Dagblaðið - 05.12.1977, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 1977.
9
Vekja athygli á
skaösemi „óbeinna
reykinga” fólks
Ýmsir aðilar leggja áherzlu á rétt þeirra sem reykja ekki
„Virðió rétt þeirra, sem reykja
ekki“ er meginboðskapur upp-
lýsingaherferðar, sem Samstarfs-
nefnd um reykingavarnir gengst
fyrir þessa dagana. Nefndin
,hefur haft samvinnu um fram-
kvæmd þessa verkefnis við ýmis
félög og samtök. sem láta sig þessi
mál nokkru skipta og hafa mörg
þeirra vakið athygli á einstökum
þáttum óbeinna reykinga í til-
kynningum í útvarpinu nú i vik-
unni.
Rannsóknir hafa leitt í ljós, að
tóbaksreykur er ekki aðeins skað-
legur þeim, sem reykja, heldur
valda ýmis þeirra efna, sem i
reyknum eru, fólki, sem er í ná-
vist reykingamanna, óþægindum
og jafnvel heilsutjóni. Alvar-
legast er þetta gagnvart sjúkling-
um, er haldnir eru ofnæmi fyrir
ýmsum þessara efna eða hafa
þjáðst af hjarta- eða lungnasjúk-
dómum. Þá hefur verið sannað, að
slíkar óbeinar reykingar eru skað-
legar heilsu barna.
Samstarfsnefndin vekur nú
sérstaka athygli á rétti þeirra sem
reykja ekki til þess að fá að anda
að sér hreinu lofti, sem laust er
við þau skaðlegu og ertandi efni,
sem eru i tóbaksreyk. Eru reyk-
ingamepn hvattir til að sýna til-
litssemi gagnvart fólki, sem ekki
reykir, og minntir á að reykja
allra sízt í návist barna.
Þeir aðilar, sem standa að þess-
ari fræðslu um óbeinar reykingar,
eru auk Samstarfsnefndar um
reykingavarnir Læknafélag
Islands, Krabbameinsfélögin,
Hjartavernd, Barnaverndarráð,
Landssamband íslenzkra barna-
verndarfélaga, Samtök astma- og
ofnæmissjúklinga og Bandalag ís-
lenzkra leigubifreiðastjóra.
Auk þess sem ýmsar upp->
Fjöldi barna og unglinga úr skólum í Reykjavík og nágrannabæjunum
vinnur nú að því að dreifa veggspjöldum um rétt þeirra, sem reykja
ekki, til fyrirtækja og stofnana á höfuðborgarsvæðinu. Mynd: Jóh.
Long.
lýsingar og hvatningarorð hafa
birzt í fjölmiðlum hafa börn úr
skólum í Reykjavík og nágrenni
dreift veggspjöldum með hvatn-
ingu til reykingamanna um að
virða rétt þeirra, sem reykja ekki.
Hafa þau verið hengd upp í fjöl-
mörgum fyrirtækjum og stofnun-
um síðustu daga og verður þvi
haldið áfram.
Aldnirhafa orðið:
6. BINDIKOMIÐ ÚT
Ut er komið 6. bindi bóka- sonar, Snæbjargar Aðalmunda-
flokksins Aldnir hafa orðið sem dóttur, Stefáns Jasonarsonar,
Skjaldborg gefur út. Eins og fyrr Þorleifs Ágústssonar og Þorkels
er það Erlingur Daviðsson sem Björnssonar. Myndir eru af öllu
skráð hefur sögur þeirra Guð- þessu fólki í bókinni. Hún er 271
laugar Narfadóttur, Guðna bls. og kostar 4200 kr. með sölu-
Þórðarsonar, Hólmsteins Helga- skatti. - DS
Ný — vönduð — falleg
Leðurstígvél
Svartleöur
Verðkr. 11.550.-
Sumarauki
— Ijóð eftir Braga Sigurjónsson
Skjaldborg hefur gefið út ljóða- Auk þess hafa komið út eftir
bók eftir Braga Sigurjónsson., hann sögur og þýðingar á ljóðum.,
Nefnist hún Sumarauki og er 96 Bókin kostar 2400 krónur í búð.
síður. Þetta er 7. ljóðabók Braga. - DS
VOLVO 244
FRA KR. 2.894.000
í dag auglýsa flest bifreiðaumboð
öryggi,.þægindi og aksturseiginleika
bifreiða sinna' Þannig hefur Volvo
auglýst undanfarin tiu ár, enda verið í
fararbroddi hvað snertir öryggi
ökumanns og farþega.
Nú aftur á móti, auglýsir Volvo mun
betra verð en áður.
Sé gerður samanburður á Volvo og
kepþinautunum, kemur í Ijós að Volvo
býður hagstætt verð, góða varahluta-
og viðhaldsþjónustu um allt land,
mjög hátt endursöluverð, og Volvo
öryggi íkaupbæti.
•miöaö viö gengi Skr. 1/12 '77
VELTIR HF
Suðurlandsbraut 16 • Sími 35200