Dagblaðið - 21.12.1977, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 21.12.1977, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1977. Hungrið í heiminum og vel- megunarvandi íslendinga í samræmi við heilbrigt efna- hagslíf íslendinga. Þvi miður er langt frá að svo sé. Og enn fjarri er að almennigur víða úti um hinn stóra heim hafi viðun- andi til hnífs og skeiðar, þótt hjá sumum svigni borð undan krásum. Samtímis gæsku til sjávarins höfum við notið góðs árferðis til landsins. í ljós hefur komið að um óvenju- mikla offramleiðslu er að ræða nú t.d. á kindakjöti og mjóik er veldur mörgum verulegum áhyggjum. Smjörfjall rís nú með hæsta móti og vandi er að „eyða“ því hér innanlands. Kjötið er flutt til forríkra þjóða á ,,gjafverði“. Bændur fjölmenna á fundi um allt land og ræða vandann á margra tíma fundum, svo löngum og fjöl- mennum að vart eru dæmi um annað eins. A Alþingi er fjallað um verðlagningu, fréttaflutn- ing og úrræði þeim til handa dag eftir dag án nokkurs sýni- legs árangurs. Svo virðist sem aðeins vissir útvaldir menn megi ræða og rita um landbún- aðarvandann og betri skipan þar á. Tillögur frá öðrum i þessu efni eru nærri þvi að vera taldar komnar fjandanum frá. Þó er raunhæf lausn óhugs- andi nema almenningur taki þátt í lausn vandans og beri það ok sem felst í raunhæfari skip- an en verið hefur. Það er sem sagt staðreynd að mörgum er enn hulin sú staðreynd að hags- munir vinnandi manns og bóndans fara saman. Farsæl lausn er því fólgin í sameigin- legri afstöðu þessara aðila. Nýlega voru nokkrir þættir í sjónvarpinu um áhrif offitu á heilsufar manna og hvernig æskilegt væri að haga mataræði sínu. Það er tímanna tákn að talið skuli nauðsynlegt að taka þetta nýja vandamál fyrir hér á Iandi. íslendingum hefur verið annað hugstæðara en að þurfa að hugleiða vandamál vegna of- fitu. Allt fram undir síðari heimsstyrjöld var hungurvofan landlæg hér við dyr verka- mannsins og einyrkjans. Svo er guði fyrir að þakka að ganga má út frá því að hún sé hér endanlega kveðin niður. En hitt er sorglegt að við, sem eigum svo miklu láni að fagna að lifa hér nú við allsnægtir, skulum ekki geta skipað málum okkar á heppilegri vegu en raun ber vitni í þessum efnum. Þótt dapurlegt sé hefur hungrið veitt okkur á liðnum öldum svo þungar búsifjar að við ættum þess vegna að skilja og meta vandamál hins hungraða heims í dag. Innan um hinar endalausu auglýsingar um „nytsamar" jólagjafir reynir íslensk kirkja í nánu samstarfi við alheims- samtök að leita til almennings með liðsinni um stuðning við „brauð handa hungruðum heirni". í allri velmegun okkar megum við alls ekki iíta fram hjá þessari beiðni. Á upp- lýsingaspjaldi má lesa eftirfar- andi: Fyrir 800 krónur má greiða mjólk eins barns í heilt ár. Fyrir 2800 krónur má kaupa námsbækur fyrir heilan bekk. Fyrir 6000 krónur má gera brunn með fersku vatni. Loks er tilnefnt að fyrir 18000 krónur megi gera skýli fyrir flóttamannafjölskyldu. Þetta kunna að þykja litlar upphæðir og fjarrænt að hug- leiða um þörf á fersku vatni. En staðreynd lífsins er samt sú að milljónir manna hafa ekki að- gang að fersku vatni. Vatnið er dýrmætara en marga grunar og leysir miklar þjáningar. Hversu margir munu hugleiða þá átakanlegu staðreynd að jóla- vikuna munu nær jafnmargir einstaklingar deyja af völdum skorts á þessari jörð og nemur fjölda Islendinga? Eg leyfi mér að benda fólki á beiðnina um stuðning og tel að flestir geti liðsinnt í þessari mikilvægu söfnun. Myndi það ekki vera til sannrar ánægju að hafa viður- kenningu um stuðning við út- rýmingu á hungrinu í heimin- um á jólaborðinu, t.d. undir kertastjakanum, og minnast með þakklæti liðins árs hér hjá okkur, jafnframt því að biðja um blessun fyrir hungraða meðbræður. hvar sem þeir eru staðsettir, þegar borðbænin er flutt og jólagleðin hefst? Anægjulegt er til þess að vita að skilningur manna uni allan heim er mjög vaxandi fyrir mannúðlegri aðstoð. Mörgum þykir seint miða fram á við en hér er þess að gæta að ekki eru nema 5 ár síðan Sameinuðu þjóðirnar gátu komið á fót ráð- stefnu um umhverfisvandamál mannkynsins, f Stokkhólmi í júní 1972. Einkunnarorðin voru: Aðeins ein jörð. Síðan hafa margar ráðstefnur verið haldnar um sama eða hliðstætt efni og matvælaöflun og sam- bnð mannsins við náttúrunn on nýtingu og varðveislu jarðar- gæðanna. Ungt fólk hefur komið saman undir kjörorðinu „Við erum öll bræður og systur“. Allt þetta hnígur að sama far- vegi, að tryggja friðsamlega sambúð manna og aðstoð við hina minni máttar án valdbeit- ingar eða að þjóðir og einstakl- ingar þurfi að ganga undir ok til þess að fá liðsinni. Þrátt fyrir gerólíkar skoðanir og trú er augljóst að um vaxandi sam- starf er að ræða milli þjóðanna til þess að útrýma hörmungum hungursins. Þetta starf fer nú fram á vegum fleiri aðila en Sameinuðu þjóðanna og er hjálparstarf kirkjunnar afar mikilvægt. Það er von min að sem flestir muni eftir barninu með tóma diskinn og vannærða líkamann þrátt fyrir áunnar jólaannir. Framlag má leggja inn.á gíróreikning 20.005. Jón Ármann Héðinsson alþingismaður Kjallarinn Aron Guðbrandsson munum gera það um langan tíma. En það merkilega er, að við eigum ennþá landið okkar og enginn varð var við neinn verðmiða hangandi á því í sambandi við þessi samskipti. SKOÐANAKÖNNUNIN Skoðanakönnun sú, sem fram fór í sambandi við prófkjör sjálfstæðismanna fyrir skömmu, er ein sú merki- legasta, sem hér hefir verið gerð. Hún sýndi marga merki- lega hluti. Ein spurn- ingin var um það hvort banda- ríkjamenn ættu að taka þátt í vegalagningu hér á landi. Daginn áður en könnunin fftr fram kom stærsta blað lands- ins með heilsíðu-leiðara prentaðan með letri sem ekki hefði verið stærra þótt sagt hefði verið frá því að þriðja heimsstyrjöldin væri hafin, og í þessum leiðara var mönnum raunverulega skipað að strika þessa spurningu út. En svo skeðu þau undur og stórmerki að 83% af þeim sem létu álit sitt í ljós, eða á áttunda þúsund manns, hlýddu ekki kallinu en tóku ákvörðun eftir eigin höfði. Þetta sýnir að fjölmiðlar eru ekki það skapandi afl um skoðanamyndanir fólks, sem margir hafa haldið. Við próf- kjör eins og það, sem hér er rætt um, mæta ekki aðrir en þeir sem hafa sérstakan áhuga á því, þ.e. aðalkjarni þeirra sem að því standa, og samt fór þetta svona. Þegar skoðanakönnun- inni er lokið, ris minnihlutinn upp og stgir: „Það er ekkert að marka þctta, þetta var svo illa undirbúið.“ Var þá stóri leiðar- inn og stóra letrið enginn undirbúningur? Ég held að ekkert mál hafi komið fram á síðustu árum, sem hefir verið meira rætt og meira ritað um heldur en þetta. Það er staðreynd, að þetta mál, samskipti okkar við NATO og Bandaríkin á sviði varnarmála, er orðið þjóðmál sem ekki verður kveðið niður, það hefir þegar fengið víst nafn, sem hefir ákveðna merk- ingu í málinu, og almenningur hefir mótað sér skoðanir um. Þar sem málið er kennt við mig sem upphafsmann þess tel ég rétt að ræða það dálítið nánar. Það eru um tíu ár síðan ég ræddi um það á opinberum vettvangi að samningar þeir, sem við höfum gert við NATO og Bandaríkiri um hervarnir hér á landi, væru ekki nægjanlega hagstæðir fyrir okkur og þetta rökstuddi ég á margan hátt, en síð- an hafa margar sannariir komið i ljós máli mínu til stuðnings. Ég er sjálfur maður vestrænnar samvinnu, svo um það atriði er ekki ágreiningur frá minni hendi, en mér finnst aó í samningum, sem við höfum gert innbyrðis við NATO- þjóðir, hafi hagsmuna okkar ekki verið gætt sem skyldi. Ég tel Bandríkjunum skylt að verja fólkið í landinu ekki síður en landið sjálft', eftir því sem kostur er, og þau greiði þann kostnað sem af því leiðir. Það er staðreynd að slikar varnir eru engar til. Þó er samankom- inn á Suðurnesjunum og í Reykjavík helmingur lands- manna, sem hægt er að tortíma á svipstundu á stríðstímum. Guðjón Petersen. fulltrúi Almannavarna rikisins, sagði um daginn i sjónvarpi að hér á landi væri ekkert samband á milli viðvörunarkerfa varnar- liðsins og islensku almanna- varnanna, ef til stríðs kemur, og heldur ekkert fjarskipta- kerfi milli miðstöðvar almannavarna og almanna- varnanefnda úti á landi. Guðjón sagði einnig, að menn væru orðnir fráhverfir því erlendis að flytja fólk úr stór- borgum, heldur setja upp sjálf- virk viðvörunarkerfi og mann- virki til þess að vernda1 fólkið. Þó þyrfti að flytja burt sjúklinga, börn, gamalmenni og vanfærar konur. Hann sagði líka að fólksflutningar frá Reykjavík og Reykjanes- svæðinu, þar sem eru um 60% landsmanna, mundi þýða algert efnahagslegt og þjóðfélagslegt hrun. Loftvarnabyrgi fyrir Keflavik eina mundi kosta um milljarð króna, sagði hann. SAMA HVAÐ ÞAÐ ER KALLAÐ Nú að undanförnu höfum við heyrt og séð ráðamenn þjóðar- innar í útvarpi og sjónvarpi og lesið eftir þá langar greinar í blöðum þar sem þeir lýsa van- þóknun '■inni á huemynd'nn mínum og segja. „Það sem með þarf' eiguni við að gera sj- i.' En við þetta er þö eitt að athuga. Síðan bandarískur her kom hingað fyrst eru liðin 37 ár og síðan við gerðum við hann varnarsamninginn eru 26 ár og allan þennan tíma hefir verið hægt að drepa helminginn af íslensku þjóðinni eins og flugur, varnarlausan og hjálparlausan. Hverju sætir þetta fyrst við eigum að gera þetta 'sjálf? Hafa þeir menn, sem við höfum kosið til þess að vaka yfir velferð okkar, svikii' okkur svona herfilega ,Vei. Það hafa ekki verið til petunga í islenska ríkiskassanum til þess að kosta þessar nauðsvn- legu framkvæmdir. Þessir sömu menn hafa líka sagt að við getum einskis krafu vegna þess að við látum eKkert af hendi i sambandi við varnar- kerfi NATO. Þessu vil ég svara þannig: Þetta eru rangar staðhæfingar. Það hefir engin af NATO-þjóðunum lagt fram til sameiginlegra varna þeirra eins mikið og við ef farið er eftir höfðatölureglunni. Ekki ómerkari maður en dr. J. Luns forstjóri NATO hefir lagt mat á framlag okkar í peningum gegnum aðstöðuna sem við veitum NATO hér á landi og var það sem svaraði 66 földum fjárlögum Islands það ár sem matið fór fram. Skoðun min er sú, að Banda- ríkjunum eða NATO beri að leggja fram það fé, sem með þarf til þess að varnir lands og lýðs séu eins fullkomnar ng hægt er, og þá kemur mer fyrst í hug samgöngukerfið í lofti, láði og legi, sem alls staðar er talið til nauðsyn- legustu varna. Eg vil lélta þeim áh.vggjum af íslenskum ráðamönnum hvernig slíkt eigi að fjármagna hjá þeim aðilum. sem leggja mundu fram féð. Þeir eru orðnir svo vanir þessu gagnvart öðrum þjóðum að af því þurfum við engar áhyggjur að hafa. Ein mótbáran gegn hug- myndum mínum er sú, að ef við krefðumst þessa varnarfram- lags yrðum .við háð Bandaríkj- unum og festum herinn í sessi hér. Eins og áður er sagt hefir herinn verið hér í 37 ár, en hvað skyldi hann þurfa að vera hér lengi til þess að verða fastur í sessi? Ég skil ekki þann mikla áhuga sumra stjórnmálamanna okkar á þvi að hafa þjóðina algerlega varnarlausa á sama tíma og þeir lýsa i tnálgögnum sínum hinni miklu hættu, sem okkur stafi af stórauknum víg- búnaði rússa hér á norður- slóðum. Þá er ein mótbáran sú, að fjárframlag frá öðrum þjóðum mundi verka á okkur eins og eitur á ..dópistann." sem við mundum verða háðir. Það er eðlilegt að menn hugsi svona með tilliti til þess hversu okkur hefir gengið að stjórna hvötum okkar þegar við höfum nóg að borða. En hugmvndir nrinar eru þær, að við notum það fé, sem við fengjum, eingöngu til vissra fram- kvæmda og kannski til niður- greiðslu skulda sem við hefðum ærna þörf fyrir. Og hvort þetta fé væri kallað leigugjald, aðstöðugjald, skattar eða tollar skiptir engu máli. Það kæmi fyrst og fremst frá þjóðum, sem við eigum vinsamleg samskipti við, til uppbyggingar og öryggis á þeim verkefnum, sem eru okkur lífsnauðsyn en við ráðum ekki við af eigin rammleik. En ég vil ekki selja eina fertommu af landinu okkar, hvað þá meira, og ég vil heldur ekki gefa það. Aron Guðbrandsson forstjóri

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.