Dagblaðið - 05.12.1977, Qupperneq 12
12
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 5. DESEMBER 1977. i,
BIABIB
þi, áháð dagblað
Lltgefandi Dagblaöið hf.
Framkvœmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jonas Krístjánsson.
Fréttastjóri: Jón Birgir Pótursson. Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjórnar:
Jóhannos Reykdal. Iþróttir: Hallur Símonarson. Aöstoðarfréttastjóri: Atli Steinarsson. Handrit:
Ásgrímur Pálsson.
Blaöamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson. Bragi SigurÖsson, Dóra Stefánsdóttir, Gissur
Sigurösson, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jónas Haraldsson, Katrín Pólsdóttir, Ólafur Geirsson,
ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson, Ragnar Lár.
Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Höröur Vilhjálmsson, Sveinn Þormóösson.
Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Þráinn Þorleifsson. Dreifingarstjóri: Már E. M.
Halldórsson.
Ritstjóm Síöumúla 12. Afgreiösla Þverholti 2. Áskriftir, auglýsingar og skrifstofur Þverholti 11.
Aðalsimi blaösins 27022 (10 línur). Áskrift 1500 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 80 kr-
eintakiö.
Setning og umbrot: Dagblaðið og Steindórsprent hf., Ármúla 5.
Mynda og plötugerð: Hilmir hf. Síöumúla 12. Þrentun: Árvakur hf. Skeifunni 19.
Neitið úrslitakostum
Stéttarsamband bænda hefur
sett ríkisstjórn og skattgreið-
endum úrslitakosti. Annaðhvort
verði söluskattur á kjötvörum
afnuminn, ellegar muni sam-
bandið ekki hafa afskipti af fjár-
hagserfiðleikum bænda, sem
fyrirsjáanlegir eru vegna gífurlegrar offram-
leiðslu á ofsadýrum og óseljanlegum afurðum.
Láti ríkisstjórnin kúgast fyrir hönd skatt-
greiðenda, kostar það 1520 milljón króna
tekjurýrnun á ári, sem bæta verður upp með
skattlagningu á landslýð. Er þá líklegt, að ríkis-
stjórninni detti bensínið í hug eins og stundum
áður.
Sumir bændur virðast vera forviða á þessari
þróun. Hermann Guðmundsson á Blesastöðum
varpaði fram þeirri spurningu á bændafundi í
Grímsnesi um daginn, hvað hefði eiginlega
gerzt, því að á síðasta ári hefðu bændur verið
hvattir til að auka framleiðslu sína.
Hvorki ríkið né skattgreiðendur bera ábyrgð
á því, þótt ráðamenn Stéttarsambands bænda
og Búnaðarfélags Islands hafi reynt að
blekkja bændur í fyrra. Þessar tvær stofnanir
gæta í raun hagsmuna vinnslustöðva og sölu-
félaga, sem þurfa sem mesta veltu og líta á
bændur sem þræla sína.
Öll landbúnaðarstefnan byggist á því, að
umsvif vinnslustöðva og sölufélaga í land-
búnaði séu sem mest. Þar renna í gegn allir
milljarðarnir, sem ríkisvaldið heldur, að það sé
að borga bændum. Þess vegna hefur árum
saman verið rekin stefna gegndarlausrar út-
þenslu í landbúnaði.
Skynsamir menn hafa árum saman bent á, að
þetta væri orðin hringavitleysa og að stefna
þyrfti að samdrætti í landbúnaði. Þessar
aðvaranir hafa heyrzt, því að hinir skynsömu
hafa verið skammaðir og svívirtir eftir megni.
Nú er komið í ljós, að þeir höfðu rétt fyrir
sér. Á fundinum í Grímsnesi, sem áður er
nefndur, viðurkenndi Gunnar Guðbjartsson,
formaður Stéttarsambands bænda, að verð
landbúnaðarvara væri um tíu sinnum hærra
hér en víða í Evrópu. Er það nokkru hærra
hlutfall en svokallaðir óvinir bænda hafa áður
verið sagðir Ijúga. Einnig viðturkenndi Gunnar,
að smjörbirgðir í landinu yrðu 1800 tonn í
árslok.
Hér í Dagblaðinu hafa hvað eftir annað verið
settar fram ýtarlegar tillögur um, hvernig
draga megi saman seglin í landbúnaði án þess
að skerða tekjur bænda. Eftir þessu var ekki
farið, svo að nú standa bændur andspænis
óumflýjanlegri tekjuskerðingu.
Óvinir bænda eru nefnilega mennirnir, sem
hvöttu þá til framleiðsluaukningar, þvert ofan í
heilbrigða skynsemi og eingöngu til að þjóna
hagsmunum vinnslustöðva og sölufélaga. Þetta
eru ráðamenn Stéttarsambands bænda og
Búnaðarfélags íslands.
Svo koma þessir óvinir bænda núna og
heimta, að ríkið og skattgreiðendur borgi vit-
firringuna. Ef þeim tekst að fá því framgengt,
verður skattgreiðendum og neytendum ljóst, að
ríkisstjórnin er andvíg hagsmunum skatt-
greiðenda og neytenda.
Auðvitað á ríkisstjórnin að harðneita úrslita-
kostum Stéttarsambandsins.
Keisarinn í Mið-Af ríkulýðveldinu:
Tekur Napóleon
mikla sér til fyrir-
myndar
Jean Bedel Bokassa hefur nú
sjálfur krýnt sig til keisara í
Mið-Afríkulýðveldinu, að dæmi
þess manns, sem hann dáir
mest, Napóleons mikla. Bok-
assa hefur nú síðustu árin
safnað á sig æ meira skrauti, að
dæmi Amíns í Uganda.
Boðungurinn á jakka hans er
alþakinn alls konar heiðurs-
merkjum, sem eiga að vera
merki um hetjuskap hans og
hreysti.
Bokassa nú krýndur keisari
Mið-Afríkulýðveldisins, sagði
við krýningu í gær, að það
væri þjóðin öll sem rétti honum
kórónuna til að setja á höfuð
sér.
K0MST TIL VALDA
í BYLTINGU ÁRIÐ 1966
Keisarinn var eitt sinn
lautinant í franska hernum.
Hann komst til valda í Mið-
Afríkulýðveldinu í byltingu,
sem var gerð árið 1966.
Með árunum hefur heiðurs-
merkjunum í jakkabarmi
byltingarmannsins sífellt fjölg-
að. Nú er svo komið að Bokassa
á í fullu tré við kollega sinn í
Uganda, Idi Amin, hvað varðar
heiðursmerkjasafn handa
sjálfum sér. Hann hefur nú
tekið upp á því, þar sem fleiri
heiðursmerki komast ekki 1
jakkaboðunginn hans, að krýna
sig til keisara.
EINLÆGUR AÐDÁANDI
NAPÓLE0NS
Nokkrum dögum fyrir
krýninguna lýsti Bokassa þvi
yfir, að hann væri mjög mikill
Keisarinn hleður á sig alls
konar orðum og hefur hann nú
komizt svo langt, að hann er
talinn vera á góðri leið með að
skáka Amín (Jgandaforseta.
Skynsemin sigraði stórt
Island hlaut 7254
atkvæði en
Morgunblaðið 1510
Það ku hvorki þykja hæ-
verska né háttvísi að brosa
breitt þótt sigur vinnist öðru
hverju í lífsbaráttunni. Til þess
er of skammt á milli gleði og
sorgar. Gleðitár eins eru oft sölt
í annars sár.
Ahugamenn um nýjar leiðir
innan Sjálfstæðisflokksins
beittu sér fyrir þremur spurn-
ingum og studdu þá fjórðu í
skoðanakönnun samfara próf-
kjöri í Reykjavík.
Spurningarnar fjórar hlutu af
gerandi jákvæðan dóm kjós-
enda. Flutningsmenn leyfðu
sér því að líta aðeins upp frá
brauðstritinu og brosa út i ann-
að. En brosin stirðnuðu fljótt á
vörum.
TRÚB0D REKIÐ
MEÐ HANDAFLI
Prófkjör sjálfstæðismanna í
Reykjavík er í raun réttri bylt-
ing. Það er á þennan hátt sem
íslenzk borgarastétt byltir fargi
dáðlausrar forystu. Hún bítur
ekki grenjandi í skjaldar-
rendur né æðir hamslaus um
stræti. Þögull dómur atkvæða-
magns afþakkar hins vegar
áframhaldandi forsjá núver-
andi forystu Sjálfstæðisflokks-
ins í varnarmálum. Sami dómur
heimtar frjálst útvarp og áfeng-
an bjór. Överjandi ríkiskaup á
brunarústum eru fordæmd.
Rík ábyrgðartilfinning og
flokksvitund speglast í því að
formaður flokksins er ekki
strikaður út af prófkjörslistum.
Andúð Reykvíkinga er
málefnaleg en beinist ekki að
einstaklingum.
Samt sem áður er það alvar-
legt hættumerki flokksstefnu
þegar fjórðungur kjósenda sér
ekki ástæðu til að setja for-
mann í eitt þeirra tólf sæta sem
til boða stóðu í prófkjöri. Slíkt
mat er raunhæfara á stöðu
frambjóðenda en þau 400 at-
kvæði er skildu að fyrsta mann
og annan.
Eigendur Sjálfstæðisflokks-
ins ættu að fgrunda vel þá stað-
reynd áður en þeir freista þess
að troða minnihlutasjónarmið-
um sínum ofan í reykvíska
borgarastétt með handafli. Slík
eru vinnubrögð Mólúkka.
SKODANAKÖNNUN
í HERS HÖNDUM
Framkvæmd þessarar frægu
skoðanakönnunar var fyrir
neðan allar hellur. Könnunin
var greinilega í óþökk þeirrar
fámennu valdaklíku sem hefur
steinbítstak á Sjálfstæðis-
flokknum og formanni hans.
Það er fyrst og fremst að
þakka nokkrum raunveruleg-
um lýðræðissinnum í fulltrúa-
ráði að könnunin hlaut ekki
náðarstungu í sláturhúsinu við
Bolholt.
Dagskipun flokkseigenda
hljóðaði upp á skilyrðislausa
þögn. Skoðanakönnunin var þvi
hvorki nefnd í auelvsineum
vegna prófkjörsins né f gamla
þreytta Morgunblaðinu. Þess-
um þætti tjáningarfrelsis
skyldi mismunað af öllu afli
blaðsins og síðdegisútgáfan
gelti kát á eftir.
Þegar þetta er ritað hafa
rúmlega 1500 dálksentímetrar
birzt í Morgunblaðinu á fáum
dögum til höfuðs skoðun-
um mikils meirihluta sjálf-
stæðismanna i Reykjavfk. Sam-
kvæmt gjaldskrá auglýsinga-
deildar kostar þessi nýja
Jórsalaferð blaðið um eina og
hálfa milljón króna sem komið
er. Ríkisstyrkur Morgun-
blaðsins endist því aðeins f
nokkra vikna úthald krossfar-
anna. Ljós er því nauðsyn
flokkseigenda á fjármagns-
endurnýjun í formi einhverra
Vfðishúsakaupa.
En skyldu hluthafar f Ar-
vakri hf. vera á eitt sáttir við
þessa nýjustu herferð blað-
stjórnar Morgunblaðsins gegn
lesendum sínum?
MESTA MEIN
ALDARINNAR
Morgunblaðið er I raun réttri
höfuðmeinsemd Sjálfstæðis-
flokksins f dag. Stjórnendur
blaðsins lifa enn á tfmum bóka-
brenna og galdraofsókna.
Heimsmynd þeirra er kyrr-
staða, flót jörð og stjörnur
málaðar á himinhvolfið.
Þeir trúa þvf enn að þögn
þeirra þýði sjálfkrafa dauða