Dagblaðið - 21.12.1977, Side 21
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1977.
Fjórði
Gibbs-bróðirinn
gerir það gott:
Þessi mynd var tekin 1968 af þeim brædrum Andy og Barry sem
þarna segir iitla bróður til á gítarinn.
Andy launar Barry kennsluna með því að kenna Stefáni litla Barry-syni á gítar.
Andy hefur mjög gaman af öllum iþróttum, þar á meðal tennis sem
hann iðkar af miklum áhuga.
Berer
hver
að baki...
Stundum getur lífið verið ótrúlega erfitt
þegar maður er ekki nema liálfs annars árs.
Einföldustu hlutir, eins og að fá sér vatnssopa,
geta verið erfiðir viðfangs eða jafnvel ómögu-
legt að framkvæma þá nema með miklu hugviti.
Bezta ráðið er auðvitað að fá aðstoð við verkin.
Og þegar þú þarft að súpa á vatni í brunni, sem
er á hæð við Everest-fjallið, er auðvitað um að
gera að príla bara upp á bakið á stóru systur.
Walt litli, sem á heima í Flórída, var svo
skelfing þyrstur einn daginn og þar sem hann er
ennþá ungur að árum sá hann fram á að ekki
þýddi að ætla að fara inn á veitingastað til að
svala þorstanum. Hann beið því þar til stóra
systir kom á vettvang og eftir miklar ráðagerðir
var ákveðið að hún legðist á hnén og hann
prílaði upp á bakið á henni. Þetta sýnir enn að
ber er hver að baki nema sér bróður (eða
systur) eigi.
Andy með vinsæl-
asta lagið 77
Kim Reeder hefur yfirgefið
mann sinn með tvíburana.
stór. Á þeirri síðarnefndu eru
meðal annars lög eftir Andy
sjálfan.
Andy hefur ekki, frekar en
hinir Gibbs-bræðurnir, látið of
mikla skólagöngu tefja sig frá
tónlistinni. Hann hætti 13 ára
gamall í skóla. Foreldrarnir
sögðu víst mest lítið því faðir
hans var trommuleikari og
móðir hans söngvari hér i
gamla daga.
Andy giftist Kim Reeder og
þau settust að á Miami. Kim á
von á tviburum en hún hefur
þó ekki látið sér það nægja.
Hún hefur yfirgefið Andy og
setzt að hjá foreldrum sínum
aftur. Henni þótti víst sem hún
sæi helzt til lítið af eiginmann-
inum. Andy viðurkennir að
hann sé litið heima en segist
hafa svo mikinn áhuga á söngn-
um að hann verði að sitja í
fyrirrúmi. Hann segist miða
tónlist sina fremur við eldra
fólk en það allra yngsta. Hann
hafi mest gaman af því að sitja
með bræðrum sínum yfir te-
bolla og sjónvarpstæki í róleg-
heitum. Ef til vill nær hann þvi
um síðir að verða sá fjórði í Bee
Gees.
Á þeim tímum sem allir
brezkir krakkar hefðu viljað
flest til vinna til þess að verða
fimmti bítillinn vildi Andy litli
Gibb helzt af öllu verða hinn
fjórði í The Bee Gees. Bee Gees
stendur eins og allir vita fyrir
Bræðurna Gibbs en Andy var
þeirra yngstur. Andy segist
alltaf hafa reiknað með að
verða einn af hljómsveitar-
mönnunum en hann hafi samt
ekki kært sig um frægð sem
hann ekki hefði unnið fyrir
sjálfur.
Nú er Andy oróinn nítján ára
og þarf ekki að hafa áhyggjur
af því að hann vinni sér ekki
frægð. Lag hans, „I just want to
be your everything", Ég vil
aðeins vera þér allt, hefur verið
á meðal tíu vinsælustu laga
Bandaríkjanna lengur en nokk-
urt annað síðan 1959. Hér á
landi gekk þetta lag feikilega
mikið og lengi síðasta sumar.
Reyndar fékk And.v góða
hjálp frá elzta bróður sínum,
Barry, við að taka upp lagið.
Andy ætlar þó ekki að láta við
þetta sitja því væntanleg er frá
honum ein lítil plata og önnur