í
Eyjum og Björn Guðmundsson út-
gerðarmaður.
„ Ivtta er nú ekki ákveðið ennþá
og ég hef lítið huglcitt málið,"
sagði Guðmundur er DB hafði.
samband við hann. Sagðist hann
ekki geta fullyrt neitt um það,
hvort hann færi í framboð. a.m.k.
ekki að svo stöddu.
„Eg býst nú frekar við því að ég
fari í framboð," sagði Björn
Guðmundsson útgerðarmaður er
DB bar spurninguna undir hann.
„En það er nú ekki enn búið að
auglýsa frest til þess að skila
framboðum og ég er því ekki
farinn til þess.“
Ekki náðist í Árna en fyrir
nokkru gaf hann út þá yfirlýsingu
að hann væri ennþá óákveðinn.
IIP