Dagblaðið - 21.12.1977, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 21.12.1977, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1977. 2' r Er Morgun- blaðið frjálst? I.S.I. skrifar: „Svo vilja ritstjórarnir vera láta, en þeir leggja sérstakan skilning í frjálsræóið. Þeir fylgja ekki yfirlýstri stefnu Sjálfstæðisflokksins um eflingu einkaframtaks, um samdrátt ríkiskerfis og um gætna fjármálastjórn. Þeir fylgja ekki einu sinni ráðandi skoðunum innan flokksins í stórmálum, eins og þær hafa komið í ljós við kannanir. Á hinn bóginn draga þeir taum ýmissa hópa og embættis- manna. Ákveðnar klíkur virðast eiga opinn aðgang að borðum ritstjórnarinnar. Þannig gerist það, að sama dag og Morgunblaðið lýsir sjálf- stæði sínu í leiðara 14. des. þrástagast „Staksteinar“ á and- mælum fjögurra bankastjóra gegn þingfrumvarpi Eyjólfs Konráðs Jónssonar og Péturs Sigurðssonar um sparnað. Bendir allt til þess, að einhver úr hópi hinna sömu bankastjóra hafi beinlínis skrifað suma leiðara blaðsins síðustu vikurnar. Þetta er vissulega ekki „lýðræðislegt" en ef til vill „eðlilegt" af blaði sem er að hefja stórbyggingu. Morgunblaðið reynir stundum að sýna andlit frjáls- ræðis með því að birta greinar sem túlka ekki skoðanir rit- stjóranna. En þá geta þeir ekki á sér setið að vega aftan að höfundunum, eins og t.d.1 sovézka kennaranum Jakobi. Það var af þessari ástæðu sem Nóbel-hafinn Halldór Laxness kallaði Morgunblaðið „hælbít" hér á árunum." PALMROTH Kr. 29.990.- Hvers vegna ekki bjór? JÓLA- GJÖFIN HENNAR Kr. 12.300- Páll Daníelsson Kópavogi skrif- ar: Svo virðist sem bjórfrum- varp Jóns G. Sólness hafi sofnað svefni hinna réttlátu á Alþingi. Blaðaskrif um málið hafa lognazt út af svo mér finnst tími til kominn að ræsa mannskapinn. Mann er farið að langa í almennilegan bjór. Klára-pilsner er hálfbragðdauf- ur til lengdar og hver er mun- urinn svona lagalega séð? Mér þykir það hálffurðulegt að bannað skuli vera með lögum að brugga og selja bjór, Bréfritari vill fyrir aila muni fá áfengan bjór. sem er yfir 2H%, þegar menn eru að sullast i eldhúsinu heima hjá sér við framleiðslu ksterks öls. Það er bara verri framleiðsla. Að vísu eru til margir sem orðnir eru sérfræðingar í gerð öls úr efnum sem fást í öllum matvöruverzlunum. En sá lögur i liggur bara ekki á lausu svo maður verður að neita sér um almennilegan BJOR. Kjarni málsins er sem sagt þessi: Allir geta fengið öl ef þeir vilja. Annaðhvort styrkja menn pilsner með kláravíni eða brugga hann sjálfir úr efnum sem er eins auðvelt að fá og kartöflur. Hvers vegna er hann þá bannaður með lögum? Hvers vegna mega menn ekki drekka verksmiðjuframleiðslu? Ráddir lesenda JULLI — Jæja, nú á ég f jóra töfrastafi — einn fyrir hvern dag til jóla. Þetta verður spennandi. — Ég verð nú líklega að reyna, hvort börnin geti ekki eitthvað notað þá. Hvað er það nú aftur, sem menn segja? Já.... hokus pokus fiiijokus! — Hvílíkir galdrar. Galdrastafurin getur galdrað. Sjáðu, ég er bara horfinn, hrópar Júlli. En hvað skeður nú, ef ég verð ekki sýnilegur aftur fyrir jól — það eru bara 3 dagar til jóla. Hvfj, SEGiFðu,*! F4/V6&LS/0/ ----------------------- J/Q, FfrÓ 4>/kA SFJÓE/JÍ/V/JÍ T -9 <325 4

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.