Dagblaðið


Dagblaðið - 19.12.1977, Qupperneq 11

Dagblaðið - 19.12.1977, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 19. DESEMBER 1977. 11 r Bækur frá Ægisútgáfunni am 5X8& !«wE Afburðamenn og ör/agava/dar. IV. Báröur Jakobsson skráði. 4. bindið i þessu stórfróðlega safni, sem er raunar mannkynssaga i svipmyndum. Æviþættir 20 mikil- menna sem hafa átt stóran hlut i að móta nútima veröld. Enn eru öll bindin fáanleg á góðu verði. Þau ættu að vera til á hverju héimili. Alls hafa birst i safninu 80 þættir. 1 þessu bindi er saga eftirtalinna andans jöfra: Vilhjálmur Sigursæli, Gengis Kahn, Machiavelli, Karl V, Jóhannes Kalvln, Elisabet 1., Richelieu, Oliver Cromwell, Rembrandt, Jóhann Sebastlan Bach, Thomas Paine, Talleyrand, Napóleon Bonaparte, Hans Cristian Andersen, Bismarck, Stanley, Sigmund Freud, George Bernard Shaw, Friðjófur Nansen, Albert Einstein. Æ Islendingar i Vesturheimi II. Eftir Þorstein Matthiasson. Þetta bindi flytur aðallega frásagnir og viðtöl við gamla íslendinga búsetta i Canada. Þeir hafa frá mörgu að segja og dvölin i nýja land- inu var ekki dans á rósum fyrstu árin. Hörð barátta við óbliða veðráttu skordýraplágur, pestir og alls- leysi var hlutskipti flestra. Þessir segja frá: Fröken Siurbjörg Stefánsson, Arni Kristinsson, Þóröur Þ. Bjarnason, Jóhannes Þóröarsson, Hallgrimur Staöfeld. Petrina Regína Péturson Björn Oddgeirsson, Lárus Bjarni Nordal, Þuriöur Steinunn, Jón Páls- son, Magnús Eliasson, Frú Þórunn Vigfússon, Jón Vigfússon, Þor- steinn og Lfna, óli Narfason. Ýmislegt fleira er i ritinu. Héraðssögur Vestfjarða I Súgfirðingabók Gunnar M. Magnúss skráði. Mikiðrit, fróðlegt og skemmtilegt, 523 bls. með 190 myndum. Rakin er saga byggðar og mannlifs frá landnámi til vorra daga. Af köflum má nefna: Sólarsinnis um Súgandafjörð, Suðureyrartorfan, Spekúlant- ar og kaupmenn, Flotinn, Kynslóðin sem byggði þorpið, And- inn i efninu, Gengið og leikið, Félagslifið og fjölmargt fleira er i ritinu að finna. Upplagið er takmarkað. Dragið þvi ekki að ná i þessa fágætu bók. Þórunn Elva Magnúsdóttir: Frá Skólavörðustígab Skógum i Öxarfirði Minningar frá bernskuárum höf- undar hér á Skólavöröuholtinu, þeim sögufræga staö. Þar er minnst margra þekktra Reykvik- inga. Lýst er lifinu á fátæku barnmörgu heimili, ieikjum barna og starfi I þann tíö og margt fleira ber á góma. Leiöin iiggur svo aö Skógum i öxarfiröi, þar sem nú er staöur- inn umflotinn vatni, feröalaginu noröurog fyrstu kynnum af þeim stað. Aðalkaflarnir nefnast: Litil korn frá lifsins morgni, 1 húsi ieturgrafarans, og Litill feröa- langur. 1 ffVIÞŒHIS TUIIUCU MTKIIMENNÚ SDCUNK9R iSLENDINGAI i VESTURHEIMi land og fólk Æ»u Bjarna-Disa og Móri Halldór Pétursson skráði og safnaði. Hér segir frá frægum draugum austfirskum. Saga Bjarna-DIsu er harmsaga og aldrei varö hún mikill skaö- valdur þó hrekkjótt væri hún óneitanlega. Um Móra gegnir ööru, Hann var bruggaöur úr lyfjasulli og bein- Iinis til þess geröur aö vinna öðrum mein. öll þau ósköp sem Móra tókst aö afreka öörum til óþurftar eru I senn ótrúieg og óskiljanleg. Maöur spyr undr- andi? Hvernig gátu þessi ósköp gerst, Lesandanum veröur aö eftirláta þá gátu. fl Frá Y Skólavörðustig að Skógum I Öxarfirði Halldór Pétunson »771 / stillu og stormi Jóhann J.E. Kúld. Upphaf Kúlds ævintýra. Jóhann rekur hér minningar frá æsku til fullorðins- ára. Fjörlegar frásagnir af búsháttum til sveita og sjávar. Jóhann segir skemmtilega frá hefur margt reynt heyrt og séð og fjölmargir þekktir menn koma við sögu. Af efninu má nefna: Brimleikur og fjaran. Danski-Larsen, Jón Vidalin Konsúll, Hesta- sveinn hjá Jóhannesi Nordal, Armanns-Gráni, Kaupstaöarferö, Heljarreiöin á Ólafs-Blesa, Ingimundur fiöla, Róiö úr Selsvör, Haldið á sildveiðar, Frá Sandgeröi var sótt á miöin, Viö endir skútualdar. Fjölmargt fleira mætti nefna. Skemmtileg og fróð- leg bók. m Hugrún: Strengjakliður Falleg bók aö útliti og innihaldi. 40 kvæöi ljóöræn og hrifandi, ort I heföbundnum stil. Hugrún er opin fyrir þvi sem gott er og fagurt, en á samt til aö stinga á kýlunum þótt hin hliðin sé henni hugstæö- ari. Ljóöavinum er þessi bók efalaust aufúsugestur. HUGRI 10- ir Mennirnir í brúnni l-V Þættir af starfandi skipstjórum, sem allir eru afburða-aflamenn auk sex siglingamanna. Samtals eru þeir 31 skipstjórarnir sem segja frá margháttaðri og lærdómsrikri reynslu sinni á langri sjómannsæfi. Þetta er verk sem öllum sjómannsefnum er nytsöm eign og lesning. Frá mörgu er að segja skemmtilegu og skoplegu eins og sjómönnum einum er lagið. Að ógleymdum þeim atburðum sem tóku á taugarnar og tvisýnt var hvort sykki eða flyti. Sögumenn eru: Arinbjörn Sigurðsson, Ásgeir Guðbjartsson, Björgvin Gunnarsson, Bernharð Pálsson, Egg- ert Gislason, Einar Sigurðsson, Finnbogi Magnússon, Gisli Jóhannesson, Gunnar Árna- son, Gunnar Hermannsson, Halldór Brynjólfs- son, Halldór Halldórsson, Haraldur Ágústsson, Hans Sigurjónsson, Hilmar Rósmundsson, Hrólfur Gunnarsson, Jóhann Simonarson, Magnús Þórarinsson, Marius Héðinsson, Markús Guðmundsson, Sigurður Árnason, Sig- urður Kristjónsson, Sigurjón Stefánsson, Stein- ar Kristjánsson, Tryggvi Blöndal, Tryggvi Gunnarsson, Þorvaldur Árnason, Þorsteinn Gislason, Þórarinn Ólafsson, Þórður Guðjóns- son, Þórarinn Ingi Sigurðsson.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.