Dagblaðið - 21.12.1977, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 21.12.1977, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1977. ö * Ekki gilda sömu reglur um f lutning manna tilogfrá landinu: „JAÐRAR VIÐ SKERÐINGU A MANNRETTINDUM” — segirbréfritari Jón Þórarinsson hringdi: Hann sagðist hafa verið undrandi er hann hlustaði á sjónvarpsviðtal nýlega (í Kast- ljósi 16. des.) við þá Björgvin Guðmundsson og Ölaf Jóhann- esson viðskiptamálaráðherra þar sem þeir svöruðu ýmsum spurningum í sambandi við Ef íslendingar fl.vtjast af landi brott fá þeir ekki nema litinn hluta af íslenzkum gjaldmiðli yfirfærðar til alvörugjaldmiðils (erlends). En ef útlendingur flytur til iandsins er hann skyldugur strangt til tekið, að yfirfæra allar eignir'sínar í íslenzkan gervigjaidmiðil. Misjafnt höfumst vér að — eða hvað? gjaldeyrismál. 1 viðtalinu kom fram að þegar Islendingar flytjast búferlum til annarra landa fá þeir ekki yfirfært nema lítinn hluta eigna sinna í erlendan gjaldeyri en ef út- lendingar flytjast hingað og setjast hér að verða þeir að skipta öllum sínum eigum í ís- lenzkan gjaldmiðil. Þeir falla þá undir sömu reglur og lög og Islendingarnir sjálfir, er óheimilt að eiga eignir erlendis. Raddir lesenda Mér finnst þetta vera skert mannréttindi, sagði Jón. Ég var satt að segja alveg undrandi á að fréttamennirnir skyldu ekki spyrja þessa vísu menn nánar út í þetta atriði, því mér fannst það afar athyglisvert. „Ráðamenn þjóðarinnar semja af sér í samningagerð við útlendinga” — segirbréfritari Utanríkisráðherrar ísiands og Bretlands eru þarna að skrifa undir fiskveiðisamning. Samdi islenzki ráðherrann e.t.v. af sér, eins og bréfritari vill vera láta. Sveinn Sigurjónsson í Keflavík skrifar: (bréfið nokkuð stytt) „Þær greinar sem ég hef skrifað um að leigu- eða að- stöðugjald væri tekið fyrir her- stöðina á Miðnesheiði eru skrif- aðar af leikmanni en eru ekki stjórnmálaplagg sem fært er í fagran búning til að sýna ekki afglöp eða öfugan hugsunar- hátt þeirra stjórnmálamanna, sem setið hafa á Alþingi sl. ára- tugi. 1 grein Hannesar Gissurar- sonar í Morgunblaðinu 29. sept. segir hann að nafn Jónasar frá Hriflu sé nauðsynlegt að kveða niður. Hann hélt því fram á sínum tíma að við ættum að leigja herstöðinni afnot af land- svæði er hún hefur nú til 99 ára. Ekki vantar lýðræðishug- sjónina hjá þessum kaupahéðni stjórnmálamanna, ef það er ein- hver sem hefur aðra skoðun á málinu. Þá á að kveða hann í kútinn og taka hann úr umferð. Átti ekki einu sinni að taka Jónas úr umferð, því and- stæðingunum þótti hann ekki dansa eftir þeirra nótum? Síðar í sömu grein H.G. nefnir hann kostnað til her- mála hjá einstökum ríkjum. Við skulum taka Noreg. Hann er með 3,1% til hermála, en hefur fengið frá NATO yfir tvö hundruð milljónir Bandaríkja- dala á þessum árum sem þeir hafa verið í bandalaginu. Því fé hefur eingöngu- verið varið til samgöngubóta í Norður-Noregi. Ætli samgöngur á tslandi væru ekki betri ef við hefðum fengið álíka fjárhæð. I sömu grein hrósar hann Bjarna heitnum Benediktssyni fyrir góða samningshæfileika. Að minum dómi hefur sá heiðursmaður samið af okkur stórar fjárfúlgur með óhag- stæðum samningum við varnar- liðið. Sama er hægt að segja um aðra embættismenn, þeir semja af sér þegar þeir semja við út- lendinga. Fiskveiðisamningur- inn við Breta tvö síðastliðin samningstímabil, sömuleiðis við Þjóðverja. Tvö ár eru alltof langur umþóttunartími. Þá hefur það verið árvisst þegar samið hefur verið við útlenda verktaka að orðalag hefur verið það ónákvæmt að greiðsla til þeirra að loknu verki hefur verið nokkuð misjöfn eða frá nokkrum milljónum til hundruð milljóna. Þá mætti nefna Kröfluævintýrið sem eitt af mestu afglöpum sem stjórn- málamenn hafa gert þjóðinni. Verða þeir frægir að endemum um ókomna framtíð. Á meðan verða skattgreiðendur að greiða þennan leikaraskap, því ekki þekkist að þessir menn beri ábyrgð á orðum sínum né verkum.“ W GANGIÐ VIÐ I GLAUMBÆ M&rgskonar tiskufatnaáur fyrir dömur Tiskuverslunin GLAUMBÆR HVERFISGÖTU 32 SÍMI13880 , Selfoss Blaðburðarbörn óskast í 1 hverfi á Selfossi. Umboðsmaður, sími 1548 eða 1492 BLAÐIÐ Kópavogsbúar Mikið úrval af barnafatnaði, leikfön^- um, gjafavörum og jólavörum. Góöbflastæði Verzlunin TRÖÐ Neðstutröð Kópavogi—Sími 43180 SKAUTAR - SKAUTAR Verð frá kr. 7.700.- SJPOJiTmtgffasín iö GOÐABORG Grensásveq 22 - Símar 81617-82125 1

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.