Dagblaðið - 21.12.1977, Qupperneq 16
16
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1977.
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþról
„Getum náð
með þessu
„Við getum náð langt með
þessu liði,“ sagði Jón Hjaltalín
Magnússon, Lugi, eftir landsleik-
inn í gærkvöld en hann lék þá
sinn fyrsta landsleik hér heima
síðan í desember 1975 — og var
einn albezti maður isl. liðsins.
„Okkur tókst mjög að trufla
allar keyrslur ungverska liðsins
með því að koma mjög langt út á
móti ungversku leikmönnunum í
vörninni. Kannski hefðum við átt
að hafa sóknarlotur okkar lengri
en gott var hve við skoruðum
mörg mörk úr hraðaupphlaupum.
Það var gaman að þessum leik og
ég er ánægður," sagði Jón enn-
fremur.
„Það er tvennt ólíkt að leika í
landsliði í handknattleik eða
knattspyrnu,** sagði Janus Guð-
laugsson, sem lék sinn fyrsta
landsleik í gær. Hann er fasta-
maður i ísl. landsliðinu í knatt-
spyrnu. „Sennilega þarf ég að
gera upp hug minn í sambandi
við þessar íþróttagreinar. Það er
erfitt að vera í hvoru tveggja þó
maður lifi fyrir þetta. Kannski
geri ég það síðar í vetur og ætli
knattspyrnan verði ekki ofan á.“
„Það tekur tíma að samlagast
liðinu og það er á 3Ja ár síðan ég
hef leikið með ísl. Iandsliðinu,“
sagði Einar Magnússon eftir
landsleikinn. „Ungverska liðið er
mjög gott og þvi var gott að ná
þessum árangri. En það tekur
tíma að átta sig — en hvað um
það. Eg er eftir atvikum ánægður
með leikinn,“ sagði Einar en
hann leikur sem kunnugt er með
þýzka liðinu Hannover.
Með
Polaroid
faidþid
glæsilegar
litmyndir
STRAX
POLAROID MYNDAVÉLIN
ER ÓMISSANDI
HVERRI BARNAFJÖLSKYLDU
OG TILVALIÐ
„LEIKFANG" FYRIR ELDRI
OG YNGRI.
Verö frá kr. 8.660.-
Utsölustaöir: Reykjavík: Ama-
tör Laugav. 55, Ástþór Hafnar-
str., Filmur og vélar Skóla-
vöröust. 41. Fókus Lsskjarg. 6b,
Ljósmyndaþj. Mats Laugav.
178, Glœsibœr, Austurver.
Hafnarfj.: Prísma, Reykjavík-
urv. Akranes: Andrós Níelsson.
Borgames: Stjarnan. Patreksfj.:
Laufey. Tálknafj.: ól. Magnús-
son. ísafj.: Jónas Tómasson.
Blönduós: Kf. Húnvetn. Sauðár-
kr.: Kr. Blöndal. Siglufj.: Gestur
Fanndal, Aöalbuöin, Rafbœr.
Akureyrí: Filmuhúsið. Húsavík:
Kf. Þing. Egilsst.: Sigurbj.
Brynjólfss. Vík: Kf. Skaftfell-
inga. Selfoss: Karí Guðmunds-
son. Vestm.eyjar: Miöhús.
Keflavík: Stapafell, Víkurbœr.
Fyrsta inark leiksins. Geir Hallsteinsson stekkur upp og sendir þrumufleyg í
Glæsilegt i'ins og þau átta, sem Geir skoraði í leiknum.
„ÞETTA VARI
í HEIMSKLA
—sagði Birgir Björnsson, eftir jafntef li íslar
„Þetta var handknattleikur í heims-
klassa — tvö sterk lið. Við getum
aðeins betur. Það kemur kannski fram
í síðari leiknum, þó ekki sé hægt að
segja neitt um slíkt fyrirfram. Við
misnotuðum nokkur auðveld tækifæri
og því vannst ekki sigur, þrátt fyrir
snilldarleik Geirs Hallsteinssonar. Við
höfum ekki enn æft það nægilega —
eigum ekki enn nógu gott svar við því
ef Geir er tekinn úr umferð. Það atriði
verður tekið vel fyrir. Ég er mjög
ánægður með vörn ísl. liðsins. Einar og
Jón Hjaltalín brugðust ekki og við
lékum góðan handknattleik. Fyrir ofan
meðallag hjá okkur og í síðari leiknum
stefnum við að sigri,“ sagði Birgir
Björnsson eftir að Island og Ungverja-
land höfðu gert jafntefli í æsispenn-
andi Iandsleik á fjölum Laugardals-
haliarinnar í gær. Það ieit út fyrir
ungverskan sigur en islenzka liðið
skoraði þrjú síðustu mörk leiksins.
Bjarni Guðmundsson jafnaði i 24-24
örfáum sekúndum fyrir leikslok.
Lokakaflinn var því slakur hjá Ung-
verjum nákvæmlega eins og lokakafl-
inn hjá íslenzka liðinu í fyrri hálfleik.
Þá missti það niður þriggja marka for-
ustu á stuttum tíma. Staðan 12-9 fyrir
Island, þegar þrjár mín. voru eftir af
hálfleiknum. Grátleg mistök gerðu það
að verkum að Ungverjar jöfnuðu í 12-
12,
„Ég er mjög ánægður með leikinn og
hef aldrei byrjað eins vel í landsleik,"
sagði Geir Hallsteinsson. Hann skoraði
átta mörk í níu tiiraunum — eitt stang-
arskot — í fyrri hálfleiknum. Var tek-
inn úr umferð í þeim síðari og skoraði
þá ekki — en þá opnaðist vörn Ung-
verja fyrir aðra leikmenn. Geir átti
frábæran leik í gær. Að mínu áliti
hefur hann aldrei verið sterkari. Kröft-
ugri, ákveðnari og með meiri yfirsýn
en nokkru sinni fyrr. Þó margir af-
bragðs handknattleiksmenn leiki í ung-
verska liðinu fölnuðu þeir í saman-
burði við Geir. Já, Geir okkar er snill-
ingur, sem á sér fáa líka í handknatt-
ieik heimsins.
En það verður að finna betra svar en
sást í gær við þvi, þegar Geir er tekinn
úr umferð. Þá þarf einhver annar að
koma til, sem getur stjórnað leik liðsins
— og það er ekki vafi að sá leikmaður
er til, Páll Björgvinsson.
Várnarleikur ísl. liðsins var sterkur
með Árna Indriðason sem bezta mann.
En flestir aðrir áttu þar einnig góðan
leik. Mistök sáust þó — mistök, sem
auðvelt er að laga. Markvarzla Gunnars
Einarssonar var góð framan af, en
siðan datt hann alveg niður. Þar hefði
átt að skipta fyrr um markvörð —
Gunnari beinlínis gerður óleikur með
þessu — en Kristján Sigmundsson stóð
í markinu siðustu 10 mín. og varði þá
oft vel, þrátt fyrir slæma byrjun. Það
skipti sköpum.
Jón Hjaltalín Magnússon komst
mjög vel frá leiknum. Skoraði þrjú góð
mörk og átti þrjár iínusendingar, sem
gáfu mörk. Einar Magnússon getur
betur en óx, þegar á leikinn leið. Tals-
vert taugaspenntur framan af enda
erfitt að koma inn í landsleik eftir
langa fjarveru. Janus Guðlaugsson var
einnig of taugaspenntur í sinum fyrsta
landsleik — en þar er gtfurlegt efni á
ferðinni. Jón Karlsson, fyrirliði, sýndi
og sannaði hve reynslan hefur mikið að
segja — og í heild átti Jón mjög ljúfan
leik. Og ekki má gleyma Bjarna Guð-
mundssyni, sem á svo snilldarlegan
hátt skoraði tvö sfðustu mörk leiksins
og jafnaði.
Leikurinn í heild verður minnis-
stæður — einkum vegna stórleiks
Geirs og þeirrar staðreyndar, að Ung-
verjar komust ekki upp með frægar
leikfléttur sínar vegna ákveðni varnar-
leikmanna okkar — leikfléttur, sem
gerðu það að verkum, að Ungverjar
unnu Dani sl. sunnudag með 15 marka
mun, 33-18. Það var mikið afrek að
hefta Ungverja á þvi sviði. Og spennan
var gífurleg allan tímann. Allar jafn-
teflistölur sáust upp í 4-4, en síðan
náðu Ungverjar tvívegis tveggja marka
forustu. ísland jafnaði í 8-8 og Géír