Dagblaðið - 05.12.1977, Síða 36

Dagblaðið - 05.12.1977, Síða 36
Bóndinn kom sjálfur i veg fyrir bæjarbruna — en brenndist illa og var f luttur á Landakot Um áttalcytið á sunnudags- morguninn kviknaði í kyndi- klcfa á bænum Hólmanesi i Gaulverjabæjarhreppi. Bónd- inn þar, Guðmundur Sigurðs- son, réð sjálfur niðurlögum eldsins, en brenndist illa við það og var fluttur á Landakots- spitala. Að sögn lögreglunnar á Selfossi sýndi Guðmundur þarna mikið snarræði, því óvíst er hvernig hefði farið ef beðið hefði verið eftir slökkviliði frá Selfossi, enda er bærinn i rúmlega 30 km fjarlægð þaðan. Töluverðar skemmdir urðu á kyndiklefanum en íbúðarhúsið skemmdist ekki að öðru leyti. HP Mosfellingar vígja nýtt íþróttahús Mosfellingar tóku nýtt íþrótta- hús að Varmá í notkun við hátíð- lega athöfn í gær. Var öllum hreppsbúum boðið til vígslu- hátíðarinnar auk margra annarra góðra gesta. Ahorfendasvæði hússins tekur um 800 manns í stæði. Salurinn, sem er fullbúinn, er 24x45 metr- ar að flatarmáli, en búningsher- bergi eru í kjallara sundlaugar- innar ög er innangengt þar á milli. Næsti áfangi hússins verður reistur strax og ástæður leyfa, en það verða hliðarsalir og búnings- klefar. Við vigsluathöfnina í gær komu fram 300—400 börn og unglingar úr skólum hreppsins og sýndu fánahyllingu og nokkra íþrótta- leiki. Húsinu hafa borizt margar góðar gjafir. en einna vænzt hefur Mosfellingum þótt um tvær höggmyndir, sem ekkja Guðmundar heitins Einarssonar frá Miðdal gaf húsinu. Þessar tvær höggmyndir hlutu fyrstu verðlaun á Ölympíuleikunum í Helsinki 1952. Vígslusamkomunni stjórnaði Jón Baldvinsson sveitarstjóri. -OV a liði um völl hins nýja íþróttahúss að Varmá við vígsluathöfnina í gær. Bíllinn dældaður en stúlkan óbrotin Ellefu ára gömul telpa varð fyrir bifreið er hún ætlaði að skjótast suður yfir Suðurlands- brautina frá Laugardalshöllinni í gær. Skyggni var slæmt og aðstæður erfiðar til aksturs og útiveru. Stúikan hlaut mikið högg og var bíllinn dældaður eftir og ljósker brotið. Samt slapp stúlkan vel frá slysinu, er óbrotin en marin og skrámuð. Þrír aðrir árekstrar urðu í Reykjavík í gær og í öllum til- vikum óku hinir seku burt af slys- stað. I einu tilfellanna var ekið utan í tvo kyfrstæða bíla og kerru í öðru tilfelli. Unnið er að rannsókn þeirra mála. — DB- mynd Sv.Þ. ASt. „Hverskonarárásum á kjör verkafólks svarað strax með öllum tiltækum ráðum" 8. þing Verkamannasambandsins lauk í gær: — Alþýðuf lokksmenn styrktu stöðu sína í stjórn „Verðbólga stafar ekki af of háum launum verkafólks. Þegar farið er að tala um nauð- syn þess að leysa efnahags- vanda ríkisstjórnar á hverjum tfma og gera ráðstafanir í sam- bandi við hann, þýðir það venjulega árás á kjör verka- fólks í þessu landi,“ sagði Guð- mundur J. Guðmundsson. formaður Verkamannasam- bands íslands í viðtali við Dag- blaðið. ,,Á þessu áttunda þingi Verkamannasambandsins kom i'ram fullkominn einhugur um að mæta hverri árás á þær kjarabætur, sem náðust með samningunum síðastliðið sumar með öllum þeim ráðum, sem verkafólki eru tiltæk," sagði Guðmundur J. Guðmundur sagði að ekki skipti máli hvernig reynt væri að dulbúa skerðingu á kjörum verkafólks. Með því yrði vel fvlgzt. Kvað hann verkafólk telja fulla ástæðu til allrar að- gátar á gerðum stjórnvalda í þessu tillití. „Það er sama, hvort reynt er að skerða kjör verkafólks með skerðingu á vísitöiu, með gengissigi eða á einhvern ann- an hátt. Öllum slíkum aðgerðum, sem fela í sér aðför að verkafólki, verður umsvifa- laust svarað á viðeigandi hátt,“ sagði Guðmundur. Hann kvað þing Verka- mannasambandsins hafa fjallað um ýmis hagsmuna- og félags- mál. Meðal annars kvað hann mjög frjóar umræður hafa orðið á þinginu um virkara félagsstarf innbyrðis í laun- þegasamtökunum. Forystu- menn verkalýðsfélaganna í Guðmundur J.: „Öllum tilraun- um til kjaraskerðingar um- svifalaust svarað á viðeigandi hátt.“ hinum 46 aðildarfélögum með um 20 þúsund meðlimi hefðu verið varaðir við þeirri hættu sem stafað gæti af stöðnun félagslegrar endurnýjunar í samræmi við kröfur hvers tlma. Guðmundur kvað engan hafinn yfir gagnrýni í samtök- um sem Verkamannasamband- inu. Nauðsyn bæri til að menn héldu vöku sinni á uggvænleg- um tímum. Meðal þess, sem bryddað var upp á, voru hug- myndir um umræðufundi á hinum ýmsu vinnustöðum. Hefðbundnir félagsfundir einir væru ekki lengur samkvæmt kröfum tímans. Með starfs- manna- og félagafundum á vinnustöðunum væri hægt að gera félagsmenn virkari og skapa nánara samband milli kjörinna forystumanna og sjónarmiða sem félagsmenn vildu koma fram með utan félagsfundanna. Guðmundur ,1. Guðmundsson kvaðst naumast muna opnari og ánægjulegri umræðu á þingi Verkamannasambandsins en því, sem lauk í gær eftir þriggja daga þinghald. „Órofa einhugur er ríkjandi meðal verkafólks um að standa vörð um rétt sinn og kjör. Við ætlumst til þess að þeir sem gera sér einhverjar minnstu hugmyndir um annað, og þeir herrar sem reyna að hrófla til óþurftar við kjörum verka- fólksins í landinu, skilji þetta," sagði Guðmundur J. Guð- mundsson. NOKKRAR ÝFINGAR í STJÓRNARKJÖRI Nokkrar ýfingar urðu í stjórnarkjöri, þótt yfirleitt væri samkomulag. „Órólega deildin" svoncfnda, hinir róttækustu, gerðu nokkra hríð að meirihlut- anum en náðu ekki árangri í kosningum. Fjölgað var í sam- bandsstjórn í 19, og Alþýðu- flokksmenn styrktu þar stöðu. sína. Kunnugir segja að nú séu 10 „kratar og 9 alþýðubanda- lagsmenn í stjórninni. 1 kosn- ingu í framkvæmdastjórn féll alþýðubandalagsmaður úr Dagsbrún- fyrir alþýðuflokks- manni sem hafði stuðning ým- issa alþýðubandalagsmanna. - BS/HH frjálst, óháð dngblað MANUÐAGUR 5. DES, 1977. Herjólfur komst ekki inní Þorlákshöfn —komtilReykja- víkurínótt Vestmannaeyjaferjan Herj- álfur komst ekki inn til Þor- lákshafnar í gær vegna veðurs og því var snúið til Reykjavikur. Fréttaritari DB í Vestmanna- eyjum, Ragnar Sigurjónsson, var með Herjólfi í þessari ferð og sagði hann að sjólag hefði verið slæmt hjá Þorlákshöfn og hefði skipið oltið nokkuð mikið er það sneri frá en hefði aftur á móti verið gott á lensinu til Reykja- víkur. Skipið kom til Reykjavikur skömmu eftir miðnætti í nótt en það átti að vera í Þorlákshöfn kl, 5.30 í gær. Nokkuð bar á sjóveiki meðal farþega sem voru margir, u.þ.b. 150. Allir klefar-voru fullir og fólk kom sér fyrir í báðum sölum. Mikið var af bílum um borð en hægt var að nota flot- bryggju Akraborgar, þannig að hægt var að ná bílunum úr skipinu. Rúta flutti síðan þá far- þega sem ætluðu til Þorláks- hafnar strax frá skipshlið. Herjólfur fór sfðan aftur frá Reykjavík kl. 4 í nótt. JH Talsverð hækkun á land- búnaðar- vörum Búizt er við, að yfirnefnd úrskurði um verðhækkun á land- búnaðarvörum í dag eða á morgun, að sögn Gunnars Guðbjartssonar, formanns Stéttarsambands bænda, i morgun. Gunnar sagði, að óvíst væri, hve mikil verðhækkunin yrði. Talað væri um að bæta bændum drátt sem orðið hefði á hækkun, ef til vill um 7 prósent, sem hefði átt að verða 1. september. Yrði þá lagt ofan á hana álag til að bæta upp tafirnar. Auk þess kaemi til verð- hækkun vegna kauphækkunar 1. desember og annarra hækkana síðustu mánuði. Samkomulag náðist ekki um hækkunina í verðlagsnefnd lantf- búnaðarafurða og fór málið því til yfirnefndar. Ljóst er að búvöruhækkunin verður talsvert mikil. HH 47 þús. krónum stolið í Klúbbnum Peningaleysi knúði einhvern til athafna í Klúbbnum i gærkvöldi og réðst hann ekki til atlögu þar sem garðurinn var lægstur. Ur einum peningakassa hússins hurfu 47 þúsund krónur. Ekki hafðist uppi á þjófnum þarna strax um kvöldið. en rann- sóknarlögreglumenn hafa málið til rannsóknar. - ASt.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.