Dagblaðið - 09.01.1978, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 09.01.1978, Blaðsíða 24
Þingmenn hækkuöu laun sín um 78% á einuárí Srjálst, úháð datfblað MANUDAGUR 9. JAN. 1978 EKKIVITAÐ TIL AÐ ÞINGHEIMUR HAFIINEINU MOTMÆLT HÆKKUNINNI Eins og kunnugt er, eru þing- menn vorir taldir til þeirra stétta, sem ákveða sér sjálfar kaup. Þingfararkaupsnefnd fjallaði um kauphækkanir til handa þingmönnum í desember sl. og komst að þeirri niður- stöðu, að réttast væri að hækka kaup þingmanna í 328.600,00 krónur eða um rúm 78% á einu ári, frá 1. des. 1976 til sama tíma 1977. Ekki er vitað til að þingheim- ur hafi mótmælt þessari kaup- hækkun. Fram til þessa hefur það verið venja, að þingfarar- kaup miðaðist við þriðja hæsta flokk opinberra starfsmanna. En eftir kjarasamningana við BSRB og kjaradóm sem féll í máli Bandalags háskólamanna kom í ljós, að verulegur munur var á þriðju hæstu flokkunum hjá þessum samtökum opin- berra starfsmanna. A-28, efsta þrep hjá BSRB, sem er þriðji hæsti flokkurinn þar er 307.690,00 krónur á mánuði. Launafíokkur 120, fimmta þrep, sem er þriðji efsti flokk- urinn hjá BHM er hins vegar 328.600,00. Þingfararkaupsnefnd ákvað í desember, að launaflokkur BHM skyldi hafður til viðmið- unar. I þeim flokki eru t.d. háskóla- rektor, háskólaritari, póst- og símamálastjóri, vegamálastjóri, rannsóknarlögreglustjóri og yfirsakadómari. í þingfararkaupsnefnd Al- þingis eru þingmennirnir Sverrir Hermannsson, sem er formaður, Ingvar Gíslason, Friðjón Þórðarson, Helgi Seljan, Gunnlaugur Finnsson, Sigurlaug Bjarnadóttir og Eggert G. Þorsteinsson. - HP ELDURINN D0 UT AF SJÁLFU SÉR Rétt fyrir hádegi á laugardag- inn varð þess vart að eldur hafði leikið um 1. hæð verksmiðjuhúss Kexverksmiðjunnar Frón við Skúlagötu. Var eldurinn út- dauður þá er að var komið. Var ekkert fyrir slökkviliðið að gera. Ljóst var að eidurinn hafði byrjað út frá sýrópspotti í verksmiðju- salnum og breiðzt þaðan út. Tals- verðar skemmdir urðu bæði af eldi og reyk i verksmiðjuhúsinu. Þarna í húsinu varð eldur laus fyrir fáum vikum og brann þá þak hússins og ýmislegt á efstu hæð. ASt. Brunavörðurinn í rústunum, sýrópspotturinn er tii vinstri á myndinni — DB-mynd Sv.Þorm. Selfoss verður kaupstaðurívor: „SIGUR HINNA UNGU" —segiroddviti Selfosshrepps. Nær þrír f jórðu greiddu atkvæði með því að Selfoss fengi kaupstaðarréttindi „Þetta er sigur hinna ungu — þeirra sem framtíðin er hér á Selfossi," sagði Óli Þ. Guðbjarts- son, oddviti á Selfossi, í morgun um úrslit skoðanakönnunarinnar, sem þar fór fram i gær. Spurt var hvort menn væru því fylgjandi að Selfoss fengi kaupstaðarréttindi. Yfirgnæfandi meirihiuti þátt- takenda í skoðanakönnuninni greiddi atkvæði með, eða 71,8%. Hins vegar var kjörsókn fremur dræm, aðeins rúmlega helmingur af 1944 á kjörskrá greiddi at- kvæði. Sögðu 751 já og 278 nei. „Ég reikna með að næsta skref verði að hreppsnefnd snúi sér til þingmanna kjördæmisins og biðji þá að fiytja frumvarp um kaup- staðarréttindi Selfoss á vorþing- inu, þannig að breytingin geti tekið gildi frá og með næstu sveitarstjórnarkosningum," sagði Óli oddviti í samtali við DB í morgun. Hann kvaðst sjálfur vera mjög ánægður með þessi úrslit og þá ekki sízt hve skýr og afdráttarlaus þau væru. „Þetta á eftir að koma okkur til góða á margvíslegan hátt,“ sagði hann. „Eg get nefnt sem dæmi, að á síðasta ári greiddum við liðlega ellefu milljónir í sýslusjóð og sýsluvegasjóð, eða um 7% af út- svörum okkar. Þetta gjald fellur niður og verður beinn sparnaður fyrir sveitarsjóð, sem væntanlega v.erður bæjarsjóður. Ekkert gjald kemur í staðinn.“ Oli taldi kaupstaðarréttindin eiga eftir að bæta stöðu Selfoss 1 kerfinu verulega. „Sjálfstæði okkar verður meira, samkennd ibúanna hér á eftir að aukast og Selfoss verður betur i stakk búinn til þeirrar forystu sem staðurinn hefur óneitanlega haft í viðskiptalegu, stjórnsýslulegu og menningarlegu tilliti á Suður- landi," sagði Óli Þ. Guðbjartsson að lokum. - ÓV. Próf kjör Framsóknar í Kef lavík: Bæjarfulltrúinn hélt sætinu á 10 atkvæðum Á aðeins um tíu atkvæðum hélt Guðjón Stefánsson skrif- stofustjóri og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kefla- vík sæti sínu í prófkjörinu f gær. Enn liggja ekki fyrir nema grófar tölur um úrslitin, að sögn Kristins Björnssonar, for- manns kjörstjórnar, f morgun. En sýnt er, að tveir efstu menn verða hinir sömu og siðast. Framsókn hefur tvo bæjar- fulltrúa í Keflavík. Hilmar Pétursson skrifstofumaður hélt efsta sæti í prófkjörinu og fékk um 560 atkvæði að sögn Kristins. I öðru sæti varð Guð- jón með um 510 og næstur þar á eftir Sigurður Þorkelsson skólastjóri með um 500. Kristinn sagði, að tainingu væri ólokið, en gróf talning á efstu mönnum hefði leitt framan- greint í ljós. Um 650 greiddu atkvæði, en Framsókn fékk 767 atkvæði í síðustu bæjarstjórnarkosning- TV0 BRUNAK0LL FRÁ HÁHÝSUM í BREIÐHOLTI Eldur varð laus í mannlausri íbúð á 4. hæð 1 háhýsinu Æsufelli 4 í gær. Fylltist íbúðin af reyk og lagði hann upp um ganga og smaug inn i íbúðir. Er grímuklæddir slökkviliðs- menn fóru inn í ibúðina reynd- ist eldurinn í rúmfötum og dýnu í mannlausri íbúðinni. Var dótinu fljótt komið út á svalir og i því slökkt. Lengur tók að lofta út. Þarna varð um talsvert tjón að ræða. Þá fór slökkviliðið tvívegis að Asparfelli 12 sem er annað háhýsi skammt frá. Var fyrst tilkynnt um eldbjarma á efstu hæð. Kom tilkynningin frá húsi í grenndinni. Þarna reyndist um að ræða loga á útikerti á svölum úti og ekkert að. Er liðið var á bakaleið til stöðvar- innar kom önnur tilkynning frá Asparfelli um reyk i lyftuhúsi. Sú tilkynning reyndist gabb eitt. ASt Nefbrotinn, kinnbeins- og kjálkabrotinn —eftirátökvið stöðvarvörð Til hastarlegra slagsmála kom á Bifreiðastöð Steindórs á fyrsta timanum aðfaranótt laugardags. Mjög ölvaður maður kom þar inn og vildi fá bil, sem ekki var að hafa. Sætti hann sig illa við það og kom til átaka milli hans og stöðvarmannsins. Fyrst var hinum drukkna hent út en hann kom aftur og var þá afgreiddur með tveimur höggum. Eftir þau lá hann rotaður í blóði sínu þar til lögreglan kom. Reyndist maðurinn nefbrotinn, kinnbeins- brotinn og kjálkabrotinn. Var hann fluttur í slysadeild og þar mun aðgerð hafa verið gerð á honum á iaugardaginn. - ASt. Hafnarfjarðar- lögreglan: í eltingaleik við ölvaðan ökumann — f annst að lokum íbflskúr íKópavogi ölvaður ökumaður gerði lög- reglunni í Hafnarfirði lífið leitt um nokkurn tima á laugardaginn. Svo fór þó að lokum að réttvísin fór með sigur af hólmi og kauði vargómaðui' í bílskúr i Kópavogi. Upphafið var það að um hálf- eitt leytið á laugardag var ekið aftan á bíl á Hafnarfjarðarvegin- iim, skammt frá Arnarneslækn- um. Sá er olli tjóninu var þó ekki að hafa fyrir því að stöðva, heldur gaf í og þaut á ofsahraða í átt til Hafnarfjarðar. ökumaður hinnar bifreiðarinnar vildi ógjarnan láta fantinn sleppa við svo búið og veitti honum snarlega eftirför. Við það jókst hraðinn enn meir og að lokum tókst tjónvaldinum að sleppa inn í norðurbæ Hafnar- fjarðar. Þá skarst lögreglan í leikinn og fann bilinn. Upphófst þá frekari eltingaleikur sem barst um Garðabæ og loks út í Kópavog. Þá var Kópavogslögreglan kvödd til aðstoðar. Loks fannst billinn og eins og áður sagði i bilskúr þar i bæ. ökumaðurinn fékk gistingu hjá lögreglunni í Hafnarfirði næstu nótt og játaði ailar sfnar yfir- sjónir daginn eftir. Hann hafði misst ökuleyfið fyrir nokkru fyrir ölvunarakstur. — Bilinn, sem hann ók, hafði hann nýlega keypt og var sá enn skráður á fyrri eiganda svo og tryggður á hans nafn. AT MIN0LTA- KEPPNIN Verðlaunaafhending fyrir Minolta ljósmyndakeppnina verður á Hótel Loftleiðum á mánudaginn kemur. Nánar verður sagt frá henni í blað- inu síðar f vikunni. Þeir sem sent hafa myndir í keppnina mega vitja þeirra til ritstjórnar Dagblaðsins í Siðumúla 12.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.