Dagblaðið - 19.12.1977, Side 8
8
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 19. DESEMBER 1977.
GOÐ GJÖf
SAMEINAR NYTSEMI
OG FEGURÐ .
Hinir heimsþekktu hönnuðir hjá Iittala eru sífellt að*endur-
nýja úrvalið af Iittala glösum, diskum, könnum, karöfflum,
bökkum, vösum, og stjökum.
Nýjar vörur frá Iittala eru ávallt augnayndi. Komið, skoðið,
veljið vörur frá Iittala. Úrvalið hefur sjaldan verið fallegra.
HÚSGfiGnfiVERSLUn
KRISTJflnS
SIGGEIRSSOnfiR HF.
LAUGAVEG113, REYKJAVÍK. SÍMI 25870
Unnu mink við
Tjörnina
Oddur Örvar Magnússon og
Arnþór Bjarnason unnu á mink
við Tjörnina i Reykjavík á laugar-
dagsmorguninn — nánar tiltekið
við svonefnda Þorfinnstjörn, þá
syðstu Hafa þeir þá unnið 155
minka á árinu, því annan mink
unnu þeir suður við Straumsvík
um hádegi á laugardaginn.
Þeir Oddur örvar og Arnþór
eru þaulreyndir veiðimenn og
njóta dyggrar aðstoðar hundanna
sinna fimm, sem þeir geyma að
jafnaði á hundabúinu í Þor-
móðsdal.
Hundarnir eltust talsvert við
minkinn í tjörninni áður en þeir
náðu honum og drápu — og tvisv-
ar beittu veiðimennirnir bensín-
eldi á minkinn til að fæla hann
undan bakkanum.
-ÖV.
Oddur Örvar og Arnþór með veiði sína og hundána
góðu.
DB-mynd: Hörður.
Nýjung í verzlunarmáta Reykjavíkur:
VERKALÝÐSFÉLAG
MEÐ VERZLUN
— Handprjónasambandið lætur ekki
deigan síga
Aðstandendur Handprjónasambandsins i hinni nýju verzlun.
DB-mynd Bjarnieifur.
Það er skammt stórra högga á
milli hjá hinu nýstofnaða verka-
lýðsfélagi handprjónafólks. Nú er
félagið búið að opna verzlun með
vörur sinar og hyggst fara að
skipta beint jafnt við innlenda
aðila sem erlenda. Verzlunin var
opnuð á laugardagsmorguninn að
Skólavörðustíg 19, og eru þar til
sölu hinar margvíslegustu vörur
úr lopa og íslenzku bandi. Ekki er
bara um hinar góðu og klassísku
prjónapeysur að ræða heldur eru
líka á ferðinni nýjungar sem
félagarnir hafa unnið sjálfir sér-
staklega fyrir hina nýju verzlun.
Má þar til dæmis nefna mörg
spáný peysumynstur, sem aldrei
hafa sézt fyrr. Mörg þeirra hefur
Steingerður Hólmgeirsdóttir
hannað og prjónað.
Vörurnar í búðinni hafa ekki
ennþá verið greiddar því prjóna-
fólkið hefur lánað þær svona til
að byrja með. Sýnir það betur en
mörg orð hversu mikill samhugur
ríkir í samtökunum og mikil von
um að þetta eigi allt eftir að tak-
ast.
að fara að greiða fyrir láns-
vörurnar.
Ætlunin er að prjónafólkið
reyni til að byrja með að starfa
eftir mætti sjálft i nýju búðinni,
en þó gæti farið svo ef viðskiptin
eru mikil að ráða verði fólk utan
að.
Eiginlega er ekki hægt að stilla
sig um að óska prjónasamtökun-
um alls góðs því prjónafólkið hef-
ur verið alveg nógu lengi kúgað
og fengið skít og ekki neitt, fyrir
vinnu sína og vanþakklæti ofan á,
þó að varan sem það skapar geri
líklega eins mikið og fiskurinn til
þess að halda nafni íslands á iofti
meðal þjóða. -DS.
Bridgestone
sýniráhuga
á hjólbörðum
Einars
' ,7*»* OUllllllUg-
ar við Alafoss, Rammagerðina,
Hildu og þau fyrirtæki önnur sem
hingað til hafa keypt vörur úr
lopa um hærra verð. Með hinni
nýju verzlun á alls ekki að hætta
þessum samningaumleitunum,
heldur að reyna að gera líka eitt-
hvað annað og nýtt. Með því að
koma upp eigin verzlun fá
prjónararnir allan ágóðann af
henni en þeir sem eru í félagi
handprjónara eiga verzlunina
saman.
Þegar eru nokkur erlend fyrir-
tæki búin að falast eftir viðskipt-
um við Handprjónasambandið og
hafa þau viljað kaupa vörur af því
beint. Nú er verið að íhuga þau
mál því þetta tekur allt sinn tíma.
Strax og gengið hefur verið frá ð t
fyrstu slíkri pöntuninni er hægt
anagestone njoibarðaverk-
smiðjurnar heimsfrægu hafa nú
sýnt nagla-hjólbarða-hugmynd
Einars Einarssonar áhuga. Fékk
Einar nú á dögunum bréf frá for-
stjóra Dusseldorf-deildar Bridge-
stone verksmiðjanna, þar sem
hann lýsir þessum áhuga á hinni
athyglisverðu uppfinningu Ein-
ars. Telur forstjórinn í bréfi sínu
að hugmynd Einars henti ekki
núverandi .gerð Bridgestone hjól-
barðanna sem í framleiðslu séu,
en varðandi hugsanlegar
breytingar I framtíðinni sé hug-
myndin mjög athyglisverð.
Biður forstjórinn Einar að
senda sér kvikmynd er lýsi nýjn
hugmyndinni svo athuga megi
málið gaumgæfilega.
Einar Einarsson hefur ákveðið
að taka þessu tilboði.
■—ASfc-