Dagblaðið - 21.12.1977, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 21.12.1977, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1977. ■\ \ Jólasveinum þökkum góð skemmtun Fóstrur skrifa bréf til jóla- sveinanna: Kæru jólasveinar! Skemmtunin á Austurvelli hinn 11. des. sl. var ykkur til sóma og börnum jafnt sem full- orðnum til mikillar skemmtun- ar. Vel var tekið undir sönginn enda kunnu allir jólavísurnar sem sungnar voru. Börnin taka svo sannarlega mark á því þegar þið segið að þau eigi að borða hollan og góðan mat. Þessi stund á Austurvelli var mikið rædd meðal barnanna á barnaheimilunum og sérstaka athygli vakti jólasveinninn sem svaf í staurnum. Með þakklæti og ósk um framhald á sömu braut. Keildsölubirgðir: V onarlandi INOVAR HELGASON Símar 8-45-10-845-1 í „Hirðuleysi og sóðaskapur hjá varnar- liðinu” 1730-6804 hringdi: Aldrei á ævi minni hef ég séð jafnmikinn sóðaskap og hirðu- Hvernig væri að kenna börnum og unglingum kurteisi og fágaða framkomu í sjón- varpinu? — spy r bréf ritari Fullorðin kona hringdi: Hún vildi gjarnan beina þeirri spurningu til sjónvarps- ins hvort ekki væri möguleiki á að taka upp þátt þar sem börnum og unglingum væri kennd falleg framkoma. „Við sjáum bara hvað fólk tekur mikið mark á þáttum í sjónvarpinu, eins og reykinga- þáttunum og megrunarþáttun-' um sem voru undir stjórn Sigrúnar Stefánsdóttur frétta- manns. Hún er svo ágæt og færist áreiðanlega stjórn slíks þáttar vel úr hendi. Við megum ekki gleyma því að börn og unglingar eru framtíð þjóðarinnar og mér finnst alveg sárgrætilegt að horfa upp á hvernig sum þeirra haga sér, kunna enga manna- siði. Auðvitað er það fyrst og fremst heimilanna að kenna börnum góða siði en víða virðist pottur brotinn í því tilliti." Þetta er þörf ábending hjá þessari fullorðnu konu og ætti sjónvarpið að taka þetta til athugunar. segir bréf ritari leysi og hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Komnir eru stórir og miklir rusla- haugar víða á svæðinu og úr haugunum fjúka alls kyns blöð og tímarit og annað rusl. Ég fór í sérstaka skoðunar- ferð á völlinn í sumar til þess að kynna mér þessi mál. Það vakti athygli mína að stóru og háu girðingarnar, sem eru utan um ruslahaugana, þjóna engan veginn tilgangi sínum. Girðing- arnar voru meira eða minna fallnar niður og götóttar. Ekki er þetta sérlega kræsilegt, eða hvað finnst ykkur? DB- mynd Hörður V. Uufy er vinsælust í dag Kaupmenn — kaupfélög Sindy ermest selda dúkkan ídag Pantið strax Fæstíöllum beztuleik- fangaverzlunum landsins Spurning dagsins ERTU BÚINN AÐ KAUPA ALLAR JÓLAGJAFIRNAR? Hjalti Júliusson bílstjóri, 18 ára: Allavega eitthvað af þeim. Eg gef svona um sjö gjafir. Ætli ég fari ekki með svona 40 þúsund i jóla- gjafirnar. Viktor Jens Vigfússon, 10 ára og Unnur Guðrún Pálsdóttir, 7 ára, bæði nemendur í Kársnesskóla: Já, við vorum að enda við það. Við keyptum tíu gjafir. Við áttum fimm þúsund krónur sem við vorum búin að safna okkur. Við þurftum ekki að eyða því öllu. Naniia Hafdís Sighvatsdóttir nemandi i Garðabæjarskóla, 10 ára: Já. Ég gef fjórar gjafir tiP systkina minna. Það kostaði eitt- hvað um þrjú þúsund. Sigríður Arnþórsdóttir nemandi í Þinghólsskóla, 15 ára: Nei, ég er ekki búin að því. Ég ætla bara að kaupa tvær gjafir. Ég reyni auðvitað að hafa þær eins ódýrar og hægt er. Sveinn Simonarson pipulagninga- meistari, 29 ára: Það er nú ein- mitt verið að kaupa þær núna. Við gefum aðeins innan fjöl- skyldunnar, við erum fimm í fjöl- skyldunni. Ætli það fari ekki svona 15 þúsund í gjafirnar. Lára Þórisdóttir nemandi í Fella- skóla, 7 ára: Eg er að kaupa jóla- gjafirnar. Mamma hjálpar mér. Ég á svona eitt þúsund krónur og svo líka fimmtíukall.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.