Dagblaðið - 09.01.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. JANUAR 1978.
Erlendar
fréttir
>5
JÓNAS
HARALDSSON
Mikill jarðskjálfti
fSovétríkjunum
Jarðskjálfti eyðilagði 400 hús
og skemmdi þúsundir bygginga
mikið í Georgíu í Sovétríkjunum.
Jarðskjálftinn skók allt Kákasus-
svæðið sl. mánudag, en fyrstu
fréttir af jarðskjálftanum bárust í
málgagni sovézku verkalýðssam-
takanna Trude. Enginn fórst í
jarðskjálftanum og miklar við-
reisnaraðgerðir eru hafnar.
Landnám ísraelsmanna í Sinaí
STEFNIR FRIÐARVIÐ-
RÆÐUM ÍHÆTTUH
Begin forsætisráðherra Isra-
els sagði á fundi með flokki
sínum, Herut flokknum, að
Israelar myndu halda fast við
landnám Gyðinga á vestur-
bakka Jórdanár og í Sinaí,-þ.e.
þeirra, sem þegar hefðu flutt á
svæðin. Hins vegar yrði ekki
efnt til frekara landnáms. Ráð-
herrann gaf þessa yfirlýsingu
er harðar umræður urðu um
framtíð herteknu svæðanna á
milli hans og harðlínumanna í
flokknum, sem enga eftirgjöf
vilja gefa, og vilja halda land-
n|imi Gyðinga áfram.
Begin sagði jafnframt að svo
gæti farið að ísraelsmenn
hættu friðarviðræðum sinum
við Egypta, ef Sadat forseti
sýndi ekki meiri sveigjanleika
og hófsemi, en Sadat hefur
tekið fyrir það að ísraelsmenn,
hvort heldur hermenn eða al-
mennir borgarar. verði á
egypzku landi eftir að friðar-
samningar verða undirritaðir á
milli þjóðanna.
Viðbrögð við ummælum
Begins í Washington voru þau
að ráðgjafi Carters Bandaríkja-
forseta, Zbigniew Brzezinski,
sagði að frekari útþensla ísra-
elsks landnáms í Norður-Sínaí
gæti stefnt friðarviðræðum
þjóðanna í voða.
Hið hálfopinbera málgagn
egypzku stjórnarinnar Al-
ahram sagði að ágreiningurinn
um landnám ísraelsmanna í
Sínaí yrði ræddur á milli sendi-
nefnda þjóðanna tveggja á mið-
vikudaginn.
Begin forsætisráðherra fsraels.
AUGLVSINGASTOFA KRISHNAB 31.1
M.S. Bifröst er fyrsta íslenska milli-
landaskipið af Ro-Ro gerð, en það er
skammstöfun fyrir Roll on/Roll off þ.e.
ekið í og úr.
Auk bílaflutninga er ætlunin að flytja í
hverri ferð ákveðinn fjöldaflutningavagna
(trailers) og gáma.
Flutningavagnarnir koma akandi um
borð með vöruna beint frá framleiðslu-
stað. Þeim er síðan ekið í land til
móttakanda með vöruna innanborðs.
Með þessum hætti, auk gáma, má
flytja alla algenga stykkjavöru stóra sem
smáa. Og ekki síður ferskar, kældar
eða frystar sjávar- og landbúnaðarafurðir
beint til móttakanda hérlendis eða
erlendis.
Hagkvæmni flutninganna eykst í
hvívetna. Lestunar-og losunartímistyttist
að mun, og vörumeðferð batnar, því
hvergi er um umskipun að ræða.
Leitið upplýsinga um ferðir og
fyrirkomulag á skrifstofu okkar.
HAFNARFJÖRÐUR
NORFOLK
Aætlun M.S. Bifrastar
Frá Hafnarfirði Frá Norfolk
16. janúar
26. janúar 6. febrúar
17. febrúar 1. mars
13. mars 24. mars
5. apríl 16. apríl
SKIPAFELAGIÐ BIFROST HF
Skrifstofur: Klapparstig 29. Simar 29066 og 29073 Umboðsmaður í USA: Hansen and Tideman Inc. Suite 1627, ONE WORLDTRADECENTER,
NewYork,N.Y.10048.Sími432-1910 Afgreiðsla í Norfolk: Capes Shipping Agencies lnc.1128 West Olney Road, Norfolk, Virginia 23507
Símar (804) 625-3658, /59 oq /50 oq(804) 627-2966 oq /67. Telex 823-476