Dagblaðið - 09.01.1978, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 09.01.1978, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. JANUAR 1978. Er eðlilegt, að æðstu emb- ættismenn landsins gegni fleiri en einu starfi? — leyfa annir landlæknis honum lektorsstörf við Háskóla íslands? „Einn í kerfinu“ hringdi og benti á tilkynningu sem kom í Lögbirtingablaðinu 30. desem- ber síðastliðinn nr. 109. Þar segir að landlæknir Ölafur Ölafsson hafi verið skipaður lektor í félags- lækningum við læknadeild Háskóla tsiands. „Kerfismaðurinn" vill fá upplýsingar um launakjör lektorsins. Einnig upplýsing- ar um kennsluskyldu. Auk þess er spurt hvort ekki hafi nokkuð borið á drætti á afgreiðslu mála hja áðurnefndu embætti. Eru ekki launakjör land- læknis miðuð við svokallaða Embætti, sýslanir o. fl. Menntamálaráðuneytið hefur skipað eftirtalda lektora við læknadeild Háskóla íslands um fimm ára skeið frá 1. október 1977 að telja: Ólaf ólafsson, landlækni í félagslækningum og Hrafn V. Friðrilcs- son, lækni í heilbrigðisfræði. Menntamálaráðuneytið, 20. desember 1977. (6373 6370)1 D| ar: „fasta aukavinnu“? Að lokum spyr „einn í kerfinu" hvort þessi veiting lektorsembættis geti talizt eðlileg, jafnvel þótt leyfi viðkomandi ráðherra hafi fengizt. Alvöru sjómenn vilja vera hjá alvöru skipafélögum Sá Pétur sjómaður, sem ég þekkti, er látinn, því finnst mér óviðeigandi og siðlaust að nota nafn hans í klúðurslegri grein, eins og þeirri sem þú ritar í DB 5/1 78, enda var Pétur svo mikill maður að hann faldi sig ekki á bak við dulnefni, eins og þú gerir. Á síðustu órum hafa margir aðilar, oft úr sam- tökum þrýstihópa, viljað gerast útgerðarmenn. I byrjun hafa þeir fengið góða sjómenn á skipin, en stjór.ileysið og fá- kunnáttan í landi hafa fljótlega flæmt þessa menn burt frá þessum sjóræningjafélögum. Ástæður eru margvislegar, en aðallega vegna þess að laun eru greidd hjá þessum ævir.týra- félögum „vilja verða útgerðar- menn“ eftir dúk og disk, svo er hitt að það er mannskemmandi að vera á skipum, sem slaga á milli hafna og virðist tilviljun ráða hvar þau eru kyrrsett fyrir skuldum, eins og svo oft hefur verið um skip þessara þrýsti- hópa, sem vilja verða útgerðar- menn. Annað er það, að er fram líða stundir, þá safnast til þess- ara félaga safnið úr ruslakistu sjómanna, því alvöru sjómenn vilja sigla hjá alvöru skipa- félögum, en ekki hjá slíkum, sem þú skrumar svo mjög af. Ég get fullvissað þig um það að samkvæmt minni revnslu og þekkingu (sem er þó allnokkur eftir 33ja ára starf á sjó), þá er ekkert fraktskipafélag á Islandi, sem ég tel^lvöru skipa- félag, nema Eimskipafélagið, sem þú telur að vaxið hafi út úr hlutverki sínu. Það er eina félagið, sem hefur á að skipa hæfum mönnum til sjós og lands til að koma vörunni í sem bestu ástandi til viðtakanda. Vissulega hefur Bifröst fengið góðan mann í skipstjóra skipsins. Hann er fullnuminn frá Eimskipafélaginu og er fyrsta flokks maður, en það þarf meira en skipstjóra til að reka útgerð; síðasta ferð Bif- rastar tii Bandaríkjanna hefði áttað opnaaugu þín fyrir þeirri staðreynd, ef annað er ekki fyrir hendi sem komið getur þér í skilning um það. Glund- roði og óvissa við fermingu; en hálftóm slagandi skip á siglingu, oft hættuleg umhverfi sínu er það sem einkennir skip þrýstihópanna, en vel uppbyggt kerfi, sem farið er eftir til sjós og lands, er einkenni skipa- félags eins og Eimskipafélagið er, sem færir varninginn heim, landi og þjóð til hagsbóta og farsældar, í sem besta mögulega ástandi, sem hæfni og kunnátta hefur yfir að ráða. Rétt er að El hefur í bili lagt rekstur farþegaskips á hilluna, vegna þess að það er ekki , arðsamt. El er alvöru útgerðar- fyrirtæki, sem reynir að skila eigendum sínum arði. Félagið byggir ekki afkomu sína á ríkis- jötunni og hefur ekki í hyggju að skella skuldum yfir á al- menning, eins og raunin hefur orðið hjá of mörgum útgerðar- félögum, þegar „vilja vera út- gerðarrpenn" gáfust upp. Öskir þlnar og draumar um farþegaskip, rekið af ævintýra- mennsku, vona ég að aldrei rætist. Minn grunur er sá að sú stund sé í sjónmáli að slit kom- ist á þessa ævintýramennsku, sem þú hælir svo mikið og ef þeir fengju meira almannafé til skipakaupa, yrði aðeins meira fyrir sakttborgarann að greiða, þegar allt fer yfirum og „vilja vera útgerðarmenn" hafa komizt að raun um að meira þarf til en draumóra og stóran kjaft til að reka útgerð. svarviðgrein„Péturs sjómanns” (ekki Sigurðssonar) um Bifröstogóskabarn þjóðarinnar þátt greinar Um þann þinnar, sem fjallar um messastráka og launagreiðslur, hirði ég ekki að svara, en bendi þér á að roflaus rök, sem enda á byrjuninni, eru rökleysa, eins og raunverulega öll þín grein er. Vera má að þú hafir fengið pokann, en þú mátt ekki sak- fella núverandi stjórnendur Eí fyrir syndir forfeðranna og e.t.v. órétt, sem þér hafi verið sýndur. Um grein Morgunblaðsins, sem þú vitnar til, vísa ég til föðurhúsanna, en varaðu þig „Pétur ekki sjómaður" því ef þú lendir í ritklóm Matthíasar, þá hefur hann sent frá sér fimm breiðsíður af minna tilefni en því sem þú gefur hon- um með þessum tveim efnis- greinum, sem illa eru tengdar illa samsettri grein þinni. Lokaorð: Verk og störf starfsmanna El eru löngu landskunn, hvort sem þeir eru til sjós eða lands. Þau svara sér því sjálf, enda eru þau ekki tilefni þess að ég hrek þetta áróðursrugl þitt, en Pétur sjómaður var vinur minn. Hann var ólánsmaður vegna sjúkdóms, sem í dag virðist vera tízkufyrirbrigði, en hann var traustur og góður starfsmaður og vissi sín tak- mörk, takmörk sém fylgdu hon- Raddir lesenda Hríngiðísíma 27022milli kl.l3ogl5 Bréfritari segist vlta ertlr 33 ára reynslu á sjó að ekkert íslenzkt skipafélag geti talizt alvöru skipafélag nema Eimskip. um á síðari hluta æviskeiðsins, en það er meira heldur en um þig verður sagt. Vona ég að þú látir það verða þér til varnaðar áður en þú hleypur aftur í blöðin, með illa fengið áróðurs- rugl um EÍ, sem er og verður óskabarn þjóðarinnar. 'Virðingarfyllst, Sigurður Arngrímsson, frá ísafirði. Raddir lesenda

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.