Dagblaðið - 24.11.1977, Síða 12

Dagblaðið - 24.11.1977, Síða 12
12 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1977.. Skekkja í Flateyrardæmi Söqumaðurinn I byrjun októbermánaðar birti Dagblaðið grein sem nefnt var „Flateyrardæmið". Upphafsmaður og eini sögu- maður Dagblaðsins að þessum greinarflokki var Hendrik Tausen, sem er formaður Verkalýðsfélagsins Skjaldar á Flateyri, framkvæmdastjóri orlofsheimilabygginga Alþýðu- sambands Vestfjarða i Vatns- firði, innheimtumaður fyrir líf- eyrissjóð A.S.V. og einn helzti stuðningsmaður Karvels Pálmasonar á Vestfjörðum. Þessi sögumaður hefur einnig starfað sem fram- kvæmdastjóri fyrir Héraðssam- band Vestur-ísfirðinga og enn- fremur undanfarna vetur sem matsveinn við Héraðsskólann að Núpi við Dýrafjörð. Hendrik Tausen er fyrsti varamaður á lista Frjálslyndra og vinstri manna í hreppsnefnd Flateyrarhrepps og hefur mætt á sautján af sextíu og fjórum fundum hreppsins það tímabil sem um er rætt. Þessi litla mæt- ing er eðlileg þegar þess er gætt að maðurinn er varamaður f hreppsnefnd og auk þess vegna anna við margvísleg trúnaðarstörf eða matreiðslu ekki viðlátinn á Flateyri nema sem gestur eða gagngert til þess að mæta á hreppsnefndar- fundum. Sögumaður Dagblaðsins hef- ur þannig að sáralitlu leyti ver- ið til staðar á Flateyri umrætt tímabil. ítarleg kynning á sögumanni væri vissulega þörf og gagnleg en stendur þeim nær sem manninn þekkja betur en ég og hafa haft af honum persónuleg kynni í hinum margvíslegu störfum sem honum hefur ver- ið trúað fyrir skamman tíma hverju sinni. Þvf hef ég eytt þessu rými til kynningar á sögumanni að ekki er sama hver segir frá né held- ur hvaða hvatir liggja að baki. Því leyni ég heldur ekki að frá fýrstu kynnum hef ég haft lítið dálæti á manni þessum og ekki leynt hann þvf. Blaðamennskan Þegar þess er gætt að umræddur greinarflokkur felur I sér hinar alvarlegustu ásakanir, ekki aðeins á einum manni (þó vissulega sé breiðustum spjótum beint að mér) _heldur hreppsnefnd og fleiri skyldi mega ætla að Dag- blaðið teldi nokkurs um vert að vanda vel til upplýsinga- öflunar. Þeim fróðleik má skjóta hér að að svipuð blöð f Svfþjóð, til dæmis Expressen og KvSIls- posten, sem þar eru stimpluð æsifréttablöð, „gula pressan“ eða „sölublöð", eru þó það vönduð í „sölublaðamennsku" sinni að birta aldrei gagnrýni, slúður eða söguburð um menn né málefni án þess að svar við- komandi sé birt jafnáberándi við hlið greinarinnar eða tekið fram að viðkomandi hafi ekki viljað svara eða ekki hafi verið tök á að bera viðkomandi grein undir þá sem til meðferðar eru teknir. Dagblaðið ætti að hafa svipuð vinnubrögð vegna lesenda sinna, ekki sízt þegar þess er gætt að blaðið er lausasölublað að verulegu leyti. Það þýðir að tiltekin grein, sem birt er f dag, er lesin af öðrum hópi fólks en hugsanlegt svar sem birtist síðar. Osönn staðhæfing, sem birt- ist í blaðinu einn daginn getur þannig orðið stórum hópi fólks „sannleikurinn" og rétt svar, sem kveður niður ósannindi, fer fyrir ofan garð og neðan hjá fjölda lesenda vegna þess að það birtist ekki f sama blaði. Það sem miður er um vinnu- brögð Dagblaðsins er þetta: Sögumaður blaðstns er einn, Hendrik Tausen. Dagblaðið leitar engra upplýsinga né stað- festingar á söguburði Hendrik Tausen hjá fréttaritara sínum á Flateyri, Jóni Trausta Sigur- jónssyni, sem jafnframt er hreppsnefndarmaður. Dag- blaðið hefur ekkert samband við neinn hreppsnefndarmann. Dagblaðið leitar engra upplýsinga né staðfestinga á neinum þætti söguburðarins. Dagblaðið hefur að vfsu aðgang að ljósritum fundargerða Flat- eyrarhrepps, en þær segja þó engan veginn alla söguna, og Dagblaðið segir vísvitandi f sumum tilfellum aðeins hálfa sögu úr fundargerð þar sem þvf hentar, enda væri öll sagan ekki „söguleg". Vinnubrögð Dagblaðsins, að hlaupa eftir söguburði og „fundargerðarskýrslum" eins manns án þess að kanna nokk- uð málflutning hans, eru að minu áliti ákaflega óvönduð, svo óvönduð að siðareglunefnd blaðamanna ætti að taka þessi vinnubrögð til umfjöllunar. Dagblaðið reynir svo eftir á að hlaupa í skjól við það að greinarnar byggjast á fundar- gerðum Flateyrarhrepps, sem séu undirritaðar af hrepps- nefndarmönnum og sveitar- stjóra. Dagblaðið segir ósatt í því éfni, eða eins og oft aðeins hálf- an sannleikann. Greinarnar byggjast á fundargerðum Flat- legt að þekkja jafnframt þriðja þáttinn, . eða framkvæmdir hreppsins þau ár sem um er rætt. Hinir tveir þættirnir eru fjármál hreppsins og bókhald. Til glöggvunar er rétt að geta framkvæmda fyrst, enda eru hinir þættirnir afleiðing eða framhald þeirra og eins vegna þess að Dagblaðið hefur í engu getið þeirra framkvæmda, sem hreppurinn stóð f þessi ár. Framkvœmdir Arið 1974 var malbikuð hálf aðalgata þorpsins ásamt því að gengið var frá tilheyrandi lögn- um, lögð voru aðalskolprör og regnvatnslagnir að nýju hverfi. Unnið var við frágang á (múr- verki, tréverki, raflögnum og málningu) nýbyggingu áhalda- húss og slökkvistöðvar, lögð var ný gata og keypt tilbúin sund- laug. Arið 1975 var malbikuð aðal- gata eða 400 metrar ásamt til- heyrandi, stórviðgerð fram- kvæmd á hafnarkanti, nýbygg- ing á stálþili hafnar, malbikun hafnarsvæðis, malbikun hluta skólalóðar. Unnið var við frá- Flateyri eyrarhrepps, skýringum Hendriks Tausen á þeim og óábyrgu og ósönnu slúðri Hendriks Tausen um mörg at- riði sem hvergi koma fram f fundargerðum og eru hrepps- nefnd óviðkomandi. Það er einnig rangt hjá Dagblaðinu afi halda að það hafi farið f taug- arnar á oddvitanum að Flat- eyringar og aðrir landsmenn hafi fengið að vita um „stjórn- leysið og spillinguna f málefn- um hreppsins" Dagblaðið vitnar f borgara- fund á Flateyri um málefni þessi. Skyldu ekki Flateyringar hafa fengið að vita það sama af honum og í Dagblaðinu? Heldur Dagblaðið að hrepps- nefndarmenn hafi ekki rætt þessi mál við kjósendur sína jafnóðum og þau voru að ger- ast? Það er hins vegar rétt hjá Dagblaðinu að Hendrik Tausen gat ekki komið fréttum af mál- um þessum til Flateyringa nema með blaðaskrifum, þvf að maðurinn sést nánast aldrei hér á Flateyri. Við erum margir hér á Flateyri þakklátir Dag- blaðinu fyrir að kynna þetta mál öðrum landsmönnum, þvf það var vissulega orðið aðkall- andi, þó svo að æskilegra hefði verið að sögumaðurinn kynni að segja rétt frá. Þœttirnir þrír Dagblaðið fjallar í greinar- flokki sfnum um tvo þætti f starfsemi Flateyrarhrepps en til þess að skilja eða átta sig á þeim tveim þáttum er nauðsyn- mikilla framkvæmda og hreppsnefndin framkvæmda- djörf. Þvf má heldur ekki gleyma að hreppsnefnd tekur ákvarðanir um allar fram- kvæmdir en ekki sveitarstjórf. Sögumaður Dagblaðsins lagði þennan tíma ávallt áherslu á meiri framkvæmdir. Fjármálin Oddviti Flateyrarhrepps hefur þegar gefið svar um þau í Dagblaðinu en til viðbótar vil ég benda á að fjárhagsstaða hreppsins er góð ef miðað er við hinar miklu framkvæmdir undanfarinna ára. Vissulega hefur hreppurinn safnað nokkrum skuldum, sem eðlilegt er. Þær skuldir, sem umtalsverðar eru, hafaþó verið greiddar á réttum gjalddögum, þó jafnframt sé rétt að dæmi eru um annað. Föst lán og opinber gjöld hafa flest verið f skilum á áramótum. Skuldir Flateyrarhrepps eru auk þess f heild miðað við Ibúa- tölu lægri en heildarskuldir margra annarra sveitarfélaga. Skuldir Flateyrarhrepps eru gang á átta fbúðum sveitar- félagsins og þær gerðar söluhæfar, hafnar framkvæmd- ir við fjórar leiguíbúðir sveitar- félagsins (einbýlishús steyptir tveir grunnar). Unnið var að skolplögnum og byggingu skolpdælustöðvar.Rifnar,og,fjar- lægðar tvær lengjur gamalla fjárhúsa. Keyptur var snjóbíll og jarðýta. Arið 1976 var steypt hafnar- svæði og gengið frá lýsingu og lögnum þess. Steyptur var götuspotti við hafnarsvæðið (framhald aðalgötu), steyptar gangstéttir, skolpdælustöð steypt upp að fullu. Fjögur einbýlishús voru gerð fokheld, gamalt hús flutt á nýja lóð og gömul hús rifin. Sjóvarnar- garður var styrktur (stórgrýti ekið f helming fjörunnar með eyrinni er vfsar mót hafi). Árið 1977 voru einbýlishúsin fjögur gerð tilbúin undir tréverk, eyrin girt og sett niður rimlahlið, skolplagnir tengdar við skolpdælustöð, gömul fjár- hús rifin og hafnar fram- kvæmdir við íþróttahús/sund- laug. Þessi sömu ár var auk þess keyptur læknisbústaður og ^miklar endurbætur unnar á heilsugæzlustöð og fbúð læknis þar. Þá var unnið verulegt átak . f grænni byltingu plássins, og að sjálfsögðu unnið stöðugt að viðhaldi gatna, skolp- og vatns- veitu og húseignum hreppsins. Með þessu er þó sannarlega ekki allt talið en stiklað á þvf helzta. Þessi ár voru þannig ár félagsins, einstaklinga og fyrir- tækja eru miklar. Þær einkennast af trú á plássið og af trú á þá menn sem stjórna fyrirtækjum og sveitar- félaginu. Röng frásögn Dagblaðsins skaðar að lokum trúlega engan annan en sögumanninn. Bókhaldið Oddviti hefur skýrt það nokkuð en til viðbótar skal viðurkennt að það hefur ekki verið í lagi svo viðunandi væri og má til þess rekja hug minn á að fara f annað starf f lok árs- ins ’75. Frá upphafi stóð ég frámmi fyrir'livi í starfi mínu að hluti hreppsnefndarmanna, það er að segja fulltrúi Frjáls- lyndra og vinstri manna, stóð ávallt gegn því að sveitarstjóri fenei skrifstofuaðstoð. Þó má benda á að dýrlingur þeirra, Þórður Gislason, hafði verulega skrifstofuaðstoð þann tfma sem hann starfaði sem sveitarstjóri og þá var ekkert 'unnið að neinum framkvæmd- um öðrum en að steyptur var þar með að sjálfsögðu miklu lægri á fbúa en skuldir fslenzka rfkisins. Þá má benda á að allar eru þær til orðnar vegna nauðsynlegra framkvæmda til hags og gagns ibúum sveitar- félagsins og raunar landsins alls. Loks má benda á þá staðreynd, sem fjármálamenn Dagblaðsins skilja mæta vel, að skuldir Flateyrarhrepps hafa sömu góðu eiginleika og skuldir annarra að rýrna og lækka með árvísri verðbólgu. Þótt lítilfjör- legt sé má í sambandi við drátt- arvexti þá, sem Flateyrar- hreppur hefur orðið að greiða, benda á að það er mismunurinn á vöxtum og dráttarvöxtum, sem rétt væri að nefna f gagn- rýnisskyni, en ekki heildar- upphæð vaxtanna. Sögumaðurinn Hendrik Tausen flaggar hins vegar f sffellu heildarupphæðinni en það magagleypir Dagblaðið og sýnir einungis vanþekkingu beggja. Geta skal þess að aldrei stóð á Hendrik Tausen að sam- þykkja nýjar lántökur fyrir Flateyrarhrepp, jafnvel þó gengistryggðar væru, og gerðist Hendrik Tausen þannig ábyrg- ur fyrir miklu geigvænlegri út- gjöldum hreppsins en dráttar- vextirnir hafa verið. Fjármál Flateyrarhrepps eru nú góð. Greiðslugeta er að vfsu undir þrýstingi vegna marg- háttaðra framkvæmda en tekj- ur sveitarfélagsins aukast nú hröðum skrefum með hverju ári, svo og tekjur íbúa. Framkvæmdir sveitar- smáhluti götu og ekki gengu dýrlingnum betur samskipti við fbúana i það skipti en svo að hann lenti í áflogum vegna verksins. Þannig var eina starf dýrlingsins innheimta útsvara og vinna í bókhaldi þessi ár, þó með aðstoð. Þannig er ljóst að hið „góða“ bókhald fyrri ára vannst með frábærri elju Þórðar, með aðstoð á skrifstofu, með suður- ferðum og loks vegna þess að sveitarstjóri hafði nánast ekk- ert annað að gera. Astand bókhalds Flateyr- arhrepps nú er því bein afleiðing þess að fulltrúi Frjáls- lyndra og vinstri manna f hreppsnefnd, sérstaklega Hendrik Tausen, hefur staðið gegn þvf allan minn starfstíma að óhjákvæmileg aðstoð fengist á skrifstofu. Það hjákátlega hefur jafn- framt gerzt að allan þennan sama tíma lagði Hendrik Tausen aldrei orð f belg um það hversu margir ynnu við skolp- lagnir, gatnagerð, hafnargerð, byggingar né annað á vegum hreppsins. Þar um eða fjölda starfsmanna réð ég og var ekki gagnrýnt en þegar kokkurinn frá Núpi mætti á hreppsskrif- stofu (til þess að fá Ijósrit fundargerða) þá vissi hann upp á hár að starfið var einungis eins manns starf. Astand bókhaldsins er svo að sjálf- sögðu líka mín sök þar sem ég átti einfaldlega að krefjast nauðsynlegrar aðstoðar á skrif- stofu og benda á hinar gffur- legu annir vegna framkvæmda.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.