Dagblaðið - 05.12.1977, Page 8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 1977.
Ovenju tíðar bilanir að undanförnu — enda eru umferðarljös
borgarinnar úrelt.
Finnar minnast 60 ára fullveld-
ist síns á morgun, 6. desember. A1
því tilefni heldur Suomifélagið —
samtök Finna og Finnlandsvina á
íslandi — hátiðarsamkomu í
Þjóðleikhúskjallaranum kl. 21.15.
Þar verða flutt ávörp og gestum
verður skemmt eftir léttan kvöld-
verð. Fram koma karlakórinn
Fóstbræður undir stjórn Jónasar
Ingimundarsonar og finnsku
listamennirnir Eero Piirto og
Risto Ala-Ikkálá. Þeir eru hér í
boði Suomifélagsins og Norræna
hússins.
Samkomunni lýkur með dansi.
Verð aðgöngumiða er aðeins 2000
krónur — og er maturinn innifal-
inn i verðinu. Þetta verð kann að
teljast til tíðinda út af fyrir sig.
Fyrir samkomuna dansar
finnski leikdansflokkurinn „Raa-
tikko" á stóra sviði Þjóðleikhúss-
ins. Flokkurinn er á leið í
sýningarferðalag til Bandaríkj-
anna. Hér sýnir hann leikdans
eftir Mario Kuusela, sem byggður
er á frægu skáldverki eftir verð-
— bilanir á Ijósunum að undanförnu
hafa verið óvenju erfiðar
Þeir Reykvíkingar, sem ferð-
ast mikið í bifreiðum, hafa
orðið varir við það upp á síð-
kastið að talsvert hefur verið
um bilanir á umferðarljósum.
Vandræðaástand skapast oft í
slíkum tilfellum, því að um-
ferðarljós eru ekki sett upp á
gatnamótum nema sérstaklega
mikil umferð sé um þau. Ti!
dæmis biluðu ljósin á mótum
Miklubrautar og Háaleitis-
brautar í gær, öllum til mikils
ama, sem þar áttu leið um.
„Þetta hefur verið tilfallandi
óheppni frekar en að ljósin séú
að ganga úr sér,“ sagði Gutt-
ormur Þormar yfirverkfræð-
ingur hjá gatnamálastjóra í
samtali við DB í gær. „Bilanirn-
ar hafa orðið meira áberandi en
venjulega, því að viðgerðirnar
hafa verið óvcnju erfiðar. Til
dæmis komust óhreinindi i ljós-
in á mótum Njarðargötu og
Hringbrautar, sem orsakaði
töluverðan vanda.“
Guttormur sagði að um-
ferðarljós, eins og þau, sem eru
í notkun í Reykjavík, væru nú
orðin úrelt. Þau ljós, sem fram-
leidd cru nú, eru öll með raf-
eindaútbúnaði. Þannig eru til
dæmis gangbrautarljósin, scm.
fjölgar nú ört í Reykjavík og
nágrannakaupstöðum.
Þrátt fyrir að umferðarljósin
séu orðin úrelt, er að sögn Gutt-
orms Þormar enn hægt að fá
varahluti í þau. Hann taldi þó
að fyrr en síðar yrði að fara að
hugsa fyrir endurnýjun ljós-
anna.
- at-
launahöfundinn Váinö Linna,
„Fólk án valds“, og fjallar um
þjóðfrelsisbaráttu Finna. - OV
Finnsku listamennirnir Eero
Piirto (t.v.) og Risto Ala-Ikkáiá,
sem syngja og leika á hátíðarsam-
komu Suomifélagsins annað
kvöld.
UMFERÐARUÓSIN í REYKIA-
VÍK ERU ORÐIN ÚRELT
Húsfyllir á fyrirlestri Brynjólfs
—f yrsti opinberi fyrirlestur
hans um heimspeki
HÚsfyllir var er Félag áhuga-
manna um heimspeki gekkst fyrir
fundi í Lögbergi, húsi lagadeildar
Háskólans í gær. Þar var frum-
mælandi Brynjólfur Bjarnason og
var þetta í fyrsta skipti, sem hann
flutti fyrirlestur um heimspeki-
leg efni hér á landi. Þá eru
reyndar undanskilin erindi hans
í útvarpi.
Fyrirlestur sinn nefndi
Brynjólfur „Tíminn og veruleik-
inn“. — Auk þess, sem fundar-
mönnum gafst tækifæri til að
hlýða á erindi Brynjólfs gekkst
Félag áhugamanna um heimspeki
fyrir sölu nokkurra notaðra bóka
um heimsþekileg efni. Bækur
þessar höfðu borizt félaginu að
gjöf. Ágóðanum verður varið til
styrktar starfseminni. DB-mynd:
Hörður Vilhiálmsson.
Finnar minnast 60
ára fullveldis síns
Islendingar og Irar lengstan tíma
að vinna fyrir bensínlítranum
A landsfundi FÍB, sem haldinn
var í Kópavogi daganan 19. og 20.
nóvember sl„ var borið saman
bensínverð í nokkrum löndum,
þ.e. hve langan tíma það tekur að
vinna fyrir einum lítra af bensíni,
og er þá miðað við dagvinnulaun
í verksmiðju. Kemur þá í Ijós að
írar, Islendingar og Bretar eru
lengstan tíma að vinna fyrir drop-
anum.
Taflan er eftirfarandi:
Danmörk 4.32 mín.
Noregur 4.98 mfn.
Svíþjóð 3.91 mín.
Belgía 5.60 mín.
írland 8.46 mín.
Sviss 5.02 mín.
V-Þýzkaland 4.63 mín.
Luxemborg 3.80 mín.
Bretland 6.57 mín.
ísland 7.51 mín.
Það tæki íslending hins vegar
9.04 mínútum að vinna fyrir
bensínlftranum ef fyrirhuguð
bensínhækkun í 112 kr. verður að
veruleika og hlytu Islendingar þá
þann vafasama heiður að þurfa að
vinna mest þessara þjóða fyrir
bensínlftranum. - JH
HVER ER UPPRUNIJÓLANNA?
Svarii að finna í nýrri bók eftir Ama BjSmsson “ðmra JB; a'ð [sor„b»“gdi,<;'a
Saga daganna, hátíðir og verzlunarmanna, sjómannadag- t>að er bókaforlagið Saga sero
merkisdagar á Islandi og uppruni inn o.fl. gefur bókina út, ísafoldarprent-
þeirra nefnist ein af bókunum í I bókinni er sagt frá uppruna smidja prentar.Bókin er 128 bls.
jólabókaflóðinu í ár. Höfundur er iólanna og ýmsum matarvenjum 0g kostar 3.600 kr. með söluskatti.
Arni Björnsson þjóðháttafræð- og siðum a jólum, einnig frá sið- - A.Bj.
Varðeldasögur 2. bindi:
SKÁTALÍFILÝST
ingur.
I bókinni er sagt frá merkis-
dögum, sem haldnir voru hátíð-
legir i fyrndinni. en einnig er að
finna þarna heimildir um nýlegri
hátíðisdaga svo sem eins og frídag
Þossi trikning er raunar ekki í
hókinni um sögu daganna, heldur
barst hún DB frá listamanninum,
Morris Redman Spivack.
Síðara bindið af Varðeldasög-
um eftir Tryggva heitinn Þor-
steinsson er komið út. Það er 160
síður með nokkrum fjölda teikni-
mynda. Sagt er frá skátastarfi
eins og það kom Tryggva f.vrir
sjónir.
Inngang f bókina. um Trvggva.
ritar séra Bolli Gústavsson í Lauf-
ási. Það er Skjaldborg, sem gefur
Varðeldasögur út. Þær kosta
2.640 krónur. - DS