Dagblaðið - 21.12.1977, Blaðsíða 31

Dagblaðið - 21.12.1977, Blaðsíða 31
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1977. S Útvarp 31 Sjónvarp D Sjónvarp íkvöld kl. 20,40: Úr söngleiknum Lofti í Vöku í kvöld Davið Oddsson og Hrafn Gunnlaugsson sitja fyrir svörum um Lista- hátið í Vöku og mun Ómar Valdimarsson rekja úr þeim garnirnar. Leikhús og Listahátið ’78 verða á dagskrá Vöku í sjónvarpinu kl. 20.40 í kvöld. Umsjónarmaður að þessu sinni er Omar Valdimars- son, blaðamaður DB, en fastir um- sjónarmenn hafa ekki verið með Vöku i vetur. Omar Valdimarsson blaðamaður er umsjónarmaður Vöku í kvöld. Fjallað verður um söngleikinn Loft, sem sýndur er á Akureyri við mjög góðar viðtökur, í Vöku i kvöld. Ömar sagði okkur að í þættin- um yrðu viðtöl við Pétur Einars- son, skólastjóra Leiklistarskóla Islands, leikhússtjórana Brynju Benediktsdóttur á Akureyri, Vig- disi Finnbogadóttur I Iðnó og Svein Einarsson þjóðleikhús- stjóra; þá væri einnig rætt við Hrafn Gunnlaugsson fram- kvæmdastjóra Listahátíðar og Davið Odssson formann Lista- hátíðarnefndar. Þá verða sýnd nokkur atriði úr söngleiknum Lofti sem Leikfélag Akureyrar sýnir núna. Þau atriði voru kvikmynduð fyrir norðan fyrir nokkru. Upptöku Vöku stjórnaði Egill Eðvarðsson. - DS Útvarp íkvöld kl. 20,10: Á vegamótum SPJALLAÐ VIÐ 0LGU GUÐ- RÚNU, HÖFUND BÚRSINS — Jólahald hjá Æskulýðsráði BILAPARTASALAN Höfum úrval notaðra varahluta íýmsar tegundir bifreida, tildæmis: M. BENZ 220D 1970 SAAB 96 1966 PEUGE0T 404 1967 SKODA 110 1971 V.W. 1300 1970 SINGER VOGUE 1968 Olga Guðrún Arnadóttir skáld, söngvari og fleira. I þætti Stefaníu Traustadóttur, Á vegamótum, í útvarpinu í kvöld klukkan 20.10 verður fjallað um nýja bók eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur sem nefnist Búrið. Olga mun lesa kafla úr bókinni og verður spjallað við hana. Silja Aðalsteinsdóttir sagði í gagnrýni um bókina á sunnudaginn í Þjóð- viljanum að loksins væri komin á markað sannkölluð unglingabók sem væri hvorki miðuð við ung- linga sem fullorðið fólk eða smá- börn, eins og oft er gert, heldur sem unglinga. Slíkar bækur hefur vantað á bókamarkaðinn. Annað- hvort hafa börnin í bókunum verið á óskilgreindum smábarna- aldri, allt fram á fullorðinsár, eins og til dæmis Árni í Hraun- koti, eða þá að unglingarnir hafa lent I hinum mestu svaðilförum og mannraunum strax eftir ferm- ingu og hætta þá að vera börn og byrja jafnskjótt sem foreldrar. Unglingaskeiðið vantar alveg. Bók Olgu Guðrúnar er ádeila á skólakerfið. Ætlun Stefaníu er að reyna að binda sig sem mest við umfjöllun um þann þátt í útvarp- inu því þætti hennar er f og með ætlað að fjalla um skólamál. I siðari hluta þáttarins verður svo spjallað um starfsemi Æsku- lýðsráðs núna um jól og áramót. Stefania sagðist ætla að reyna að fá formann þess, Hinrik Bjarna- son, til þess að koma og spjalla um þau mál en Hinrik er mjög Stefanfa Traustadóttir umsjónar- maður Vegamóta. tlmabundinn um þessar mundir og alls ekki er víst að hann geti komið. Unglingar geta glaðzt yfir þvi að fá að heyra um það hvað hægt er að hafast að um jólin þvi þeir eru liklega sá aldurshópur sem mest leiðist um þann tíma. Milli atriða I þættinum A vega- mótum verður svo leikin Iétt og jólaleg tónlist. - DS g Utvarp MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 12.00 Dajiskiáin. Tónlcikar. Tilkynn* ing^r. 12.25 Vcrturfrcíinir oj* fróttir. Til- kynninuar. Vió vinnuna. Tónlcikar. 14.30 Mifldegissagan: „Á skönsunum" eftir Pál Hallbjörnsson. Höfundur Ics 15.00 Mifldegistónleikar. Filharmoniu- svcitin i Brno Icikur Dansa frá Lasskó cftir Lcos Janacck: Jiri Waldhans stjórnar. Suissc Bomandc hljóm- svcitin Icikur Sinfóníu nr. 4 i a-moll op. 63 cftir Jcan Sibclius: Frncst Anscrmct stjórnai. 16.00 Fróttir. 17.00 Popp 17.30 Útvarpssaga barnanna: „Hotta- bych" eftir Lazar Lagín Oddný Thor- steinsson les þýðingu slna (8). 17.50 Tónlcikar. Tilkynningar. 18.45 Vcðurfrcgnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fróttir. Fróttaauki. Tilkynningar. 19.45 Einsöngur í útvarpssal: Ólöf Kolbrún Harflardottir syngur lög cftir Arna Thorstcinson. Sigfús Finarsson og Sigvalda Kaldalóns. Ourtrún Kristins- dóttir Icikur á píanó. 20.10 Á veqamótum 20.50 „Vifl bakdyrnar" Gurtrún Asmunds- dóttir_lcikkona lcs Ijórt cftir Svcrri Haraldsson. 21.05 Pólónesur eftir Chopin pianólcikar- inn Ryszard Bakst lcikm 21.30 Söguþáttur. l'msjónarmcnn Broddi Broddason og Gisli Agúst (•unnlatigsson sagnfrærtincmar. 22.05 Kvöldsagan: Minningar Ara Arnalds. Finar Laxncss lcs (5). Orð kvöldsins á jólaföstu. 22.30 Vortui ficgnii. Ficttir. 22.45 pjassþáttur í umsjá Jóns Múla FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 7.00 Morgunútvarp. Vt*rturfrcgnii kl. 7.00. 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Frcttir kl. 7.30. 8.15 (og forustugr. dagbl). 9.00 og 10.00 Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.00. Arnhildui Jóns- dóttir lýkur lcstri sögunnar um ...Maddin og töfralampann" i þýrtingu. Tómasar Guðmundssonar (10). Til- kynningar kl. 9.15. bingfrcttir kl. 9.45. Lótt lög inilli atrirta. Á bókamarkaflin- um kl. 10.25. Dóra Ingvadóttir kynnii Morguntónleikar kl. 11.00; Janacck- kvartcttinn lcikur Sticngjakvaitctt í Fs-dúr nr. 2 op. 33 cftir Haydn. Fclagar í Vínar-oktcttinum lcika Divcrtimcnto nr. 17 í D-dúr (K334) cftir Mozart. Einnighöfum við úrval af kerruefni, til dæmis undir vélsleða. Sendum um alit land. BÍLAPARTASALAN Höfðatúni 10 - Sími 11397

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.